Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 4.–6. október 20162 Brot af því besta - Kynningarblað Hágæðavörur á allt að helmingsafslætti Rúmgott, Smiðjuvegi 2, Kópavogi E in rótgrónasta rúmaverslun landsins, Rúmgott, Smiðju- vegi 2 í Kópavogi, er með út- sölu núna í september þar sem hægt er að fá valdar há- gæðavörur á allt að 50% afslætti, til dæmis valdar dýnur, svefnsófa og rúmgafla, en allar vörur eru á að minnsta kosti 20–30% afslætti. Rúm- gott á að baki yfir 60 ára sögu og er afar framarlega í hönnun og þróun á rúmdýnum. Septemberútsalan veitir því fólki tækifæri til að eignast einstaklega vandaðar vörur úr þess- um flokki á mjög hagstæðu verði. „Það er 30% afsláttur af öllum rúmum, rafmagnsrúmum og venju- legum rúmum, sem og öllum auka- hlutum og „mjúkum“ vörum. Gildir þetta um alla vöruflokka og jafnt ódýrari rúm sem okkar dýrustu og vönduðustu rúm þar sem dýnurnar eru smíðaðar eftir legugreiningu,“ segir Sigmundur Þór Árnason, versl- unarstjóri í Rúmgott. Fyrirtækið starfar á gömlum og traustum grunni en það var stofnað fyrir 64 árum. „Fyrirtækið hefur hins vegar starf- að í þeirri mynd og á þeim stað sem það er rekið í dag í 17 ár, sem sagt við smíðum dýnur úr öllum efnum og eftir legugreiningu, auk þess að selja ódýrari staðlaðar heilsudýnur og venjulegur dýnur,“ segir Sigmundur. Rúmgott er afar framarlega í þróun, hönnun og framleiðslu á dýn- um og er meðlimur í hinum virtu al- þjóðlegu samtökum ISPA, sem eru samtök rúmdýnuframleiðenda. Sér- staða Rúmgotts liggur í dýnunum, sem eru „einstaklingsmiðaðar“, að sögn Sigmundar: „Við leggjum alltaf höfuðáherslu á dýnuna. Við erum dýnufram- leiðendur og erum í alþjóðasam- bandinu ISPA. Við sérsmíðum dýnur eftir legugreiningum úr öllum dýnu- efnum. Dýnan er það mikilvægasta í rúminu þó að auðvitað skipti þetta allt máli, botninn líka og þetta þarf að vinna rétt saman. En það eru framleiddar dýnur sem hægt er að sofa á einum saman á gólfinu, en enginn getur sofið á rúmbotni ein- um og sér. Við erum líka í raun eina fyrirtækið á landinu sem býð- ur upp á allt – þ.e.a.s. pokagorma, latex, Memory Foam, Cold Foam, hefðbundna gorma (springdýnur) og alla þessa kosti – og erum með einstaklingsmiðaða framleiðslu fyr- ir t.d. fólk sem þolir ekki að sofa á dýnum sem eru smíðaðar bara „einhvern veginn“. Í okkar dýn- um erum við með svokallað „twin- kerfi“ þannig að í tvíbreiðum dýnum fær hvor „sinn hluta“ í dýnunni fyr- ir sínar þarfir varðandi stuðning og stífleika. Dýnan er því þannig gerð að hún henti báðum aðilum sem sofa á henni.“ n Rúmgott er sem fyrr segir að Smiðjuvegi 2 í Kópavogi. Opið er frá 10 til 18 virka daga og 11 til 16 á laugardögum. Búast má við því að margir leggi leið sína í verslunina á næstunni á meðan september útsalan stendur yfir og geri kjarakaup í rúm- um og skyldum vörum. Síminn hjá Rúmgott er 544-2121 og netfang er rumgott@rumgott.is. Heimasíða er rumgott.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.