Fréttablaðið - 12.06.2017, Síða 46
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
ÍSL 1 – 0 KRÓ
1-0 Hörður Björgvin (90.).
Frammistaða Íslands (4-4-2)
Hannes Þór Halldórsson 7
Birkir Már Sævarsson 7
Kári Árnason 8
Ragnar Sigurðsson 8
(90. Sverrir Ingason -)
Hörður Björgvin Magnússon 8
Jóhann Berg Guðmundsson 6
Aron Einar Gunnarsson 9
Emil Hallfreðsson 7
Birkir Bjarnason 6
(80. Rúrik Gíslason -)
Gylfi Þór Sigurðsson 8
Alfreð Finnbogason 6
(76. Björn Bergmann Sigurðars. -)
Maður leiksins
Frábær leikur hjá fyrirliðanum.
Vann gríðarlega vel, slökkti elda
út allan völl og gaf
miðjumönnum Króatíu
lítinn tíma með bolt-
ann. Skilaði boltanum
vel frá sér.
visir.is Meiri umfjöllun og við-
töl má finna á íþróttavef Vísis.
Hörður eftir leik
„Ég gæti ekki verið
ánægðari, vinna
Króatíu heima,
eitt af bestu
liðum heims.
Ég er gríðarlega
þakklátur að fá
tækifæri og hvað
þá að spila með þessu
landsliði og hversu duglegir við
vorum í kvöld og allir tilbúnir að
vinna fyrir hver annan.“ Hörður
Björgvin skoraði með öxlinni á
90 mínútu leiksins og sagðist
svekktur að hafa ekki náð að
skalla hann betur en sigurmark
er sigurmark „Það er bara fínt að
skora með öxlinni.“
Aron Einar eftir leik
„Þetta hefur
alltaf verið
karakterslið.
Drengirnir vissu
að það var að
duga eða drep-
ast. Við vildum
ekki tala um
það fyrir leik, en ef þeir hefðu
unnið þennan leik þá hefðu þeir
verið of langt í burtu,“ sagði fyrir-
liðinn Aron Einar Gunnarsson.
„Króatar eru ekkert að fara tapa
mörgum stigum, en maður getur
leyft sér að fagna í kvöld og svo
er að byrja að fókusera á Finn-
land úti. Þetta er galopinn riðill,
en erfiður.“
Úrslit og staða í riðli Íslands
Finnland - Úkraína 1-2
Kosóvó - Tyrkland 1-4
Efri
Króatía 13
Ísland 13
Tyrkland 11
Neðri
Úkraína 11
Finnland 1
Kósovó 1
Fótbolti Eftir fimm leiki án sigurs
og 426 mínútur og tæp 12 ár án
marks unnu Íslendingar loks sigur
á Króötum á Laugardalsvelli í gær.
Allt stefndi í markalaust jafntefli en
íslensku strákarnir fundu aukakraft
til að vinna leikinn. Þegar mínúta
var til leiksloka átti Birkir Már Sæv-
arsson frábæra fyrirgjöf frá hægri,
beint á kollinn á Jóhanni Berg Guð-
mundssyni sem skallaði beint á
Lovre Kalinic í marki Króatíu.
Íslendingar fengu horn og það tók
Leiðin á HM 2018 enn þá greið
Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi síns riðils í undankeppni HM með sigri í leik liðanna í gær. Hörður
Björgvin Magnússon skoraði markið sem tryggði Íslendingum fyrsta sigurinn á Króötum frá upphafi.
Hörður Bjögvin Magnússon fékk traustið frá Heimi Hallgrímssyni landsliðsþjálfara á móti Króötum í gær og skilaði flottum leik og ótrúlega mikilvægu sigur-
marki á lokamínútu leiksins. Hér sjást þeir félagar saman eftir leik og það var svo sannarlega full ástæða fyrir þá að brosa sínum breiðasta. FRéTTaBLaðið/EyþÓR
Gylfi Þór Sigurðsson. Eins og svo oft
áður var spyrna Swansea-mannsins
frábær, beint á Hörð Björgvin Magn-
ússon sem fékk frían skalla og setti
boltann í boga yfir Kalinic. Ótrúlega
mikilvægt mark hjá Herði Björg-
vini og það þýðir að Ísland er jafnt
Króatíu á toppi riðilsins þegar fjórar
umferðir eru eftir. HM-draumurinn
lifir því góðu lífi og möguleikinn á
að ná efsta sætinu er góður.
