Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 40
Þegar nýir eigendur tóku við Keiluhöllinni í Egilshöll var eitt af fyrstu verkefnum þeirra
að breyta veitingastaðnum sem
þar hafði verið starfræktur. Eftir
nokkurra mánaða tilraunaeldhús
og prufukeyrslur var Shake & Pizza
stofnaður haustið 2015.
Sérhönnuð ostablanda og
sykurlaust pitsudeig
Markmiðið með staðnum var
að bjóða upp á hágæða pitsur úr
hágæða hráefni og með nýjum
áherslum. Mikið var lagt í undir-
búning á staðnum og var markmið
að ögra öllum viðmiðum þegar
kom að pitsu. Allt skyldi þróað frá
grunni.
„Við þróuðum til dæmis sérstaka
ostablöndu úr fjórum mismunandi
ostum til að ná fram rétta osta-
bragðinu og réttri áferð,“ segir Sig-
mar Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóri Shake & Pizza. „Útkoman
var ostablanda Shake & Pizza sem
samanstendur af cheddar, gouda,
mozzarella og maribo. Eins var
sett saman algjörlega ný pitsusósa
með parmesanosti og sérstaklega
samsettri kryddblöndu sem gerir
sósuna svo góða að hún er notuð
sem ídýfa með öðrum forréttum,“
upplýsir Sigmar.
Hann segir pitsudeigið einn-
ig hafa verið prófað í þaula. „Það
er án viðbætts sykurs, en flestallir
pitsustaðir eru með sykur í deiginu.
Sykurleysið gerir deigið léttara í
maga og áferðina almennt ferskari.“
Öðruvísi pitsur
Strax í upphafi var ákveðið að setja
saman öðruvísi pitsur í bland við
klassískar og allar skyldu þær vera
12” að stærð. „Það að hafa allar
pitsur 12” er stór þáttur í gæðum
staðarins, því að aðrar stærðir eru
hreinlega ekki eins góðar. Í 12”
stærðinni er hlutfall áleggs, deigs
og sneiðar rétt. Enda var og er 12”
stærðin hin eina sanna pitsustærð,“
segir Sigmar
„BBQ kjúklingapitsa, Hotwings-
pitsa með gráðaostasósu til hliðar,
Pulled pork BBQ-pitsa, Sesarsalat-
pitsa og pitsa með mozzarella-osta-
stöngum og nachos-ostasósu eru
dæmi um pitsur sem eru ekki á
hverju strái. Las vegan-pitsan er ný
á matseðli en hún er 100 prósent
vegan, með tómatpúrrusósu, vegan
osti, sætum kartöflum, rauðlauk,
sveppum , ananas og jalapeño. Hún
hefur verið gríðarlega vinsæl frá
því að hún kom á matseðil og við
finnum fyrir miklu þakklæti meðal
vegan fólks á Íslandi,“ segir Sigmar.
Beikonsultupitsan er vin-
sælust
Beikonsultupitsan er furðulegasta
og vinsælasta pitsan hjá Shake
& Pizza. „Í stað pitsusósu er sett
beikonsulta sem gefur pitsunni
sætubragð og sem er ansi nýstár-
legt þegar kemur að pitsum. Ofan á
beikonsultuna er síðan sett dálítið
af jalapeño, sem er mótvægi við
sætuna enda sterkur pipar. Þetta
jafnvægi á milli sætu og sterkju
er meginkjarninn í þessari pitsu.
Síðan er pepperóní og kjúklingur
á pitsunni sem gefur henni salt og
fyllingu. Osturinn fer síðan yfir
hráefnið og pitsan er bökuð. Eftir
að hún kemur úr ofninum er ferskt
nachos, sem er steikt á staðnum
daglega, brytjað yfir pitsuna, og
loks er hvít topping-sósa Shake &
Pizza sett yfir til að ramma þetta
allt saman inn,“ útskýrir Sigmar.
