Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 4

Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 4
Makita rafhlöðugarðverkfærin eru ýmist fyrir eina eða tvær 18 v rafhlöður – sömu rafhlöður og eru í öðrum Makita 18 v rafhlöðuverk færum – og þeim fylgir hraðhleðslutæki. Makita rafhlöðuverkfærin er þekkt fyrir gæði og endingu. Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum l Hekkklippur l Keðjusagir l Sláttuorf l Grasklippur l Greinaklippur l Blásarar RAFHLÖÐUGARÐVERKFÆRI ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Viðskipti  Fasteignasalar sem Frétta­ blaðið ræddi við eru sammála um að finna fyrir hægari hækkun fast­ eignaverðs  undanfarnar  vikur. Opinberar tölur sína þó ekki kólnun á markaðnum. „Við sjáum ekkert út frá opin­ berum veltutölum um kaupsamn­ inga sem gefa til kynna kólnun á markaðnum. En það gæti verið að það eigi eftir að koma fram. Það hafa verið það miklar verðhækkanir að undanförnu að það er eðlilegt að þær haldi ekki áfram með sama hraða,“ segir Una Jónsdóttir, hag­ fræðingur hjá Íbúðalánasjóði. „En yfirlýsingar um að verðtoppi sé náð, hvort sem þær eru réttar eða ekki, hafa áhrif á væntingar á markaði. Það getur leitt til þess að framboð eykst ef  fólk sem hefur setið á íbúðum sínum sér hag sinn í því að bjóða þær íbúðir fram núna. Á sama tíma gæti eftirspurnin hægt á sér því margir voru að drífa sig að kaupa áður en toppnum yrði náð. En þetta er eitthvað sem við eigum eftir að sjá hvort gerist,“ segir Una. Ingibjörg Þórðardóttir, fasteigna­ sali og fyrrverandi formaður Félags fasteignasala, segir að skjálfti hafi komið á markaðinn upp úr áramót­ um þegar rosalegum hækkunum var spáð á fasteignaverði.  „Fólk var að drífa sig að kaupa og verða á undan verðhækkunum. Svo hefur þetta róast aftur og það hefur verið minna framboð.“ Hún telur að einhverjir hafi beðið með að setja eignir á markað vegna hækkanna. Hún bendir þó á að nú  hægist um á markaði fram yfir verslunar­ mannahelgi. Fólk sé í fríi og að hugsa um annað en fasteignakaup. „Þetta er mín upplifun að mark­ aðurinn sé að róast og ég segi bara sem betur fer. Þetta var orðið stress­ ástand á markaðnum. Þetta var tímabundið ástand og mér finnst það hafa jafnað sig," segir Ingibjörg. saeunn@frettabladid.is Jafnvægi að nást á markaði Vísbendingar eru um að nú hægi á hækkunum á fasteignamarkaðinum hér á landi. Fyrrverandi formaður Félags fasteignasala telur að sveitarfélögin muni koma með húsnæðismálaútspil í aðdraganda kosninga. Ingibjörg Þórð- ardóttir bendir á að margar nýbyggingar séu í vændum. FréttablaðIð/GVa Kosningar hafi áhrif á markaðinn Ingibjörg bendir á að það eru margar nýbyggingar í undirbúningi sem hafi áhrif á fasteignaverð, einnig hafi húsnæðisstefna sveitarfélaganna það líka. „Í ljósi þess að það styttist í kosningar verða þau að vera með eitthvað útspil og koma með lóðir og stefnur í þessum húsnæðismálum. Það verður að byggja í úthverfum eins og alls staðar er gert því þar eru ódýrari lóðir. Þetta er lögmál hvar sem þú ert staddur í heiminum." „Það að byggja áfram í Úlfarsárdalnum til dæmis er mjög gott og gefur kannski þeim sem vilja reyna að komast inn á markaðinn tækifæri. Þegar framboðið eykst þá næst meira jafnvægi milli kaupenda og seljanda. Reykjavík, stærsta sveitarfélagið, hefur verið eftirbátur hinna sveitar- félaganna, en nú eru þeir loksins að hysja upp um sig buxurnar." ReykjaVíkuRboRg  Hækkun leigu­ verðs Félagsbústaða tekur gildi þann 1. ágúst næstkomandi. Hækkunin á leigu hjá Félagsbústöðum er fimm prósent en sértækur húsnæðis­ stuðningur hjá Reykjavík hækkar á sama tíma, mismunandi mikið eftir einstaklingum, þannig að til samans leiða þessar breytingar til þess að greiðslubyrði leigutaka