Fréttablaðið - 12.06.2017, Blaðsíða 38
Við vildum að börn
gætu tekið virkan
þátt í stað þess að sitja
bara og horfa á atriði.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Hildur Soffía Vignisdóttir, Valdís Helga Þorgeirsdóttir og Jóna Elísabet Ottesen skipuleggja Kátt á Solstice. Mynd/EyÞór
Hátíðin Kátt á Klambra tókst mjög vel í fyrra en Kátt á Solstice byggir á sömu
hugmyndafræði.
Gleðin ríkir hjá yngstu kynslóðinni.
Barnadagskráin er þróuð í samstarfi við okkur sem sáum um hátíðina Kátt á Klambra í
fyrra,“ segir Jóna Elísabet Ottesen
en hátíðin á Klambratúni síðast-
liðið sumar mæltist mjög vel fyrir.
„Þar vorum við með skemmtilega
barnahátíð með tónlistardagskrá,
listasmiðjum, barnanuddi, barna-
jóga og barnamarkaði en hátíðin
var sniðin að þörfum barna þriggja
til tólf ára,“ lýsir Jóna.
Raunar segir hún hugmyndina
að Kátt á Klambra hafa vaknað
fyrst á Secret Solstice árið 2015. „Á
sunnudeginum voru reggíhljóm-
sveitir og hiphop hljómsveitir að
spila, veðrið var yndislegt og fullt
af fólki mætt með börn í barna-
vögnum og litlum krökkum upp
í tíu ára, en það er ókeypis fyrir
krakka upp að tíu ára á hátíðina.
Þarna myndaðist skemmtileg
fjölskyldustemning,“ segir Jóna
og telur börn eiga fullt erindi á
hátíðina yfir daginn. „Fólk er yfir-
leitt rólegt yfir daginn en fjörið
hefst síðar um kvöldið.“
Jóna segir marga telja að nóg
sé að skella upp hoppikastala og
Barnahátíðin Kátt á Solstice
Sérstök dagskrá verður fyrir börn gesta á tónlistarhátíðinni Secret Solstice um helgina. Meðal
annars verður boðið upp á barnadiskó, barnajóga og beatbox. Frítt er fyrir börn tíu ára og yngri.
Opið alla daga
11:00 - 01:00
draga fram candyfloss-vél til að
hafa ofan af fyrir krökkum.„Það er
hins vegar hægt að gera svo margt
annað skemmtilegt sem þarf ekki
að kosta neitt meira.“
Jóna og félagar hennar í hátíðar-
nefndinni nýttu sér reynslu sína af
Kátt á Klambra í fyrra til að setja
saman skemmtilega dagskrá fyrir
Kátt á Solstice. „Við vildum að
börn gætu tekið virkan þátt í stað
þess að sitja bara og horfa á atriði.
Þannig kom upp hugmyndin að
bílskúrsbandinu þar sem þau
geta komið, búið til hristur og
trommur og prófað ýmis skrítin
hljóðfæri. Vonandi endar þetta svo
sem tónleikar á okkar einkasviði,“
segir Jóna en barnadagskráin
verður haldin á afmörkuðu svæði
á hátíðarsvæði Secret Solstice í
Laugardalnum. Sérstakar reglur
ríkja þar. Til dæmis eru áfengi og
sígarettur bannaðar.
„Við töluðum líka við Stelpur
rokka sem hafa verið með rokk-
sumarbúðir fyrir stelpur og fengum
eina hljómsveit þaðan til að spila.
Á laugardeginum er síðan 17. júní
og meiningin er að búa til þjóð-
hátíðarstemningu.“
Hátíðin öll leggst mjög vel í
Jónu. „Svæðið er alltaf að breytast
og í ár er hún í þeim hluta Laugar-
dalsins sem er mjög gróinn og
fallegur. Þá er alltaf verið að bæta
bæði aðstöðu og matarframboð,“
segir Jóna sem sjálf verður gestur
á hátíðinni. „Dóttir mín kom með
mér fyrsta árið og er nú að verða
fjögurra ára. Hún hefur því verið
með mér öll árin. Það er fullt af
fólki í kringum mig sem ætlar
að nýta tækifærið og koma með
börnin yfir daginn og fá svo pössun
fyrir þau um kvöldið.
Kátt á Solstice
FÖSTUdAGUr
13.00 Opnun
14.00 Barnadiskó
15.00 Beatbox
16.00 Bílskúrsbandið
17.00 Leynigestur
LAUGArdAGUr
13.00 Barnajóga
14.00 Leynigestur
15.00 Bílskúrsbandið
15.00 Beatbox
16.00 Stelpur rokka
17.00 Barnadiskó
SUnnUdAGUr
13.00 Barnajóga
14.00 Listasmiðja
15.00 Beatbox
16.00 Brettakennsla
17.00 Barnadiskó
Tíu ára og yngri fá frítt inn á hátíðina.
8 KynnInGArBLAÐ 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U dAG U r
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
E
-4
9
3
0
1
D
0
E
-4
7
F
4
1
D
0
E
-4
6
B
8
1
D
0
E
-4
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K