Beikonsultan til Las Vegas
Í mars 2016 fóru Vilhelm Einars-
son og Sigmar Vilhjálmsson með
beikonsultuna í stærstu pitsu-
keppni í heimi, International Pizza
Expo. Beikonsultupitsan fékk
þátttökurétt í flokknum „Interna-
tional Non-Traditional pitsas“
sem er eftirsóttasti flokkurinn, en
eins og nafnið ber með sér er þetta
flokkurinn þar sem þátttakendur
keppa um nýjungar og nýsköpun í
pitsugerð. Af þeim 50 pitsum sem
tóku þátt í úrslitum hafnaði beikon-
sultupitsan í 4. sæti. Aðeins munaði
0,02 stigum á að pitsan hefði hreppt
3. sætið, en það hreppti pitsastaður
frá Gvatemala.
Sigmar segir árangurinn merki-
legan því í keppninni eru margir af
bestu pitsustöðum heims saman-
komnir. Aldrei í sögu keppninnar
hefur beikonsulta verið notuð á
pitsu og aldrei áður hafa Íslending-
ar tekið þátt. Það vakti því að sögn
Sigmars ansi mikla athygli að Ísland
skyldi eiga fulltrúa og hvað þá ná
jafngóðum árangri og raunin varð.
„Villi stóð sig fáránlega vel í þessari
keppni, enda er pressan mikil og
þér er skammtaður ákveðinn tími
til að skila af þér fullskapaðri vöru.
Hann er með stáltaugar drengurinn
og stóð sig ótrúlega vel.“
Shake & Pizza í Krónunni
Vinsældir Shake & Pizza hafa verið
gríðarlegar frá því að beikonsultan
sló í gegn í Las Vegas. „Beikonsultu-
pitsan er langvinsælasta pitsa
staðarins og voru fyrirspurnir
um hvar hægt væri að nálgast
beikonsultu frá viðskiptavinum
kveikjan að því að við ákváðum að
hefja framleiðslu á sultunni til sölu í
verslunum,“ upplýsir Sigmar.
Hann segir forsvarmenn
Krónunnar hafa sýnt því áhuga að
selja vörur Shake & Pizza í sínum
verslunum enda alltaf vinsælt hjá
fjölskyldum að búa til sínar eigin
pitsur heima. „Eftir að Krónan sá
hvaða metnað Shake & Pizza setti
í pitsusósuna, ostablönduna og
pitsudeigið var ákveðið að hefja
sölu á allri vörulínunni, ekki bara
beikonsultunni, enda er sérstaða
sósunnar, ostablöndunnar og
deigsins slík að Króna taldi þetta
góðan valkost við annað sem er í
boði.“
Sigmar segist ekki hafa áhyggjur
af því að vörurnar í Krónunni veiti
Shake & Pizza staðnum samkeppni.
„Það er allt önnur ákvörðun að vilja
gera hlutina sjálfur eða fá þá gerða
fyrir sig. Við viljum geta boðið upp
á einn af þeim valkostum sem fólk
stendur frammi fyrir í Krónuversl-
unum þegar það ákveður að elda
heima,“ segir Sigmar.
Shake-arnir eru senuþjófar
Eins og nafn staðarins ber með sér
þá eru pitsur ekki það eina sem
staðurinn leggur áhuga á. „Shake-
matseðillinn er eins og pitsu-
matseðillinn ansi girnilegur og
nýstárlegur en á honum eru yfir 22
tegundir af mismunandi shake af
öllum gerðum,“ segir Sigmar.
„Það var markmið okkar frá
upphafi að gera hristingana okkar
að stórstjörnum á staðnum. Ef það
væri til alþjóðleg mjólkurhristinga-
keppni þá værum við búnir að skrá
okkur og þá væri 4. sætið ekki langt
undan.“
Líkt og með pitsurnar þá var
markmiðið að búa til algjörlega
nýtt viðmið í mjólkurhristingum.
