Fréttablaðið - 12.06.2017, Qupperneq 42
Það er ákveðinn
sjarmi að vera á
útihátíð en samt inni í
miðri borg. Laugardalur-
inn er líka yndislegt
svæði.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Það verður nú ekki leiðinlegt að hita upp fyrir sjálfa Chaka Khan,“ segir
Helgi. MYND/ANTON BRINK
Þetta verður í annað sinn sem Helgi Björns kemur fram á Secret Solstice. Hann mun
stíga á svið ásamt félögum sínum í
Síðan skein sól og skemmta áhorf-
endum áður en goðsögnin Chaka
Khan tekur við hljóðnemanum.
„Það verður nú ekki leiðinlegt að
hita upp fyrir sjálfa Chaka Khan.
Ég var um sautján eða átján ára
þegar ég byrjaði að hlusta á lögin
hennar og um tíma fór hún ekki
af fóninum hjá mér,“ segir Helgi
sem spilaði á Secret Solstice í fyrsta
sinn árið 2015.
„Þá hitaði ég upp fyrir sálar-
söngvarann Charles Bradley og
einnig The Weilers, sem er gamla
bandið hans Bobs Marley, og flutti
efni af þá nýútkominni plötu, lög
á borð við Ég fer á Land Rover og
Kókos og engifer. Það var algjör-
lega ógleymanlegur dagur, æðis-
legt veður og frábær stemning og
stuð.“
Ótrúlega skemmtileg
upplifun
Helgi segir að sér finnist ótrúlega
skemmtileg upplifun að spila á
Secret Solstice. „Það er ákveðinn
sjarmi að vera á útihátíð en samt
inni í miðri borg. Laugardalurinn
er líka yndislegt svæði. Við í Síðan
skein sól verðum með brassband
með okkur og dagskráin hjá okkur
svipuð og á afmælistónleikunum
í Háskólabíói um daginn. Þetta
verður alvöru,“ segir Helgi.
Gestir Secret Solstice hafa
hingað til verið á öllum aldri og
miðast hátíðin við að svo verði
áfram. „Mér finnst lofsvert að
aðstandendur Secret Solstice reyni
að höfða til breiðs aldurshóps.
Það verður t.d. góð aðstaða fyrir
fjölskyldufólk svo foreldrar geta
tekið börnin sín með, ung sem
eldri, og það er séð um að þau hafi
það gaman. Mér finnst gott að
blanda saman öllum aldurshópum
og það gefur hátíðinni skemmti-
legt yfirbragð. Allir geta skemmt
sér saman,“ segir Helgi sem ætlar
síðan að taka sér gott frí í sumar.
„Við í Síðan skein sól munum
koma fram á fleiri stórviðburðum
í sumar en um verslunarmanna-
helgina ætla ég að fara til Ísafjarðar
og vera á mýrarboltanum. Ég hef
aldrei gert það áður.“
Syngur fyrir
Chaka Khan
Helgi Björns mun hita upp fyrir hina einu
sönnu soul- og poppdívu Chaka Khan á
Secret Solstice hátíðinni í Laugardalnum.
Herdís Eva og Elín Sif kaffibarþjónar á Kaffitári lofa ilmandi kaffi og kakói á Secret Solstice. MYND/ ANTON BRINK
.
Þetta er þriðja árið í röð sem við tökum þátt í Secret solstice og verðum með
sérútbúinn kaffibíl á svæðinu ,“
segir Sólrún Björk Guðmunds-
dótti, markaðs- og rekstrarstjóri
Kaffitárs. Í bílnum er espressovél
og hægt að panta helstu drykki;
espresso, latte cappuccino og
mjólkurdrykki, einnig heitt
súkkulaði og uppáhelling.
„Við verðum einnig með bak-
pokavaktirnar eins og árin áður
en þá er sölufólk okkar á ferðinni
um hátíðarsvæðið með sérút-
búna bakpoka með kaffi.
Vinsælustu drykkirnir
eru cappucino og
latte en heita
súkkulaðið sló
algerlega í gegn
í fyrra enda
gott að ylja sér
á kakóbolla
ef veðurvélin
virkar ekki.
Í fyrra voru
gestirnir á tjald-
stæðinu sérstak-
lega ánægðir þegar
við mættum með
bakpokana á morgnana
akkúrat á réttum tíma fyrir
morgunkaffið,“ segir Sólrún.
Stemningin sé alltaf frábær á
hátíðinni.
„Það er æðisleg stemming í
kringum þetta og ótrúlega gaman
að vera með, allir í frábærum
fíling. Secret solstice er flott hátíð
sem hefur vaxið mjög ár frá ári.
Mér finnst sérstaklega skemmti-
legt hvað hátíðagestir eru fjöl-
breyttur hópur og á öllum aldri.
Sú staðlaða ímynd sem fólk hefur
gjarnan af tónlistarhátíðum á alls
ekki við um Secret solstice. Þarna
eru fjölskyldur að hafa gaman
saman og allir í hátíðarskapi.
Hátíðin stendur yfir 17. júní og
ég gæti vel trúað að margir kíki
yfir í Laugardalinn. Skipulagið hjá
aðstandendum hátíðarinnar er
til fyrirmyndar og gaman að taka
þátt í undirbúningnum.
Við hjá Kaffitári
setjum upp popup
kaffihús um allan
bæ og oft eru
það fyrirtæki
sem fá okkur
þegar eitthvað
stendur til
eins og ráð-
stefnur eða
uppákomur.
Þá höfum við
notað ein-
stakan kaffibar
sem HAF studio
hannaði fyrir okkur
í fyrra.
Frá býli í bolla
Sólrún segir einungis boðið upp á
fyrsta flokks hráefni hjá Kaffitár.
Baunirnar komi frá bændum sem
stunda sjálfbæra framleiðslu.
„Við kaupum 85 prósent af
öllum hrábaunum beint frá bónda
og án allra milliliða. Allt eru
þetta bændur sem við þekkjum
og höfum heimsótt flesta þeirra.
Þannig tryggjum við gæðin. Við
vitum einnig að þeir koma vel
fram við starfsfólk sitt og stunda
sjálfbæra ræktun,“ segir Sólrún.
Annars eru spennandi tímar fram
undan hjá fyrirtækinu en Kaffitár
mun opna nýjan stað á næstunni.
Opnað í Perlunni
„Næstu vikur verða mjög spenn-
andi hjá okkur en við munum
opna nýjan veitingastað og kaffi-
hús á fimmtu hæð í Perlunni í lok
júní. Veitingastaðurinn mun heita
Út í bláinn og þar verður á boð-
stólum íslenskur matur með tvisti.
Á fjórðu hæðinni verðum við með
hraðþjónustu fyrir þá sem vilja
grípa sér kaffi og samloku. Það er
unnið í þessu alla daga núna og
mun Perlan gjörbreytast í sumar.“
Popup Kaffitár á Secret Solstice
Hátíðargestir Secret Solstice geta yljað sér á rjúkandi heitu kaffi og súkku-
laði á popup-kaffihúsi Kaffitárs sem sett verður upp í Laugardalnum.
12 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . j ú n í 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
E
-2
1
B
0
1
D
0
E
-2
0
7
4
1
D
0
E
-1
F
3
8
1
D
0
E
-1
D
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K