„Ég er hrikalega stoltur af öllum
strákunum. Þetta var hrikalega
sterkur liðsheildarsigur,“ sagði
landsliðsþjálfarinn Heimir Hall-
grímsson í samtali við Fréttablaðið
eftir leik.
Lærðu af fyrri leikjunum
Eyjamaðurinn kom talsvert á óvart
með liðsuppstillingu sinni í gær.
Hörður Björgvin kom inn fyrir
Ara Frey Skúlason í stöðu vinstri
bakvarðar, Emil Hallfreðsson lék
á miðjunni við hlið Arons Einars
Gunnarssonar og fyrir framan þá
var Gylfi Þór.
„Við breyttum um leikaðferð til
að jafna þá á miðjunni og Emil, Gylfi
og Aron Einar gerðu a.m.k. jafn vel
og þeir og í flestum tilfellum betur.
Það var lykillinn að góðri spila-
mennsku í dag, hversu vel við spil-
uðum inni á miðjunni og lokuðum
á þá og komum í veg fyrir að þeir
sköpuðu sér færi,“ sagði Heimir sem
segist hafa lært af fyrri viðureignum
gegn Króatíu.
„Við reyndum að læra af leikj-
unum okkar við Króatíu. Mér
fannst við taka stórt skref fram á við
í Zagreb. Við fundum að við gátum
pressað þá. Það eru ekki mörg lið
sem pressa Króatíu og kannski er
það ástæðan fyrir því að þeir fá á sig
fá mörk. Þetta kom þeim örugglega
á óvart.“
Leikáætlun Heimis gekk fullkom-
lega upp. Það eru fá lið í heiminum
betri að halda boltanum en Króatar
en Íslendingar komu í veg fyrir að
þeir næðu sínum dáleiðandi sam-
leiksköflum með frábærri pressu.
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson
fór þar fremstur í flokki en hann
braut niður hverja sókn Króatíu á
fætur annarri og gaf tóninn.
Uppreisn æru
Hetja íslenska liðsins í gær, Hörður
Björgvin, átti erfitt uppdráttar í tap-
inu í Zagreb í fyrra en hann svaraði
fyrir sig í gær og fékk hrós frá lands-
liðsþjálfaranum eftir leik.
„Við vitum að hann er ekki bak-
vörður að upplagi en hann hefur
vaxið í þessu hlutverki. Við þurftum
hæð í varnarlínuna og ég held að
það hafi sýnt sig í leiknum að þetta
var rétt ákvörðun,“ sagði Heimir
um manninn sem skoraði markið
sem færði Íslendinga nær takmark-
inu; að komast á HM í fyrsta sinn.
ingvithor@365.is
UrðU Í ÞriðJA Sæti Í NorEGi
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta varð í þriðja sæti á æfinga-
mótinu í Noregi en liðið gerði
23-23 jafntefli við Svía í loka-
leiknum. Svíar skoruðu tvö síðustu
mörk leiksins og skutu síðan í
stöng í lokin. Ólafur Guðmunds-
son var markahæstur með 5 mörk.
SLÓ 30 árA ÍSLANdSMEt Í Gær
Aníta Hinriksdóttir sló í gær 30
ára Íslandsmet ragnheiðar Ólafs-
dóttur í 1500 metra hlaupi þegar
hún hljóp á 4:06,43 mín. í Hol-
landi. Aníta bætti metið um meira
en átta sekúndur. Aníta er nú með
lágmark á HM í London í ágúst í
bæði 800 og 1500 metra hlaupi.
á 16 HöGGUM UNdir pAri
Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög
vel á lokahringnum á KpMG
mótinu í Belgíu. Hann endaði í 4.
til 9. sæti á sextán höggum undir
pari. Birgir lék lokahringinn á -6 en
fyrir árangurinn fékk hann 800.000
krónur í verðlaunafé.
Við þurftum hæð í
varnarlínuna og ég
held að það hafi sýnt sig í
leiknum að þetta var rétt
ákvörðun.
Heimir um Hörð Björgvin
1 2 . j Ú n Í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
1
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
E
-4
4
4
0
1
D
0
E
-4
3
0
4
1
D
0
E
-4
1
C
8
1
D
0
E
-4
0
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K