Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 29
Vikublað 4.–6. október 2016 Menning 25 S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is Eldbakaðar pizzur hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni salur fyrir hópa sími 557 1007 hamborgarar, salöt, pasta, kjúklingavængir og flEira Íslandsbók fyrir börn n Margrét Tryggvadóttir sendir frá sér bók n 50 opnur um einkenni Íslands n linda ólafsdóttir myndskreytir reglur hjá þeim. Ég veit að öllum hlutaðeigandi þótti þetta óskaplega leiðinlegt.“ Spurð hvort hana langi aftur á þing en hún sat á þingi á árunum 2009–2013 fyrir Borgarahreyfinguna og Hreyfinguna segir hún: „Mig langar til að klára ákveðin verkefni og koma á réttlátara og heilbrigðara samfélagi og það eru margar leiðir til að gera það. Það er ekkert heilbrigt við það að sumir arðræni okkur hin. Síðustu ár hef ég verið að skrifa og ég finn að ég er ennþá með í um- ræðunni og mér þykir mjög vænt um það. Ég búin að finna pólitískan vett- vang sem ég vil starfa á, en hvort ég verð einhvern tímann aftur á þingi verður bara að koma í ljós.“ Hún segist hafa ánægju af starfi sínu sem myndritstjóri. „Þetta er fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mig langar líka til að skrifa meira og sinna þýðingum, en ég vann við þær fyrir hrun og fannst það ótrúlega skemmtilegt.“ n Norðurljós Linda Ólafsdóttir myndskreytir Íslandsbókina. Rýnt í Guðrúnu frá Lundi Í ár eru 70 ár frá því að fyrsta bindi skáldsögunnar Dalalífs kom út. Alls urðu bindin fimm og var þar komin lengsta íslenska skáldsagan sem markaði upphaf ritferils skáldkonunnar Guðrúnar Árnadóttur eða Guðrúnar frá Lundi. Á bókmenntakvöldi Bókasafns Sel- tjarnarness í kvöld, þriðjudaginn 4. október kl. 19.30, fjallar Marín Guðrún Hrafnsdóttir bókmennta- fræðingur og langömmubarn Guð- rúnar frá Lundi um rithöfundinn. Farið verður yfir æviferil Guð- rúnar með það að leiðarljósi að gestir fái innsýn í tíðar- anda horfins heims. Um- fjöllunarefni skáldsagna Guðrúnar verða skoðuð og rýnt í viðtökur og vinsæld- ir og reynt að glöggva sig á hvað það er sem geri það að verkum að hún slær enn sölu- og vinsældamet. Aðgangur er ókeypis. n kolbrun@dv.is Guðrún frá Lundi Ekkert lát er á vinsældum bóka hennar. Heiðursgestur hátíðarinnar er Guðrún Helgadóttir og verður loka- dagur hátíðarinnar, sunnudagur- inn 9. október, helgaður henni. Þá spjalla Silja Aðalsteinsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Gunnar Helgason við Guðrúnu um verk hennar og feril og leikin verður tónlist úr leik- sýningunni Sitji guðs englar. Á sama tíma býðst börnum að aðstoða Ævar vísindamann við áhugaverðar og bráðskemmtilegar tilraunir við Nor- ræna húsið. Föstudaginn 7. október er haldið málþing með yfirskriftinni Sjálfs- mynd – heimsmynd og þá ræða ís- lenskir og erlendir höfundar og fræðimenn málefni á borð við notk- un á norrænum goðsagnaarfi í fantasíubókmenntum, heim ung- lingabókmennta í dag, gagnvirkar bókmenntir og jaðarsetta einstak- linga í barnabókum. Daginn eftir verða síðan málstofur um mynd- lýsingar í íslenskum og erlendum barnabókum og stöðu teiknara og útgefenda myndlýstra bóka á Ís- landi. Dagskrána í heild má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar www.myr- in.is. n kolbrun@dv.is Guðrún Helgadóttir Lokadagur hátíðar- innar er helgaður henni. MyNd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.