Norðurslóð - 25.07.2013, Side 6
Tímamót
Skírn
Þann 20.júlí var skírður að Ægisgötu 6 Dalvík, Kristófer Leó Mireles
Foreldrar hans eru Hjördís Hólm Harðardóttir og Alfonso Mireles
Gultierez til heimilis að Svöluási lb 221 Hafnarfirði.
Brúðkaup
Þann 6. júlí voru gefin í heilagt hjónaband að Hrísrima 17 i Reykjavík
Hildigunnur Katrínardóttir og Gunnar Örn Magnússon
(Gunnarsson) til heimilis að Kristnibraut 91-93 í Reykjavík. Prestur
var Magnús G Gunnarsson
Þann 29. júlí 2012 voru gefin saman (með
leyndjþau Dagur Óskarsson (Pálmasonar)
og Bryndís Hrund Brynjólfsdóttir á Þverá í
Skíðadal.
Prestur var sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
Brúðkaupið varopinberað í brúðkaupsveislunni
sem fram fór þann 20. júlí sl á Þverá.
Þann 15. júní voru gefin saman við heimili sitt,
Másstöðum í Skíðadal, Óliver Hilmarsson og
Helga Björt Möller. Ragnar Elías Olafsson
Þveræingagoði gafþau saman.
Þann 29. júní voru gefin saman í skógræktinni
Dæli, Óskar Gunanrsson og Jóhanna Kristín
Arnþórsdóttir í Dæli. Prestur var sr. Magnús G.
Gunnarsson.
Afmæli
Þann 2. júlí síðast liðinn varð 80 ára, Ingibjörg
Ólafsdóttir Hátúni Árskógsströnd.
Andlát
Þann 16. júní sl. lést á gjörgæsludeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Hálfdánía
Árdís Jónasdóttir. Árdís fæddist á Sílalæk í
Aðaldal þann 11. janúar 1948. Foreldrar hennar
voru Jónas Andrésson, bóndi á Sílalæk, f. 5. ágúst
1899, d. 6. okt. 1966 og Guðrún Ármannsdóttir
húsfreyja, f. 28. okt. 1915, d. 30. des. 2002.
Systkini Árdísar eru Vilhjálmur, f. 22. júní 1935, Andrés Sverrir, f. 27.
maí 1937, Halldór, f. 15. des. 1942, Elín, f. 12. apríl 1946, Friðjón,
f. 19. júlí 1952, d. 2. sept 1973, Guðmundur Karl, f. 21. júlí 1954 og
Þröstur, f. 25. ágúst 1956.
Eiginmaður Árdísar er Rafn Hugi Ambjömsson, frjótæknir, f. 15. ágúst
1949. Dóttir þeirra er Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri, f. 3 okt.
1971. Eiginmaður hennar er Ingvar Öm Sigurbjömsson, verkamaður,
f. 21. ágúst 1973. Synir þeirra em Gunnlaugur Rafn, f. 8. janúar 2003,
Þröstur, f. 3. mars 2005, Öm, f. 18. okt 2007.
Árdís ólst upp á Sílalæk í Aðaldal, gekk í farskóla sveitarinnar og fór
síðan í Húsmæðraskólann á Laugum í Reykjadal. Ung að ámm vann
hún öll algeng sveitastörf heima og var í kaupavinnu á sveitabæjum
í nágrenninu. Árdís vann á Hótelinu á Laugum eftir útskrift úr
Húsmæðraskólanum og fór síðan að vinna í Skjaldarvík í framhaldi af
því. Þar kynntist hún eiginmanni sínum og fluttu þau til Dalvíkur 1971.
Undanfarin 30 ár hefúr Árdís unnið á Dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík.
Útför Árdísar fór fram frá Dalvíkurkirkju þann 25. júní sl.
Áskriftarsími Norðurslóðar er
8618884
Hrútaveiðar í Dalvíkurhöfn
Það var nokkuð óvenjulegur afli
sem Bessi Mar Ottósson 9 ára frá
Ingvörum landaði í Dalvíkurhöfn
þegar hann var á veiðum á
bryggjunni á Dalvík í síðustu
viku ásamt Orra Sæ bróður
sínum og frænku sinni ídu Aspar
Barkardóttur en þau eru bæði 6
ára.
Á öngulinn kom dauður
flekkóttur hrútur sem af
einhverjum ókunnum ástæðum var
á floti í sjónum og kominn inn fyrir
hafnarkjaftinn. Ekki dugði minna en
heil grafa til að landa ódrættinum.
Jón Þórarinsson í Hlíð var síðan
kallaður til og úrskurðaði hann
eftir stutta skoðun og markadóm
að hrúturinn væri frá Zophaníasi
Jónmundssyni á Hrafnsstöðum.
