Fréttablaðið - 12.06.2017, Side 46

Fréttablaðið - 12.06.2017, Side 46
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS ÍSL 1 – 0 KRÓ 1-0 Hörður Björgvin (90.). Frammistaða Íslands (4-4-2) Hannes Þór Halldórsson 7 Birkir Már Sævarsson 7 Kári Árnason 8 Ragnar Sigurðsson 8 (90. Sverrir Ingason -) Hörður Björgvin Magnússon 8 Jóhann Berg Guðmundsson 6 Aron Einar Gunnarsson 9 Emil Hallfreðsson 7 Birkir Bjarnason 6 (80. Rúrik Gíslason -) Gylfi Þór Sigurðsson 8 Alfreð Finnbogason 6 (76. Björn Bergmann Sigurðars. -) Maður leiksins Frábær leikur hjá fyrirliðanum. Vann gríðarlega vel, slökkti elda út allan völl og gaf miðjumönnum Króatíu lítinn tíma með bolt- ann. Skilaði boltanum vel frá sér. visir.is Meiri umfjöllun og við- töl má finna á íþróttavef Vísis. Hörður eftir leik „Ég gæti ekki verið ánægðari, vinna Króatíu heima, eitt af bestu liðum heims. Ég er gríðarlega þakklátur að fá tækifæri og hvað þá að spila með þessu landsliði og hversu duglegir við vorum í kvöld og allir tilbúnir að vinna fyrir hver annan.“ Hörður Björgvin skoraði með öxlinni á 90 mínútu leiksins og sagðist svekktur að hafa ekki náð að skalla hann betur en sigurmark er sigurmark „Það er bara fínt að skora með öxlinni.“ Aron Einar eftir leik „Þetta hefur alltaf verið karakterslið. Drengirnir vissu að það var að duga eða drep- ast. Við vildum ekki tala um það fyrir leik, en ef þeir hefðu unnið þennan leik þá hefðu þeir verið of langt í burtu,“ sagði fyrir- liðinn Aron Einar Gunnarsson. „Króatar eru ekkert að fara tapa mörgum stigum, en maður getur leyft sér að fagna í kvöld og svo er að byrja að fókusera á Finn- land úti. Þetta er galopinn riðill, en erfiður.“ Úrslit og staða í riðli Íslands Finnland - Úkraína 1-2 Kosóvó - Tyrkland 1-4 Efri Króatía 13 Ísland 13 Tyrkland 11 Neðri Úkraína 11 Finnland 1 Kósovó 1 Fótbolti Eftir fimm leiki án sigurs og 426 mínútur og tæp 12 ár án marks unnu Íslendingar loks sigur á Króötum á Laugardalsvelli í gær. Allt stefndi í markalaust jafntefli en íslensku strákarnir fundu aukakraft til að vinna leikinn. Þegar mínúta var til leiksloka átti Birkir Már Sæv- arsson frábæra fyrirgjöf frá hægri, beint á kollinn á Jóhanni Berg Guð- mundssyni sem skallaði beint á Lovre Kalinic í marki Króatíu. Íslendingar fengu horn og það tók Leiðin á HM 2018 enn þá greið Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi síns riðils í undankeppni HM með sigri í leik liðanna í gær. Hörður Björgvin Magnússon skoraði markið sem tryggði Íslendingum fyrsta sigurinn á Króötum frá upphafi. Hörður Bjögvin Magnússon fékk traustið frá Heimi Hallgrímssyni landsliðsþjálfara á móti Króötum í gær og skilaði flottum leik og ótrúlega mikilvægu sigur- marki á lokamínútu leiksins. Hér sjást þeir félagar saman eftir leik og það var svo sannarlega full ástæða fyrir þá að brosa sínum breiðasta. FRéTTaBLaðið/EyþÓR Gylfi Þór Sigurðsson. Eins og svo oft áður var spyrna Swansea-mannsins frábær, beint á Hörð Björgvin Magn- ússon sem fékk frían skalla og setti boltann í boga yfir Kalinic. Ótrúlega mikilvægt mark hjá Herði Björg- vini og það þýðir að Ísland er jafnt Króatíu á toppi riðilsins þegar fjórar umferðir eru eftir. HM-draumurinn lifir því góðu lífi og möguleikinn á að ná efsta sætinu er góður. „Ég