Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 16

Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 16
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Það sem skiptir okkur máli er að tónlistin sem við spilum kalli fram einhverjar tilfinningar, hverjar sem þær eru. Kristján Hafsteinsson Starri Freyr Jónsson starri@365.is Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum. Virkar vel gegn þynnku 2 töflur fyrir fyrsta drykk 2 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana www.icecare.is Morgundagurinn verður betri með After Party Náttúruleg lausn við timburmönnum Fox Train Safari var stofnuð árið 2008 en gaf út sína fyrstu plötu í fyrra. Sveitin kemur fram næsta fimmtudag á Secret Solstice. Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á Secret Solstice í ár er Fox Train Safari. Sveitin var stofnuð árið 2008 og hefur tekið nokkrum breyt- ingum undanfarinn áratug. Kristján Hafsteinsson bassaleikari er einn stofnenda hljómsveitarinnar og segir hann ekki auðvelt að setja merkimiða á þá tónlist sem hún spilar. „Það sem skiptir okkur máli er að tónlistin sem við spilum kalli fram einhverjar tilfinningar, hverjar sem þær eru. Einn erlendur félagi okkar sagði að við spiluðum soul- tónlist en það væri klárlega íslensk soul-tónlist. Við erum ekki mikið fyrir að setja einhverja merkimiða á okkur en við tökum þetta allt; soul, R&B, blús, hiphop, djass, popp og annað úr ólíkum áttum. Setjum þetta í Kenwood hrærivélina og setjum í gang. Það sem kemur út er svo nokkuð bragðgott.“ Tóku sér tíma Auk Kristjáns voru þau Sverrir Þór Sævarsson trommuleikar og Díana Lind Monzon söngkona sem stofn- uðu sveitina. Fyrstu árin voru ýmsir hljóðfæraleikarar með í för en árið 2013 tók bandið breytingum og var ákveðið að hafa fastara form á henni og meiri fókus. „Þá kom Unnur K. Karlsdóttir söngkona inn, Rafn Emilsson gítarleikari, sem hafði reyndar spilað með okkur aðeins áður, Jóhann Guðmundsson gítarleikari, Kolbeinn Tumi hljóm- borðsleikari, Eiríkur Rafn trompet- leikari og Snæbjörn Gauti sem spilar á saxafón. Bæði Eiríkur og Snæbjörn hafa verið erlendis í námi og því tóku þeir Helgi R. Hreiðars- son saxafónleikari og Jóhannes Þor- leiksson trompetleikari þeirra sæti. Þeir eru síðan í öðrum verkefnum um þessar mundir en við vorum svo heppin að fá þau Elvar Braga Kristjónsson trompetleikara og Sólveigu Morávek saxafónleikara til liðs við okkur.“ Fyrsta plata sveitarinnar ber nafnið 1 og kom stafræna útgáfan út í desember á síðasta ári. Diskur- inn kemur til landsins eftir um sex vikur segir Kristján. „Við tókum okkur góðan tíma til að taka upp plötuna. Bæði tókum við upp mikið af efni og spiluðum líka frekar mikið á þessum tíma, t.d. komum við fram á djasshátíð í Kaupmanna- höfn. Á þessum tíma vorum við að leika á um 50 tónleikum á ári en svo kom að því að við ákváðum að taka okkur góða tónleikapásu til þess að klára plötuna. Núna erum við hins vegar komin á fullt aftur og byrjuð að spila aftur opinberlega.“ Ástríðufullt verk Kristján segir plötuna vera mjög ástríðufullt verk. „Við erum rosa- lega heppin hvað það eru margir frábærir vinir sem hjálpuðu okkur að gera hana að veruleika auk þess sem við fengum líka mikla þolin- mæði frá fjölskyldum okkar sem var líka lykilatriði.“ Þessa dagana eru þau að klára að skipuleggja tónleika sumarsins og verða mörg tækifæri til að sjá sveitina í sumar. „Næsta stóra tón- listarhátíð er The xx Night + Day sem verður haldin við Skógafoss. Svo erum við að pússa nýtt efni og leggja drög að smá ferð út fyrir landsteinana.“ Þegar Kristján er spurður hvað sveitin ætli að bjóða gestum Secret Solstice hátíðarinnar upp á er svarið einfalt. „Við ætlum að kveikja á Kenwood hrærivélinni og setja allt á fullt!“ Kveikt á hrærivélinni Fox Train Safari spilar á opn- unarhátíð Secret Solstice næsta fimmtudag. Sveit- in spilar bragð- góðan bræðing úr ólíkum tónlistar- stefnum og lofa meðlimir miklu fjöri. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -2 6 A 0 1 D 0 E -2 5 6 4 1 D 0 E -2 4 2 8 1 D 0 E -2 2 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.