hjá Félags­ bústöðum helst að jafnaði óbreytt. Félagsbústaðir voru reknir með miklum hagnaði á síðasta ári, en hann má að langstærstum hluta rekja til hækkunar á fasteignaverði. Ekki stendur til að innleysa þennan hagnað með sölu eigna eða aukinni skuldsetningu. Stefna Félagsbústaða er að fjölga íbúðum og mæta þannig þeirri miklu eftirspurn sem er eftir húsnæði hjá félaginu. – sg Leiga íbúða hækkar um fimm prósent HeilbRigðismál  „Mér finnst ekki spurning að eigi að prófa sykur­ skattinn aftur á Íslandi. Það er líka mjög mikilvægt að það sé gert í ljósi þeirra staðreynda sem blasa við um tengda sjúkdóma og annað,“ segir Guðrúnar Magnúsdóttur hjúkrunarfræðings. Hún skrifaði meistararitgerð í lýðheilsufræðum við læknadeild Háskóla Íslands sem ber titilinn Skattlagning og niður­ greiðsla matvæla – Áhrif á neyslu­ hegðun. Um er að ræða kerfisbundið yfir­ lit (e. systematic review) á öðrum rannsóknum sem hafa verið gerðar um skattlagningu og niðurgreiðslu matvæla. Yfirlitið bendir til þess að breytingar á matvælaverði hafi álíka áhrif á hlutfallslega neyslu þeirra matvæla hvort sem skattlagningu og/eða niðurgreiðslu er beitt. Hins vegar þurfa verðbreytingar að nema að lágmarki fimmtán til tutt­ ugu prósentum svo það skili sér í breyttri neysluhegðun. Þá benda niðurstöður einnig til þess að því meiri sem verðbreyt­ ingin er því líklegra er að það hafi áhrif á neysluhegðun. Niðurgreiðsla hollra matvæla hefur jákvæð áhrif á kauphegðun. Guðrún segir ástæðu þess að hún hafi rannsakað þetta viðfangsefni vera að hún hafi mikinn áhuga á lýðheilsu og hvernig þetta tengist ójöfnuði í samfélaginu. „Þeir sem eru tekjumeiri kaupa hollari mat en þeir sem hafa minna milli handanna. Þetta tengist kannski frekar ójöfnuði en ein­ hverju öðru.“ Að mati Guðrúnar er þörf á frek­ ari rannsóknum á Íslandi og ann­ ars staðar á þessu. „Helst einhverjar íhlutandi slembirannsóknir til að fá marktækari niðurstöður og sjá hvort þetta hafi áhrif almennilega, en það bendir allt til þess,“ segir Guðrún. Hún telur að þörf sé á að láta reyna á sykurskatt aftur hér á landi. „Í fyrsta lagi var sykurskatturinn bara í ár og framleiðendur og birgjar voru búnir að kaupa mjög mikinn sykur fyrirfram, þannig að þetta bitnaði eiginlega ekki á framleið­ endum og þetta hafði ekki áhrif á neytendur því þeir skattlögðu of lágt. En þetta skilaði næstum millj­ arði til ríkisins.“ Guðrún telur að til framtíðar mætti skattleggja sykruð matvæli, sem og önnur óholl matvæli, og nýta fjármagnið til að niðurgreiða holl matvæli, til dæmis grænmeti og ávexti, og fræða neytendur. – sg Mikilvægt að láta reyna aftur á sykurskattinn hér á landi Guðrún Magnús- dóttir hjúkrunar- fræðingur efnaHagsmál Evrópski seðlabank­ inn spáir auknum hagvexti á evru­ svæðinu á nætu misserum, en hefur þó ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. BBC greinir frá því að bankastjóri bankans, Ítalinn Mario Draghi, hafi gefið í skyn að ekki væri ástæða til að lækka stýrivexti meira í náinni framtíð. Seðlabankinn spáir 1,9 prósenta hagvexti á evrusvæðinu árið 2017, en í mars var því spáð að vöxturinn myndi nema 1,8 prósentum. Evrópski seðlabankinn hækkaði einnig hagvaxtarspá sína fyrir næsta ár úr 1,7 prósentum í 1,8 prósent og spáir 1,7 prósenta hagvexti árið 2019. – sg Spá meiri hagvexti á evrusvæðinu Það hafa verið það miklar verðhækk- anir að undanförnu að það er eðlilegt að þær haldi ekki áfram með sama hraða Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá ÍLS 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 m á n u D a g u R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -3 0 8 0 1 D 0 E -2 F 4 4 1 D 0 E -2 E 0 8 1 D 0 E -2 C C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.