Fréttablaðið - 12.06.2017, Page 45

Fréttablaðið - 12.06.2017, Page 45
Við höfum tekið í sölu glæsileg ítölsk rafmagnsreiðhjól Drægni 60-100km eftir aðstæðum. Álstell, LED ljós, SRAM Automatix gírar og 22kg að þyngd. Þriggja stiga sjálfskipting. Innbyggðir kaplar í stelli. 250W rafmótor með 25 km/klst hámarkshraða. Rafhlaðan er Lithium-ion 200Wh með 36V spennu og 5 klst. hleðslutíma (80% á 3 klst.), áætlaður líftími rafhlöðu er 800 hleðslur. Mælir í stýri sýnir hleðslu rafhlöðu, ferð í kílómetrum og áætlaðan líftíma miðað við álag í ferð. byko.is Komdu og skoðaðu í Breidd, Granda eða Selfossi Í dag Guðmundur Andri Thorsson Vinur minn Aðalgeir Arason hefur stundum ort slitrur um þjóðar-leiðtoga þegar mikið hefur legið við, samanber hina alkunnu vísu um Khomeini erkiklerk sem hefst á línunni „Tehe- klerkur ræður -ran“ – eða Flóa- bardaga sem hefur fyrripartinn: „-ssein er heppinn Saddam Hú / siðum -ham- meðs fylgir Mú-.“ Aðalgeir byrjaði á slitru um bresku kosningarnar þegar úrslit lágu fyrir: „-rihluta sinn missti mei …“ en komst ekki lengra. Þó má segja að línan sú arna – þó óneitan- lega sé nokkuð stutt – sé ekki verri túlkun á bresku kosningunum en allar gáfnaljósagreinarnar sem maður hefur verið að lesa um þær, nema við getum kannski bætt við línunni úr Njálu um Brjánsbardaga: „Brjánn féll og hélt velli.“ Spegilflokkur islamista Teresa May féll og hélt velli. Eða þannig. Hún ætlar að halda áfram sem forsætisráðherra rétt eins og hún hafi til þess umboð, og mun styðjast við mótmælenda- og sambandsflokk á Norður-Írlandi, sem er kristilegur spegilflokkur islamista; með ámóta ljóta stefnu í málefnum kynfrelsis og annarra jafnréttismála og skelfilega sögu um ofbeldisglæpi og haturs- áróður gegn saklausu fólki – þetta er lið samanbitið af hatri og ætti ekki að hafa áhrif í nokkrum málum. Með fulltingi þessa flokks mun Teresa svo skjögra til Brussel þar sem hennar bíða glorsoltin möppudýr. Þetta sitja Bretar uppi með eftir að hafa gert margvíslegar uppreisnir gegn „elítunni“ í undangengnum kosn- ingum. Það var kannski ekki alveg sú útkoma sem fólk sá fyrir sér þegar það greiddi Brexit atkvæði. Þar með er ekki sagt að þeir kjósendur hafi verið tómir hálfvitar eða hafi látið stjórnast af fávísinni einni, eins og stundum er látið í veðri vaka í fréttaskýringunum. Fólk hefur alltaf einhverjar ástæður fyrir því hvernig það kýs. Fólk er alltaf að hugsa um sig og sína, velja sér samfélag og andrúmsloft – eða mótmæla einhverju. Vissulega átti Brexit meiri hljóm- grunn í dreifbýlli héruðum þar sem meiri einsleitni ríkir með tilheyrandi ótta við „hina“. Of lítið hefur verið gert úr ótta fólks í hinum ýmsu Evrópu- löndum við þau áhrif sem flótta- mannastraumur hefur á líf þess. Það er skiljanleg kennd, mjög mennsk, mjög djúprætt. Fjölmenningarsam- félög Evrópu eru staðreynd og þau eru dásamleg þegar fólk býr saman við opin samskipti, samtöl, möguleika til mennt- unar og starfa við hæfi. Einsleitni er liðin tíð, hvort heldur varðar menningu eða uppruna. Spenna milli hópa hlýtur að fylgja slíku sambýli – samkeppni hugmyndanna – reiptog um völd – og hnignandi karlveldi er hættulegt afl. Þá er rétt að beina spjótum að hatursfram- leiðendunum í moskum og fjölmiðla- samsteypum – en fólk sem óttast áhrif flóttamannastraums á samfélag sitt á skilið að rætt sé við það af virðingu og fordómaleysi, en ekki lesið yfir hausa- mótunum á því um það hversu fáfrótt og illa innrætt það sé. Þegar fólk kaus Brexit var það ekki síður hávær lýðræðiskrafa; að láta ekki segja sér fyrir verkum af fjarlægu embættismannakerfi sem enginn kaus. Fólk vill hafa áhrif á umhverfi sitt, líf sitt og sinna, og ekkert ljótt eða heimsku- legt við það. Evrópusambandið brást í aðdraganda kreppunnar þegar reglu- verk reyndist ekki nógu sterkt gagnvart siðlausu auðvaldi sem aldrei hirðir um lífskjör, samfélag eða félagsauð, og það brást líka þjóðum eins og Grikkjum og Írum þegar fráleitar kröfur voru gerðar um niðurskurð. Grundvallaratriðin Margt af sama fólkinu kaus Brexit og svo aftur Verkamannaflokkinn sem Corbyn og hans fólk bauð fram að þessu sinni, og er með miklu mann- vænni stefnu en flokkur Blairs og Browns. Þeir kjósendur voru ekki hálf- vitar þegar þeir kusu Brexit en gáfna- ljós þegar þeir kusu Verkamannaflokk- inn nú. Hvort tveggja er uppreisn gegn „elítunni“, borgarintellígensíunni sem réð Verkamannaflokknum en gleymdi grundvallaratriðum jafnaðarstefnunn- ar, að standa vörð um lífskjör og rétt- indi almennings með hag fjöldans að leiðarljósi, og tók einkavæðingu allrar grunnþjónustu og misskiptingu auðs sem lögmáli lífsins, eins og nýkomið úr tímum hjá Hannesi Hólmsteini. Þessari baráttu lýkur aldrei. Þró- unin getur verið óhugnanlega hröð þegar kapítalisminn fær óáreittur að hafa sinn gang, eins og við þekkjum mætavel hér á landi eftir tvær hægri- stjórnir í röð. Markaðurinn er hér látinn um að leysa húsnæðisvanda ungs fólks, tvö risaleigufélög starfa með ofsagróða að markmiði meðan félags- legar lausnir láta á sér standa, og þrátt fyrir góðan vilja heilbrigðisráðherra virðast talibanar markaðshyggjunnar í Sjálfstæðisflokknum ætla að hafa það fram að enn frekari einkavæðing verði á umönnunar- og læknisþjónustu; virtur og vellátinn fjölbrautaskóli í Ármúla er afhentur einkaaðilum og sendur út á guð og gadd markaðarins – að ógleymdum dómsmálaráðherra sem fyllir stræti og torg af vopnuðum lög- reglumönnum þegar fólk er í litahlaupi og er andvíg flokkun á rusli en vill sjálf fá ein að flokka dómara … „Féll og hélt velli“ Fólk hefur alltaf einhverjar ástæður fyrir því hvernig það kýs. Fólk er alltaf að hugsa um sig og sína, velja sér samfélag og andrúmsloft – eða mótmæla einhverju. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 1 2 . j ú n Í 2 0 1 7 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 E -3 F 5 0 1 D 0 E -3 E 1 4 1 D 0 E -3 C D 8 1 D 0 E -3 B 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.