Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 27
Vikublað 4.–6. október 2016 Skrýtið 23 www.avaxtabillinn.is avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Gómsætir veislubakkar sem lífga upp á allar uppákomur Aðeins á viku á starfsmann Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. Mexíkóborg var rjúk- andi rúst eftir hann og er það ekki síst vegna þess að peningar frá ríkinu fóru beint í vasa hans. Það endaði með því að lögregluþjónar óku um götur borgarinnar á eig- in bílum og þurftu sjálf- ir að leggja út fyrir lög- reglubúningi. Arturo leitaði allra leiða til að bæta eigin fjárhags- stöðu. Bílar voru reglu- lega dregnir burt – jafn- vel þótt þeim hefði verið lagt löglega og Arturo stakk sektargreiðslum í vasann þegar eigendur komu að vitja bifreiða sinna. Í embættistíð Arturos gerðu kólumbískir bankaræningjar bankastofnunum í Mexíkóborg lífið leitt. Lögregla rannsakaði málið og komst að því hverjir voru að verki. En í stað þess að leiða þá fyrir dóm- ara og rétta yfir þeim komst Arturo að samkomulagi við þá um að fá sinn skerf af kökunni – gegn því að þeir héldu áfram að ræna banka. Og um leið og Arturo fékk illan bif- ur á þessu samstarfi lét hann koma mönnunum fyrir kattarnef. Vann heimanámið fyrir forsetann Valdatíð Arturos tók enda árið 1982 þegar kjörtímabili forsetans, Lopez Portillo, lauk. Arturo og Lopez voru æskuvinir en þeir kynntust þegar Arturo, sem var kallaður El Negro, tók að sér að vernda Lopez á skólalóðinni fyrir eineltisseggjum. Viðurnefnið El Negro hlaut Arturo fyrir að veigra ekki fyrir sér að slást við óvini sína og velta sér upp úr drullunni í leiðinni. Í stað- inn fyrir verndina vann Lopez heimavinnuna fyrir Arturo sam- viskusamlega. Þegar Lopez var kjörinn forseti árið 1976 var eitt af hans fyrstu verkum að skipa Arturo, æskuvin sinn, í embætti lögreglu- stjóra Mexíkóborgar. Lopez lét sem kunnugt er af embætti árið 1982 og í kjölfarið ákvað Arturo að flýja enda voru pólitískir andstæðingar farnir að sauma hressilega að honum. Á árunum eftir að Arturo var sak- felldur og dæmdur í fangelsi ákváðu yfirvöld í Mexíkó að opna eins konar minningarvarða um spillingu í landinu í annarri af glæsi villum lögreglustjórans. Örlög hinnar vill- unnar, sem meðfylgjandi myndir eru af, urðu þó önnur og verri. Farið var ránshendi um villuna þar sem flestöllu nýtilegu var stolið. Villan er nú í niðurníðslu og í raun ekkert annað en minnisvarði um svartan blett á sögu Mexíkóborgar. n Glæsileg villa Villa lögreglustjórans í Zihuatanejo var öll hin glæsilegasta. Sögurnar um það hvað gerðist í villunni og hver byggði hana eru ekki eins glæsilegar. Mynd Brian Fey Mynd Brian Fey Spilltur Arturo var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 1986. Honum var sleppt úr haldi af heilsufarsástæðum árið 1992.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.