Fréttablaðið - 24.02.2017, Síða 56

Fréttablaðið - 24.02.2017, Síða 56
Þegar arpanet var búið til í kringum 1960 grunaði engan að Þar með væri kominn grundvöllur fyrir #Saltbae. Í þætti Dr. Phil gerast oft undarlegir hlutir. NORDICPHOTOS/GETTY Salt bae hefur heillað fólk með því að salta steikur ákaflega töffaralega. NORDICPHOTOS/GETTY Strákarnir í Migos gerðu allt vitlaust með laginu Look at my dab. NORDICPHOTOS/GETTY Hér höfum við frasa sem hefur ratað víða í óendanlegu landslagi internetsins. Hann má finna á hlægi- legum myndum, í kommentakerfum og status-færslum á Facebook. Sanna merkingu hans þekkja aðeins örfáir útvaldir aðilar og því er vert að staldra við frasa þennan. Uppruni: Frasi þessi á uppruna sinn í Dr. Phil en þar var hin þrettán ára Danielle Bregoli gestur þáttarins ásamt móður sinni. Vandamálið sem þær mæðgurnar voru mættar til doktorsins með var það að Danielle er gjörsamlega stjórnlaust barn og móðir hennar algjörlega búin að fá nóg. Danielle vildi halda því fram að mamma hennar gerði „hvað sem er til að koma í veg fyrir að hún gerði skemmtilega hluti“. Sem sagt, mjög eðlilegt vandamál í lífi unglinga og aðstandenda þeirra. Áhorfendur voru Danielle hins vegar ekki að skapi og þá segir hún meðal annars þennan umrædda frasa. Merking: Þessi frasi, eins og móðir hennar raunar útskýrir fyrir Dr. Phil, þýðir í raun „hittumst úti því að ég ætla að ganga í skrokk á ykkur“. Meginástæðan fyrir því að þetta er fyndið og minnisstætt (en Danielle kallar áhorfendur til dæmis „hoes“ áður en hún segir hin ódauðlegu orð sem við ræðum hér, en það orð verður ekki þýtt hér) er líklega hreimurinn og „attitjúdið“ sem Dani- elle segir hann með. Áhorfendur og netverjar höfðu svo gaman af að nú er Danielle orðin fræg. Blaðamaður mælir með að fara á YouTube og leita myndbandið uppi; sjón er sögu ríkari. Niðurstaða: Unglingar með stæla er klassískt grín og fólk þarf að passa upp á hvað það segir og gerir í sjón- varpinu. Danssporið sem þú kannast við því að barnið þitt gerir það nánast stanslaust þér til mikils ama. Fyrir þá sem hafa lifað í helli síðasta árið þá felst það í að drjúpa höfði ofan í Í ranghölum internetsins er margt um skrítin og, fyrir marga, óskiljan- leg fyrirbæri. Það eru fáir tilbúnir að sökkva sér jafn djúpt og blaða- maður í myrkustu króka vefsins, en það gerir undirritaður einungis til að þjónusta lesendur blaðsins og hlýtur oft fyrir vikið djúp sár á sálina. Hér verða tekin fyrir nokkur fyrirbrigði sem eru eða hafa verið áberandi upp á síðkastið – en það má gefa sér að mörg af þeim verði orðin útrunnin eins og fréttir gær- dagsins þegar blaðið kemur ylvolgt og ilmandi úr prentun, enda líður tíminn hratt á internet-öld. Lífið rannsakar hér og útskýrir örfá af aragrúa fyrirbæra sem fæðast og deyja á internetinu. Við munum reyna að útskýra uppruna þeirra, hvað þau merkja og hvernig þau eru notuð auk þess sem reynt verður að fá ein- hvern botn í þetta allt saman. internetsins Stefán þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is Kokkur stendur utandyra með sólgleraugu og grípur þéttingsfast en samt á mjög hugulsaman hátt í stærðarinnar kjötstykki sem er allt löðrandi í olíu, hann sker í það með nákvæmni skurðlæknis, fjarlægir kjötið af beininu sem er á stærð við kylfu hellisbúa í teiknimynd og eftir að hann hefur skorið það í sneiðar lætur hann salti rigna yfir það úr mikilli hæð – Salt bae! Uppruni: Salt bae er gælunafn tyrkneska kokksins Nusret Gökçe sem er vægast sagt fáránlega töff náungi. Upphaflega vakti hann athygli fyrir myndband þar sem hann sker og saltar steikur á ansi sérstakan (og töff) máta. Hann sem sagt sleppir saltinu úr mikilli hæð yfir kjötinu og heldur handleggnum þannig að áður en saltið lendir á kjötinu rennur það fram af olnbog- anum á honum. Merking: Það er erfitt að finna merkingu í manneskju – en gælu- nafnið Salt bae kemur frá þessum sértaka stíl sem Nusret beitir þegar hann saltar kjöt og orðinu bae – afbrigði af „baby“ eða „elskan“ eins og er kannski auðveldast að útleggja það á íslenskunni. „Salt hjartaknúsarinn“ væri kannski best að kalla þennan drullutöff kokk. Niðurstaða: Að reyna að sjá fyrir hverslags fyrirbæri verða „víral“ er nánast ómögulegt og ef það er einhver þarna úti sem hefur hugsað með sér „tyrkneskur kokkur sem saltar steikur undarlega“ sem svar við spurningunni um hvað verði næst vinsælt á internetinu, þá bara – er það alveg ótrúlegt. Salt bae CaSh me ouSSide / howbow dah Skúmaskot aðra höndina sem „dabarinn“ lætur standa beint út í 90° horni við líkamann – sumir vilja beina hinum handleggnum þráðbeint upp í loft á meðan, en það er ekki algilt. Uppruni: Dansspor þetta kemur frá bandarísku borginni Atlanta þar sem menn hafa verið að dabba síðan 2013. Nokkrir rapparar frá þessari sömu borg hafa síðan minnst á það í lögum, til að mynda gerðu strákarnir í Migos lagið Look at my dab sem varð vinsælt og fór víða. Íþróttamenn – fyrst í amerískum fótbolta og svo í evrópskum fótbolta tóku þetta upp á sína arma (bókstaflega, hehe) og þaðan barst það til unglinganna okkar. Foreldrar landsins hljóta að þakka þeim fyrir það. Merking: Tja, merkja dansspor eitt- hvað? Jú, auðvitað er um persónu- lega tjáningu að ræða og má líta svo á að sá sem dansar sé í raun að hrópa „ég er á lífi, sjáið mig!“ út í kosmósið. Niðurstaða: Unglingar elska íþróttamenn, dansspor og að vera foreldrum sínum til ama. Elsta saga veraldar. the dab Caffesso Nespresso kaffilíNaN fæst í Nettó 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r32 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð Lífið 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 3 -7 3 3 4 1 D 1 3 -7 1 F 8 1 D 1 3 -7 0 B C 1 D 1 3 -6 F 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 3 2 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.