Fréttablaðið - 24.02.2017, Qupperneq 56
Þegar arpanet var
búið til í kringum 1960
grunaði engan að Þar með
væri kominn grundvöllur
fyrir #Saltbae.
Í þætti Dr. Phil gerast oft undarlegir
hlutir. NORDICPHOTOS/GETTY
Salt bae hefur heillað fólk með því að salta steikur ákaflega töffaralega. NORDICPHOTOS/GETTY
Strákarnir í Migos gerðu allt vitlaust
með laginu Look at my dab.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hér höfum við frasa sem hefur
ratað víða í óendanlegu landslagi
internetsins. Hann má finna á hlægi-
legum myndum, í kommentakerfum
og status-færslum á Facebook.
Sanna merkingu hans þekkja aðeins
örfáir útvaldir aðilar og því er vert að
staldra við frasa þennan.
Uppruni: Frasi þessi á uppruna sinn
í Dr. Phil en þar var hin þrettán ára
Danielle Bregoli gestur þáttarins
ásamt móður sinni. Vandamálið
sem þær mæðgurnar voru mættar til
doktorsins með var það að Danielle
er gjörsamlega stjórnlaust barn og
móðir hennar algjörlega búin að fá
nóg. Danielle vildi halda því fram að
mamma hennar gerði „hvað sem er
til að koma í veg fyrir að hún gerði
skemmtilega hluti“. Sem sagt, mjög
eðlilegt vandamál í lífi unglinga og
aðstandenda þeirra. Áhorfendur
voru Danielle hins vegar ekki að
skapi og þá segir hún meðal annars
þennan umrædda frasa.
Merking: Þessi frasi, eins og móðir
hennar raunar útskýrir fyrir Dr. Phil,
þýðir í raun „hittumst úti því að
ég ætla að ganga í skrokk á ykkur“.
Meginástæðan fyrir því að þetta er
fyndið og minnisstætt (en Danielle
kallar áhorfendur til dæmis „hoes“
áður en hún segir hin ódauðlegu
orð sem við ræðum hér, en það
orð verður ekki þýtt hér) er líklega
hreimurinn og „attitjúdið“ sem Dani-
elle segir hann með. Áhorfendur og
netverjar höfðu svo gaman af að nú
er Danielle orðin fræg. Blaðamaður
mælir með að fara á YouTube og leita
myndbandið uppi; sjón er sögu ríkari.
Niðurstaða: Unglingar með stæla er
klassískt grín og fólk þarf að passa
upp á hvað það segir og gerir í sjón-
varpinu.
Danssporið sem þú kannast við
því að barnið þitt gerir það nánast
stanslaust þér til mikils ama. Fyrir
þá sem hafa lifað í helli síðasta árið
þá felst það í að drjúpa höfði ofan í
Í ranghölum internetsins er margt
um skrítin og, fyrir marga, óskiljan-
leg fyrirbæri. Það eru fáir tilbúnir
að sökkva sér jafn djúpt og blaða-
maður í myrkustu króka vefsins,
en það gerir undirritaður einungis
til að þjónusta lesendur blaðsins
og hlýtur oft fyrir vikið djúp sár á
sálina. Hér verða tekin fyrir nokkur
fyrirbrigði sem eru eða hafa verið
áberandi upp á síðkastið – en það
má gefa sér að mörg af þeim verði
orðin útrunnin eins og fréttir gær-
dagsins þegar blaðið kemur ylvolgt
og ilmandi úr prentun, enda líður
tíminn hratt á internet-öld.
Lífið rannsakar hér
og útskýrir örfá af
aragrúa fyrirbæra
sem fæðast og deyja
á internetinu. Við
munum reyna að
útskýra uppruna
þeirra, hvað þau
merkja og hvernig
þau eru notuð auk
þess sem reynt
verður að fá ein-
hvern botn í þetta
allt saman.
internetsins
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Kokkur stendur utandyra með
sólgleraugu og grípur þéttingsfast
en samt á mjög hugulsaman hátt í
stærðarinnar kjötstykki sem er allt
löðrandi í olíu, hann sker í það með
nákvæmni skurðlæknis, fjarlægir
kjötið af beininu sem er á stærð við
kylfu hellisbúa í teiknimynd og eftir
að hann hefur skorið það í sneiðar
lætur hann salti rigna yfir það úr
mikilli hæð – Salt bae!
Uppruni: Salt bae er gælunafn
tyrkneska kokksins Nusret Gökçe
sem er vægast sagt fáránlega töff
náungi. Upphaflega vakti hann
athygli fyrir myndband þar sem
hann sker og saltar steikur á ansi
sérstakan (og töff) máta. Hann sem
sagt sleppir saltinu úr mikilli hæð
yfir kjötinu og heldur handleggnum
þannig að áður en saltið lendir á
kjötinu rennur það fram af olnbog-
anum á honum.
Merking: Það er erfitt að finna
merkingu í manneskju – en gælu-
nafnið Salt bae kemur frá þessum
sértaka stíl sem Nusret beitir þegar
hann saltar kjöt og orðinu bae –
afbrigði af „baby“ eða „elskan“
eins og er kannski auðveldast að
útleggja það á íslenskunni. „Salt
hjartaknúsarinn“ væri kannski best
að kalla þennan drullutöff kokk.
Niðurstaða: Að reyna að sjá fyrir
hverslags fyrirbæri verða „víral“
er nánast ómögulegt og ef það er
einhver þarna úti sem hefur hugsað
með sér „tyrkneskur kokkur sem
saltar steikur undarlega“ sem svar
við spurningunni um hvað verði
næst vinsælt á internetinu, þá bara
– er það alveg ótrúlegt.
Salt bae
CaSh me ouSSide / howbow dah
Skúmaskot
aðra höndina sem „dabarinn“
lætur standa beint út í 90° horni við
líkamann – sumir vilja beina hinum
handleggnum þráðbeint upp í loft á
meðan, en það er ekki algilt.
Uppruni: Dansspor þetta kemur frá
bandarísku borginni Atlanta þar sem
menn hafa verið að dabba síðan
2013. Nokkrir rapparar frá þessari
sömu borg hafa síðan minnst á það í
lögum, til að mynda gerðu strákarnir
í Migos lagið Look at my dab sem
varð vinsælt og fór víða. Íþróttamenn
– fyrst í amerískum fótbolta og svo
í evrópskum fótbolta tóku þetta
upp á sína arma (bókstaflega, hehe)
og þaðan barst það til unglinganna
okkar. Foreldrar landsins hljóta að
þakka þeim fyrir það.
Merking: Tja, merkja dansspor eitt-
hvað? Jú, auðvitað er um persónu-
lega tjáningu að ræða og má líta svo
á að sá sem dansar sé í raun að hrópa
„ég er á lífi, sjáið mig!“ út í kosmósið.
Niðurstaða: Unglingar elska
íþróttamenn, dansspor og að vera
foreldrum sínum til ama. Elsta saga
veraldar.
the dab
Caffesso
Nespresso
kaffilíNaN
fæst í Nettó
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r32 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð
Lífið
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-7
3
3
4
1
D
1
3
-7
1
F
8
1
D
1
3
-7
0
B
C
1
D
1
3
-6
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K