er hrikalega stoltur af öllum strákunum. Þetta var hrikalega sterkur liðsheildarsigur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Heimir Hall- grímsson í samtali við Fréttablaðið eftir leik. Lærðu af fyrri leikjunum Eyjamaðurinn kom talsvert á óvart með liðsuppstillingu sinni í gær. Hörður Björgvin kom inn fyrir Ara Frey Skúlason í stöðu vinstri bakvarðar, Emil Hallfreðsson lék á miðjunni við hlið Arons Einars Gunnarssonar og fyrir framan þá var Gylfi Þór. „Við breyttum um leikaðferð til að jafna þá á miðjunni og Emil, Gylfi og Aron Einar gerðu a.m.k. jafn vel og þeir og í flestum tilfellum betur. Það var lykillinn að góðri spila- mennsku í dag, hversu vel við spil- uðum inni á miðjunni og lokuðum á þá og komum í veg fyrir að þeir sköpuðu sér færi,“ sagði Heimir sem segist hafa lært af fyrri viðureignum gegn Króatíu. „Við reyndum að læra af leikj- unum okkar við Króatíu. Mér fannst við taka stórt skref fram á við í Zagreb. Við fundum að við gátum pressað þá. Það eru ekki mörg lið sem pressa Króatíu og kannski er það ástæðan fyrir því að þeir fá á sig fá mörk. Þetta kom þeim örugglega á óvart.“ Leikáætlun Heimis gekk fullkom- lega upp. Það eru fá lið í heiminum betri að halda boltanum en Króatar en Íslendingar komu í veg fyrir að þeir næðu sínum dáleiðandi sam- leiksköflum með frábærri pressu. Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór þar fremstur í flokki en hann braut niður hverja sókn Króatíu á fætur annarri og gaf tóninn. Uppreisn æru Hetja íslenska liðsins í gær, Hörður Björgvin, átti erfitt uppdráttar í tap- inu í Zagreb í fyrra en hann svaraði fyrir sig í gær og fékk hrós frá lands- liðsþjálfaranum eftir leik. „Við vitum að hann er ekki bak- vörður að upplagi en hann hefur vaxið í þessu hlutverki. Við þurftum hæð í varnarlínuna og ég held að það hafi sýnt sig í leiknum að þetta var rétt ákvörðun,“ sagði Heimir um manninn sem skoraði markið sem færði Íslendinga nær takmark- inu; að komast á HM í fyrsta sinn. ingvithor@365.is UrðU Í ÞriðJA Sæti Í NorEGi Íslenska karlalandsliðið í hand- bolta varð í þriðja sæti á æfinga- mótinu í Noregi en liðið gerði 23-23 jafntefli við Svía í loka- leiknum. Svíar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og skutu síðan í stöng í lokin. Ólafur Guðmunds- son var markahæstur með 5 mörk. SLÓ 30 árA ÍSLANdSMEt Í Gær Aníta Hinriksdóttir sló í gær 30 ára Íslandsmet ragnheiðar Ólafs- dóttur í 1500 metra hlaupi þegar hún hljóp á 4:06,43 mín. í Hol- landi. Aníta bætti metið um meira en átta sekúndur. Aníta er nú með lágmark á HM í London í ágúst í bæði 800 og 1500 metra hlaupi. á 16 HöGGUM UNdir pAri Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á lokahringnum á KpMG mótinu í Belgíu. Hann endaði í 4. til 9. sæti á sextán höggum undir pari. Birgir lék lokahringinn á -6 en fyrir árangurinn fékk hann 800.000 krónur í verðlaunafé. Við þurftum hæð í varnarlínuna og ég held að það hafi sýnt sig í leiknum að þetta var rétt ákvörðun. Heimir um Hörð Björgvin 1 2 . j Ú n Í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð sport 1 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 E -4 4 4 0 1 D 0 E -4 3 0 4 1 D 0 E -4 1 C 8 1 D 0 E -4 0 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.