Fréttablaðið - 12.06.2017, Side 45
Við höfum tekið í sölu glæsileg
ítölsk rafmagnsreiðhjól
Drægni 60-100km eftir aðstæðum. Álstell, LED ljós,
SRAM Automatix gírar og 22kg að þyngd. Þriggja
stiga sjálfskipting. Innbyggðir kaplar í stelli. 250W
rafmótor með 25 km/klst hámarkshraða. Rafhlaðan
er Lithium-ion 200Wh með 36V spennu og 5 klst.
hleðslutíma (80% á 3 klst.), áætlaður líftími rafhlöðu er
800 hleðslur. Mælir í stýri sýnir hleðslu rafhlöðu, ferð í
kílómetrum og áætlaðan líftíma miðað við álag í ferð.
byko.is
Komdu og
skoðaðu í
Breidd, Granda
eða Selfossi
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Vinur minn Aðalgeir Arason hefur stundum ort slitrur um þjóðar-leiðtoga þegar mikið hefur legið
við, samanber hina alkunnu vísu um
Khomeini erkiklerk sem hefst á línunni
„Tehe- klerkur ræður -ran“ – eða Flóa-
bardaga sem hefur fyrripartinn: „-ssein
er heppinn Saddam Hú / siðum -ham-
meðs fylgir Mú-.“ Aðalgeir byrjaði á
slitru um bresku kosningarnar þegar
úrslit lágu fyrir: „-rihluta sinn missti
mei …“ en komst ekki lengra. Þó má
segja að línan sú arna – þó óneitan-
lega sé nokkuð stutt – sé ekki verri
túlkun á bresku kosningunum en allar
gáfnaljósagreinarnar sem maður hefur
verið að lesa um þær, nema við getum
kannski bætt við línunni úr Njálu um
Brjánsbardaga: „Brjánn féll og hélt
velli.“
Spegilflokkur islamista
Teresa May féll og hélt velli. Eða
þannig. Hún ætlar að halda áfram
sem forsætisráðherra rétt eins og hún
hafi til þess umboð, og mun styðjast
við mótmælenda- og sambandsflokk
á Norður-Írlandi, sem er kristilegur
spegilflokkur islamista; með ámóta
ljóta stefnu í málefnum kynfrelsis og
annarra jafnréttismála og skelfilega
sögu um ofbeldisglæpi og haturs-
áróður gegn saklausu fólki – þetta er lið
samanbitið af hatri og ætti ekki að hafa
áhrif í nokkrum málum. Með fulltingi
þessa flokks mun Teresa svo skjögra til
Brussel þar sem hennar bíða glorsoltin
möppudýr.
Þetta sitja Bretar uppi með eftir að
hafa gert margvíslegar uppreisnir gegn
„elítunni“ í undangengnum kosn-
ingum. Það var kannski ekki alveg sú
útkoma sem fólk sá fyrir sér þegar það
greiddi Brexit atkvæði. Þar með er ekki
sagt að þeir kjósendur hafi verið tómir
hálfvitar eða hafi látið stjórnast af
fávísinni einni, eins og stundum er látið
í veðri vaka í fréttaskýringunum. Fólk
hefur alltaf einhverjar ástæður fyrir því
hvernig það kýs. Fólk er alltaf að hugsa
um sig og sína, velja sér samfélag og
andrúmsloft – eða mótmæla einhverju.
