Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.06.2017, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 12.06.2017, Qupperneq 6
UP!ÍLOFT Við látum framtíðina rætast. he kl a. is /u p Nýr up! frá aðeins 1.790.000 kr. www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! Þú getur treyst á TUDOR NEYTENDUR Útboðsgjald, sem inn- flutningsfyrirtæki þurfa að greiða fyrir tollfrjálsan innflutning á búvörum frá löndum ESB, hækk- aði í flestum tilfellum milli útboða. Kvótinn er nú í fyrsta sinn boðinn út tvisvar á ári í stað einu sinni. Tilboð fyrir fyrri hluta ársins voru opnuð í janúar og kom þá í ljós að verð hækkaði um allt að 87 prósent. Við það tilefni sagði Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda (FA), að félagið hefði varað við því að gjaldið myndi hækka. Þá spáði hann því að það myndi hækka áfram samhliða aukinni eftirspurn sem fylgir fjölgun ferðamanna. Útboðsgjald vegna nautakjöts hækkar um tæplega tólf prósent milli árshelminga og hefur hækkað um 25 prósent frá síðasta ári. Svína- kjötskvótinn hækkar um fjórðung og hefur hækkað um helming frá síðasta ári. Kvótinn vegna aðfluttra osta lækkar hins vegar um rúm 16 prósent en í fyrra útboði ársins hafði hann hækkað um 87 pró- sent. Áætla má að hækkunin skili ríkinu um sjötíu milljónum auka- lega í kassann. „Það var í raun augljóst frá upp- hafi að í kerfinu felst mikið óhag- ræði og enn þá meira kapp að byggja upp kvótann á réttum tíma,“ segir Ólafur nú. Haldi þessi þróun áfram mun gjaldið éta upp það hagræði sem felst í kvótunum. Ár hvert eru tvenns konar kvótar boðnir út. Annars vegar áðurnefnd- ur ESB-kvóti og hins vegar svokall- aður WTO-kvóti. Sá fyrrnefndi er boðinn út tvisvar á ári en hætt var við slíkt í tilfelli hins síðari. Þess í stað er hann boðinn út einu sinni. „Hærra útboðsgjald veltur áfram út í verðlagið. Það er vonandi að stjórnvöld taki mark á þessari niðurstöðu og breyti fyrirkomu- laginu aftur til baka líkt og með WTO-kvótann,“ segir Ólafur. Í upphafi árs í fyrra komst Hæsti- réttur að því að útboðsgjaldið væri andstætt stjórnarskrá. Fyrirkomu- laginu var breytt eftir dóminn en FA telur að kerfið sé enn ólögmætt . „Líkt og í fyrra málinu snýst þetta um að ráðherra hafi val um það hvort hann leggur skatt á eður ei. Við mætum meiri skilningi hjá þessari ríkisstjórn og núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra en það breytir því þó ekki að fyrirkomulagið er enn hið sama. Það er þreytt að fyrirtæki þurfi að fara dómstólaleiðina til að ná fram umbótum í þessum málum,“ segir Ólafur. johannoli@frettabladid.is Hækkandi tollkvótar hafa áhrif á vöruverð Við mætum meiri skilningi hjá þessari ríkisstjórn og nú verandi sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra en það breytir því þó ekki að fyrirkomu- lagið er enn hið sama. Ólafur Stephen- sen, framkvæmd- arstjóri Félags atvinnurekenda Koddaslagurinn endurvakinn Það þótti löngum tilheyra að fara í koddaslag á sjómannadeginum en sú hefð lagðist af í Reykjavík fyrir fimm- tán árum. Í gær var hún endurvakin og börðu sex þjóðþekkt heljarmenni á hvert öðru. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tveggja útboða kerfi á ESB-tollkvóta hefur hækkað útboðsgjald. Formaður FA segir hækkunina fyrirséða. 1 2 . j ú N í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R6 f R é T T i R ∙ f R é T T A B L A ð i ð 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -4 4 4 0 1 D 0 E -4 3 0 4 1 D 0 E -4 1 C 8 1 D 0 E -4 0 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.