Fréttablaðið - 24.02.2017, Side 40
„Við tókum þátt í fyrsta sinn í fyrra
og vorum þá alveg glænýtt veitinga
hús. Það var ekki spurning um að
taka aftur þátt í ár enda er Food
and Fun mjög skemmtilegt fram
tak og brýtur upp það sem við erum
að gera dagsdaglega,“ segir Mar
grét Ríkharðsdóttir, yfirkokkur á
Bryggjunni Brugghúsi við höfnina
í Reykjavík. „Í fyrra fengum við
kokk frá Svíþjóð en í ár förum við
í allt aðra átt en við fáum kokk frá
suðurríkjum Bandaríkjanna, Louis
iana,“ upplýsir Margrét og er spennt
fyrir komu Nathans Richard sem
er yfirkokkur á Kingfish Kitchen &
Cocktails í New Orleans.
„Við höfum verið að vinna með
honum að matseðlinum sem verð
ur í boði frá miðvikudegi og fram
á sunnudag í næstu viku. Þar verð
ur boðið upp á skemmtilega blöndu
af íslensku hráefni í suðurríkjabún
ingi,“ segir Margrét en Richard
hefur mikla ástríðu fyrir pylsugerð
og kjötiðn sem hann lærði af bestu
slátrurum Evrópu í Frakklandi og
á Ítalíu. Þessa ástríðu verður vel
hægt að merkja á Food and Fun
matseðli Bryggjunnar en þar má
finna nokkra af uppáhaldsréttum
Richards á borð við tassoskinku
og andouillepylsu.
„Nathan Richard mun vinna
töluvert með íslenskt hráefni í upp
skriftunum. Til dæmis mun hann
nota hrossakjöt í staðinn fyrir
krókódílakjöt í einn réttinn og svo
mun hann vinna töluvert með gæs,“
segir Margrét, en hann mun þó
sjálfur koma með humar frá Louisi
ana, svokallaðan crawfish.
„Það er mjög skemmtilegt fyrir
okkur að stokka upp starfið þessa
daga sem Food and Fun stendur
yfir enda rosalega gott fyrir alla að
breyta til. Það er gaman að fá fersk
an mann inn sem allir geta lært af
og frábært fyrir nemana okkar
að vinna með manni sem kemur
að utan og er með allt aðra nálg
un en við. Þá kunna gestir okkar
líka að meta að fá að prófa nýja og
skemmtilega rétti,“ segir Margrét
og telur fullvíst að matseðill Bryggj
unnar þessa vikuna sé töluvert
öðruvísi en á öðrum veitingastöð
um sem taka þátt í Food and Fun.
Íslenskt Í suðurrÍkjastÍl
Eldhús Suðurríkja Bandaríkjanna mætir íslenskum hráefnum á Bryggjunni Brugghúsi á Food and Fun í næstu viku.
Gestakokkurinn er Nathan Richard, yfirkokkur Kingfish Kitchen & Cocktails í New Orleans.
Matar og skemmtihátíðin Food
and Fun er orðinn ómissandi við
burður á hverjum vetri þegar sól
tekur að hækka á lofti. Erlendir
gestakokkar sjá um að gæla við
bragðlauka borgarbúa á betri veit
ingahúsum borgarinnar þar sem
fjögurra rétta máltíð fæst á sama
verði á hverjum stað.
Halldór hefur séð um að teikna
auglýsingaefni tengt hátíðinni en
segist aðeins vera leikmaður þegar
kemur að matreiðslu. Honum
finnst þó fátt betra en að njóta
góðs matar og segir Food and Fun
kærkomið tækifæri til að smakka
nýja rétti. „Þetta er virkilega
góður kostur, ekki síst ef maður
er heppinn, þá getur maður feng
ið ótrúlega flotta máltíð á sann
gjörnu verði. Það er eins og að
detta í lukkupottinn að fá fyrsta
flokks kokk til að elda. Margir
þeirra leggja mjög mikinn metn
að í þetta og matseðillinn getur
verið afar metnaðarfullur. Ég hef
smakkað ótrúlegasta mat þarna,“
segir Halldór.
Oft er matreiðslan á Food and
Fun óhefðbundin og ólík því sem
við eigum að venjast. „Yfirleitt er
þó um að ræða mjög fínan mat.
Mér finnst áberandi að kokkarn
ir eru spenntir fyrir íslensku hrá
efni og matreiða það á nýstárlegan
hátt sem tengist þeirra pælingum
í matreiðslu. Þeir taka eitthvað ís
lenskt og hefja upp í hæðir sem við
erum ekki vön.“
Halldór er sannfærður um að
Food and Fun hafi jákvæð áhrif á
íslenska matarmenningu. „Þetta
hlýtur að veita öðrum innblástur
og skilja eitthvað eftir,“ segir hann
og bætir við að sér finnist hátíð
in lífga upp á borgina. „Það er svo
mikil gleði í kringum hana og lagt
upp úr að þetta sé skemmtilegt.
Reykjavík verður dálítið djass
aðri á meðan Food and Fun stend
ur yfir.“
Dettur stunDum Í lukkupottinn
Halldór Baldursson teiknari hefur verið svo heppinn að undanfarin ár hefur hann átt þess kost að njóta ljúffengra
veitinga á Food and Fun hátíðinni. Hann telur hátíðina setja skemmtilegan svip á borgina á meðan hún stendur yfir.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Þeir taka eitthvað íslenskt og hefja upp í hæðir sem við erum ekki vön,“ segir Halldór um erlendu kokkana.
Bryggjan Brugghús stendur við höfnina og útsýnið þaðan er afar skemmtilegt.
Skemmtileg stemning er á Bryggjunni Brugghúsi.Á Bryggjunni er bruggaður bjór.
Margrét Ríharðsdóttir, yfirkokkur á
Bryggjunni Brugghúsi.
FooD & Fun matseðill
Lystauki / Amuse Bouche
Fyllt „beignet“ með
Louisiana-humri
Gouda pimento, „comeback“
sósu, kjarnaldins-sykri
Hrossa- & gæsa-gumbo
Hrossa-andouille pylsa,
gæsabringa, hrísgrjón
Gnarly head authentic red
Rauðbauna- og hrísgrjóna-
hjúpuð hörpuskel
Beikon, vorgræna, kex
Finca Las Moras Pinot Grigio
Humar og korn
Humar, korn, „grillade“-sósa,
reykt Tasso-skinka
Zorzal Terroir Unico
Chardonnay
Hægeldað lamb
Lambaskanki, rótargrænmeti,
kornbrauðs-dumplings
Portia Prima Ribera Del Duero
Í lokin / In the end
„Banana’s Foster“ Brauðbaka
með pekan-pralín-sósu
Hardy Pineau des Charantes
Matseðill / Menu 8.500 kr.
Með völdum vínum / With
selected wines 17.000 kr.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r8 f ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ i ∙ l í f S S T í l l
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-7
D
1
4
1
D
1
3
-7
B
D
8
1
D
1
3
-7
A
9
C
1
D
1
3
-7
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K