Bragð, áferð og framsetning átti að
verða eins og aldrei fyrr. Hráefnið
er að sögn Sigmars allt fyrsta flokks
og hvergi er verið að stytta sér leið.
Shake eins og oreo-shake, köku-
deigs-shake, kókosbollu-shake,
tyrkisk peber-shake, curly wurly-
shake, prinspóló-shake, hockey
pulver-shake, kitkat-shake, toffee
crisp-shake eru dæmi um mjólkur-
hristinga sem eru settir saman úr
ekta hráefni og er ekkert sparað.
Ekta rjómaís frá Emmessís er not-
aður til verksins og ekta íslenskur
þeyttur rjómi er settur á toppinn.
„Þegar þú ætlar að fá þér shake
þá viltu bara fá ekta vöru og það
er enginn að fara að telja kalorí-
urnar. Þetta er bara eitthvað sem þú
ákveður að leyfa þér og þá viltu líka
njóta þess til fulls,“ segir Sigmar og
glottir.
Áfengur shake hefur líka slegið
í gegn hjá þeim sem hafa aldur til.
„Það er gaman að fá sér áfengan
eftirrétt í upphafi djammkvöldsins
eða daginn eftir gott djamm,“ segir
Sigmar. „Pinacolada-shake, white
russian-shake og mojito-shake eru
dæmi um bragðgóðan mjólkur-
hristing, en það er 20 ára aldurstak-
mark á þá og það er ekki hægt að
panta þá í take away, enda bannað
að selja áfengi út úr húsi. Aðrar
hristingstegundir er hins vegar
alger snilld að taka með í take away.
Þeir koma í góðum umbúðum og
haldast vel í um 30 mínútur.“
Fleiri staðir í vændum?
Sigmar segir vinsældir Shake &
Pizza miklar eins og tölurnar bera
með sér. „Samkvæmt mælingum er
Shake & Pizza orðinn næststærsti
pitsustaður landsins á eftir Dom-
ino's, þrátt fyrir að vera eingöngu
með einn stað í Egilshöll. Við erum
að vonum gríðarlega ánægð með
viðtökurnar og höfum í sjálfu sér
átt fullt í fangi með að halda utan
um staðinn. Það eru dagleg verkefni
sem þarf að takast á við til að halda
uppi gæðum í þjónustu. En vissu-
lega finnum við fyrir miklum áhuga
viðskiptavina með að fá okkur nær
sér, en við erum að fá viðskipta-
vini úr Vogunum, Reykjanesbæ,
Hafnarfirði, Vesturbænum og víðar,
sem fara þetta langt til þess eins að
fá sér pitsu og shake hjá okkur. Ég
á allt eins von á því að svangir tón-
leikagestir Secret Solstice renni við.
Það er því aldrei að vita nema við
skoðum tækifæri á fleiri stöðum í
framtíðinni,“ segir Sigmar.
Í stað pitsusósu er
sett beikonsulta
sem gefur pitsunni sætu-
bragð og sem er ansi
nýstárlegt þegar kemur
að pitsum.
Í mars 2016 fóru Vilhelm Einarsson og Sigmar Vilhjálmsson með beikonsultuna í stærstu pitsukeppni í heimi og
hrepptu fjórða sæti.
Á shake-matseðlinum eru yfir 22
tegundir af mismunandi hristingi.
Allar pitsurnar eru 12”. Það er hin eina rétta pitsustærð að sögn Sigmars.
Fjórða besta pitsa í heimi –
12 km frá Laugardalnum
Shake & Pizza þegar orðinn næststærsti pitsustaður landsins. Þar fást
frumlegar pitsur og hristingur sem er vel þess virði að renna eftir.
10 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
E
-3
5
7
0
1
D
0
E
-3
4
3
4
1
D
0
E
-3
2
F
8
1
D
0
E
-3
1
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K