Vissulega átti Brexit meiri hljóm-
grunn í dreifbýlli héruðum þar sem
meiri einsleitni ríkir með tilheyrandi
ótta við „hina“. Of lítið hefur verið gert
úr ótta fólks í hinum ýmsu Evrópu-
löndum við þau áhrif sem flótta-
mannastraumur hefur á líf þess. Það
er skiljanleg kennd, mjög mennsk,
mjög djúprætt. Fjölmenningarsam-
félög Evrópu eru staðreynd og þau eru
dásamleg þegar fólk býr saman við opin
samskipti, samtöl, möguleika til mennt-
unar og starfa við hæfi. Einsleitni er
liðin tíð, hvort heldur varðar menningu
eða uppruna. Spenna milli hópa hlýtur
að fylgja slíku sambýli – samkeppni
hugmyndanna – reiptog um völd – og
hnignandi karlveldi er hættulegt afl. Þá
er rétt að beina spjótum að hatursfram-
leiðendunum í moskum og fjölmiðla-
samsteypum – en fólk sem óttast áhrif
flóttamannastraums á samfélag sitt á
skilið að rætt sé við það af virðingu og
fordómaleysi, en ekki lesið yfir hausa-
mótunum á því um það hversu fáfrótt
og illa innrætt það sé.
Þegar fólk kaus Brexit var það ekki
síður hávær lýðræðiskrafa; að láta
ekki segja sér fyrir verkum af fjarlægu
embættismannakerfi sem enginn kaus.
Fólk vill hafa áhrif á umhverfi sitt, líf sitt
og sinna, og ekkert ljótt eða heimsku-
legt við það. Evrópusambandið brást í
aðdraganda kreppunnar þegar reglu-
verk reyndist ekki nógu sterkt gagnvart
siðlausu auðvaldi sem aldrei hirðir um
lífskjör, samfélag eða félagsauð, og það
brást líka þjóðum eins og Grikkjum og
Írum þegar fráleitar kröfur voru gerðar
um niðurskurð.
Grundvallaratriðin
Margt af sama fólkinu kaus Brexit og
svo aftur Verkamannaflokkinn sem
Corbyn og hans fólk bauð fram að
þessu sinni, og er með miklu mann-
vænni stefnu en flokkur Blairs og
Browns. Þeir kjósendur voru ekki hálf-
vitar þegar þeir kusu Brexit en gáfna-
ljós þegar þeir kusu Verkamannaflokk-
inn nú. Hvort tveggja er uppreisn gegn
„elítunni“, borgarintellígensíunni sem
réð Verkamannaflokknum en gleymdi
grundvallaratriðum jafnaðarstefnunn-
ar, að standa vörð um lífskjör og rétt-
indi almennings með hag fjöldans að
leiðarljósi, og tók einkavæðingu allrar
grunnþjónustu og misskiptingu auðs
sem lögmáli lífsins, eins og nýkomið úr
tímum hjá Hannesi Hólmsteini.
Þessari baráttu lýkur aldrei. Þró-
unin getur verið óhugnanlega hröð
þegar kapítalisminn fær óáreittur að
hafa sinn gang, eins og við þekkjum
mætavel hér á landi eftir tvær hægri-
stjórnir í röð. Markaðurinn er hér
látinn um að leysa húsnæðisvanda
ungs fólks, tvö risaleigufélög starfa með
ofsagróða að markmiði meðan félags-
legar lausnir láta á sér standa, og þrátt
fyrir góðan vilja heilbrigðisráðherra
virðast talibanar markaðshyggjunnar í
Sjálfstæðisflokknum ætla að hafa það
fram að enn frekari einkavæðing verði
á umönnunar- og læknisþjónustu;
virtur og vellátinn fjölbrautaskóli í
Ármúla er afhentur einkaaðilum og
sendur út á guð og gadd markaðarins –
að ógleymdum dómsmálaráðherra sem
fyllir stræti og torg af vopnuðum lög-
reglumönnum þegar fólk er í litahlaupi
og er andvíg flokkun á rusli en vill sjálf
fá ein að flokka dómara …
„Féll og hélt velli“
Fólk hefur alltaf einhverjar
ástæður fyrir því hvernig
það kýs. Fólk er alltaf að
hugsa um sig og sína, velja sér
samfélag og andrúmsloft – eða
mótmæla einhverju.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 1 2 . j ú n Í 2 0 1 7
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
E
-3
F
5
0
1
D
0
E
-3
E
1
4
1
D
0
E
-3
C
D
8
1
D
0
E
-3
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K