Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 4.–6. október 201622 Skrýtið E f leitað er að orðinu spilling í mexíkóskri orðabók er ekki ólíklegt að við hlið þess sé andlitsmynd af Arturo Dur- azo Moreno, fyrrverandi lög- reglustjóra Mexíkóborgar. Arturo gegndi embætti lögreglustjóra á ár- unum 1976 til 1982 en valdatíð hans fer seint í sögubækurnar fyrir eftir- tektarverðan árangur í baráttunni gegn spillingu og glæpum. Maðkur í mysunni Arturo þénaði aðeins sem nemur 115 þúsund krónum á mánuði en þrátt fyrir það lifði hann hátt – svo hátt að menn töldu snemma að maðkur væri í mysunni. Hann átti tvær glæsi- villur, flott safn af ýmsum verðmæt- um fornbílum auk þess að eiga fast- eignir í Kanada og Bandaríkjunum. Arturo átti sínar skuggahliðar; hann var gjörspilltur, mokaði inn seðlum á kókaínsmygli til Bandaríkjanna og þáði mútur frá glæpamönnum sem héldu þeim utan fangelsismúranna. Handtekinn í Kostaríku Það var samt ekki fyrr en nokkru eft- ir að Arturo lét af embætti að hann var handtekinn. Handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur honum og þegar hann frétti af því flúði hann land og ferðaðist milli fjölmargra landa í Mið- og Suður-Ameríku. Það var árið 1984 að bandaríska al- ríkislögreglan, FBI, handtók hann í Kostaríku. Tveimur árum síðar var hann framseldur til Mexíkó þar sem hann var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir spillingu, fjárkúgun og mútu- þægni. Honum var sleppt úr fang- elsi af heilsufarsástæðum árið 1992 eftir að hafa setið á bak við lás og slá í sex ár. Arturo lést í ágúst 2000, 76 ára gamall. Lögreglumenn í byggingarvinnu Meðfylgjandi eru myndir frá annarri af glæsivillum Arturos í Zihuatanejo í Guererro-héraði. Villan stendur í fallegri hlíð og þaðan er óhindrað út- sýni yfir Kyrrahafið. Sagan á bak við það hvernig Arturo reisti villuna er athyglisverð. Arturo er sagður hafa fengið undirmenn sína, óbreytta lögregluþjóna, í byggingarvinnu við að byggja höllina. Þar sem höllin stendur í töluverðum bratta þurftu lögreglumennirnir að sinna líkam- lega erfiðri vinnu og bera byggingar- efni upp nokkurn bratta. Arturo er sagður hafa haldið fjölmörg teiti í villum sínum þar sem hann bauð vinum og vandamönnum sínum. Það voru ekki bara vinir hans sem héldu þar til því sagan segir að Arturo hafi einnig boðið óvildarmönnum sín- um og haldið þeim föngnum í höll- inni. Þeim sem þorðu að slást – og höfðu betur – við tígrisdýr, sem Arturo hélt í búri í villunni, var sleppt en hinir sem þorðu því ekki – eða töpuðu – sneru ekki lifandi út af lóðinni. Ótrúlegar sögur af stjórnarháttum Þar með er ekki öll sagan sögð því sögur af stjórnarháttum lögreglu- stjórans eru æði skrautlegar. Þannig er hann sagður hafa breytt skrif- stofubyggingu sinni í hálfgert hóru- hús þar sem vændiskonur komu og fóru. Fjárhagur lögreglunnar í í alla bíla Varahlutir Við einföldum líf bíleigandans ÞITT BESTA VAL Í LITUM HANNAH NOTAR LIT 3-65 PALETTE DELUXE NÚ MEÐ LÚXUS OLEO-GOLD ELIXIR GERÐU LIT AÐ LÚXUS FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ* NR. 1 Í EVRÓPU NÝTT LeikvöLLur spiLLta LögregLustjórans n Arturo Durazo Moreno var lögreglu- stjóri í Mexíkóborg n Var besti vinur forsetans sem barn og lét hann um að vinna heimanámið Arturo Fór sínar eigin leiðir í valda- tíð sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.