Fréttablaðið - 24.02.2017, Page 30
Þórdís æfði fimleika hjá
Gerplu frá átta ára til sautj-
án ára aldurs en hætti sökum
meiðsla í baki. Hún var í
sjúkraþjálfun um tíma en
haustið 2014 langaði hana að
fara að æfa á ný. „Mig langaði
prófa eitthvað nýtt og fór í pole
fitness. Í lok námskeiðsins var
boðið upp á prufutíma í Lyru, sem
er kennd á sama stað. Ég hafði enga
hugmynd um hvað það var en heill-
aðist strax. Í kjölfarið skipti ég yfir í
Lyru og hef æft hana síðan.“
Með tímanum fór Þórdís að hlaupa
í skarðið fyrir Lyru-kennarann sinn
og í febrúar í fyrra var hún beðin
um að taka að sér hluta kennslunn-
ar. Þórdís, sem er á tuttugasta ald-
ursári, segir gaman að fá tækifæri
til að starfa við sitt helsta áhugamál
„Mér finnst líka mjög skemmtilegt
að geta miðlað af reynslu minni til
annarra og sjá nemendur taka fram-
förum.“
Lyra er í raun loftfimleikar þar
sem iðkendur gera æfingar og kúnst-
ir í misstórum hringjum sem hanga
í loftinu. Kúnstirnar er svo hægt að
tengja saman í rútínu eða eins konar
dans. Byrjendur þurfa að sögn Þór-
dísar hvorki að búa yfir liðleika né
styrk og æfingarnar henta fólki á
öllum aldri. „Styrkurinn er hins
vegar fljótur að koma og flestir finna
mikinn mun á sér strax eftir fyrsta
námskeið, enda talsvert átak að kom-
ast upp í hringina, halda sér þar og
gera kúnstir. Ég myndi því segja að
þetta væri mjög góð líkamsrækt,“
segir Þórdís.
Helsti kostur Lyru er að sögn Þór-
dísar hversu hratt iðkendur byggja
upp styrk. „Fólk finnur oft mun á sér
á milli
tveggja
tíma. Hún segir
iðkendum stundum
finnast óyfirstíganlegt
að ná tilteknu „trikki“ en
fimm æfingum síðar er
það komið. „Íþróttin reyn-
ir á alla vöðva líkamans án
þess að fólk sé að spá í það sér-
staklega og allt í einu eru það komið
með þann styrk sem þarf.“
Þórdís segir Lyru fyrir alla,
konur jafnt sem karla. Hún segir
iðkendur með mjög mismunandi
bakgrunn. Sumir hafa verið mikið í
íþróttum og aðrir ekki. „Ég hef bæði
verið með stráka og stelpur og fólk
upp í fimmtugt sem hefur náð svaka-
legum árangri.“
En er þetta hættuleg íþrótt? „Nei,
ég myndi ekki segja að þetta væri
hættulegra en annað. Auðvitað er
hægt
að slas-
ast í Lyru
ei ns og
öðru en það er
mjög sjaldgæft
að iðkendur
detti úr hringj-
unum. Þeir
byggja upp get-
una jafnt og þétt
og hafa náð upp
nauðsynlegum
styrk og liðleika
þegar þeir eru
farnir að komast
upp í hringina með
auðveldum hætti.
Þeir gera svo ekki
erfiðari kúnstir en
líkaminn ræður við
hverju sinni.
Sjálfri finnst Þórdísi skemmti-
legast að læra nýjar kúnstir, tengja
saman í skemmtilega rútínu og sýna,
en reglulega eru haldnar sýningar í
Eríal Pole. „Einu sinni tók ég líka
þátt í Great Gatsby sýningu í Gamla
bíói sem var mjög skemmtilegt.“ Hún
segir erfiðara en margur heldur að
sýna fimm mínútna rútínu en alltaf
jafn gaman.
Þórdís er í MR og stefnir á að út-
skrifast af náttúrufræðibraut 1 í vor.
Hún stefnir á háskólanám og hefur
mestan áhuga á líffræði. „Ég er þó
ekki búin að ákveða neitt og ætla að
byrja á fara í heimsreisu með kær-
astanum mínum. Ég ætla svo að sjálf-
sögðu að halda áfram að sinna Lyr-
unni enda með því skemmtilegra sem
ég geri.“
Krishna Das hefur
fært jógatónlistina út
úr jógasölunum og inn
í tónlistarhallirnar og
er orðinn þekktur sem
rokkstjarna jóganna.
Hann mun spila í Hörpu
þann 21. júní nk.
Þórdísi finnst skemmtilegast að læra nýjar kúnstir, tengja saman í rútínu og sýna.
MYND/NiNa ReeD
Þórdísi finnst gaman að miðla af reynslu sinni og
sjá nemendur taka framförum. MYND/stefáM
styrkurinn
kemur fljótt
Þórdís Daníelsdóttir kennir Lyru eða
loftfimleika hjá Eríal Pole. Hún var
sjálf að æfa Lyru en leiddist út
í kennslu og finnst frábært
að geta starfað við áhuga-
málið. Hún segir iðkendur
öðlast mikinn styrk sam-
hliða því að læra alls
kyns kúnstir og að
margir finni mun á
milli tíma.
Vera
einarsdóttir
vera@365.is
Æfingarnar henta fólki á öllum aldri og iðkendur
hafa mismunandi bakgrunn. MYND/stefáM
MYND/MaRÍNÓ fLÓVeNt
Krishna Das hefur fært jógatónlist-
ina út úr jógasölunum og inn í tónlist-
arhallirnar og er orðinn þekktur sem
rokkstjarna jóganna. Marga hefur
lengi dreymt um að fara á tónleika
með honum og nú gefst tækifærið því
Krishna Das hefur ákveðið að koma
til Íslands á tónleikaferð sinni Kirt-
an Wallah Europe Tour 2017.
Kirtan Wallah þýðir sá sem kyrj-
ar eða „the one who chants“.
Krishna Das var nemandi and-
lega kennarans Ram Dass og hitti svo
meistarann sinn, Neem Karoli Baba
eða Maharaj-ji, á Indlandi þegar
hann var ungur maður. Maharaj-ji
sagði honum að fara aftur til Am-
eríku og þjóna fólki og Krishna Das
fann leiðina til þjónustu í gegnum
tónlistina. Möntrurnar hans snerta
innsta streng í hjarta hlustandans og
áhrifin verða enn sterkari við það að
syngja eða kyrja með honum.
Krishna Das spilar á harmóníum
og með honum er slagverksleikarinn
Arjun. Miðasala er hafin á harpa.is
og tix.is. Í boði er að sitja í sæti eða á
eigin púða á gólfinu.
Rokkstjarna jóganna – Krishna Das
Krishna Das heldur kritan-tónleika í Norðurljósasal Hörpu á sumarsólstöðum þann 21. júní.
Krishna Das heldur kritan-tónleika í
Norðurljósasal Hörpu 21. júní.
HeiLsa og feguRð Kynningarblað
24. febrúar 20174
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-5
0
A
4
1
D
1
3
-4
F
6
8
1
D
1
3
-4
E
2
C
1
D
1
3
-4
C
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K