Hrúturinn hefur að líkindum farið
fram af klettum í Múlanum að sögn
Zophaníasar en ekki hefur hann
verið lengi í sjónum því hræið var
tiltölulega heillegt.
Það er svo annað mál að það ætti
Hrútaveiðimennirnir Ida, Orri og
Bessi skola af sér. Til vinstri liggur
lambhrúturinn ígröfukjaftinum
að vera óþarfí fyrir Ingvaramenn,
sem stunda umfangsmikla
sauðijárrækt, að sækja sér
lambakjöt með þessum nýstárlegu
aðferðum í Dalvíkurhöfn.
Krosshólshlátur kemur út í haust
í Haust kemur út hjá
bókaforlaginu Sæmundi bókin
Krosshólshlátur sem hefur
að geyma úrval úr kveðskap
gangnamanna í Sveinsstaðaafrétt
ásamt sagnfræðilegum og
staðfræðilegum útskýringum.
Það er Gangnamannafélag
Sveinsstaðaafréttar sem frumkvæði
hefúr haft að útgáfu bókarinnar
en Hjörleifúr Hjartarson tók
hana saman og skrifaði ítarlegar
skýringar og sögulega umgjörð.
I bókinni er rakin saga
Sveinsstaðaafréttar, riijaðar upp
sögur og frásagnir henni tengdar
og leitast við að bregða upp
mannlífsmyndum úr Svarfaðardal
að fomu og nýju með hjálp þeirra
vísna og gangnaannála sem skráðir
hafa verið í gestabækur í afréttinni í
gegn um tíðina.
Það fer ekki fram hjá þeim sem
komið hafa í réttir í Svarfaðardal
að gangnamenn em þar söngglaðir
í besta falli en textamir koma
mörgum spánskt fyrir hlustir ef
svo má segja. Krosshólshlátur
gefúr því fleirum enn innvígðum
afréttarmönnum kost á að kynnast
þessum kveðskap ogjafnframtþeim
tilefnum sem hann er sprottinn af.
Þessa dagana stendur yfir
söfnun mynda í bókina. Sérstaklega
em aðstandendur bókarinnar á
höttunum eftir gömlum myndum
úr afréttinni og úr Tungurétt. Vísast
liggja slíkar myndir víða misjafnar
að gæðum. Þeir sem eiga í fómm
sínum góðar myndir geta sett sig
í samband við Baldur Þórarinsson
(baldurbakka@simnet.is) Þórarinn
Hjartarson (thjartar@intemet.is)
eða Hjörleif Hjartarson (hjhj@
simnet.is).
Dagbjört Asgeirsdóttir sendir frá sér nýja bók um Gumma og Rebba
Gummi og dvergurinn úrilli
Dagbjört Ásgeirsdóttir
leikskólakennari og rithöfundur
á Dalvík hefur sent frá sér nýja
bók um þá félaga Gumma og
Rebba. í fyrra kom út eftir
hana fyrsta bókin Gummi fer
á veiðar með afa og fékk góðar
viðtökur. Bókagagnrýnandi
Morgunblaðsins gaf henni t.a.m.
fjóra og hálfa stjörnu. Sú bók
hefur nánast verið ófáanleg frá
því í desember en samhliða nýju
bókinni kemur út önnur prentun
af þeirri fyrstu.
Nýja bókin heitir „Gummi og
dvergurinn úrilli" og ijallar um
viskipti Gumma og yrðlingsins
Rebba við harla reiðan dverg,
en Gummi hefur orðið fyrir því
óláni að hrapa ofan í bústað hans
í ijallshlið nokkurri. Gummi á í
mestu vandræðum með að afstýra
því að dvergurinn, sem nefnist
Bráðlátur, breyti honum í mús með
galdrastafnum sínum. Meira verður
ekki látið uppi um söguþráð nýju
sögunnar
Nýja bókin um Gumma
og dverginn úrilla er eins og
sú fyrri ríkulega myndskreytt
vatnslitamyndum eftir Karl Jóhann
Jónsson. Það er Bókaforlagið
Oðinsauga sem gefur hana
út. I bókarlok eru orðalisti og
leiðbeiningar fyrir fúllorðna
Dagbjört Asgeirsdóttir með fyrstu
bókina um Gumma og Rebba sem
nú er komin tir endurprentun
lesendur varðandi upplestur fyrir
böm.
Dagbjört mun lesa upp úr nýju
bókinni í Bergi á Dalvík þann 9.
ágúst nk. kl 11:30 í útgáfúteiti
fyrir böm. I framhaldinu fer hún
í upplestrarferðir vítt og breitt um
landið eins og i fyrra.
Sem fyrr segir var fyrri bókinni
tekið vel og seldist hún upp bæði
hér norðan lands og fyrir vestan en
Dagbjört er ættuð að vestan og upp
alin í Bolungarvík.
Dagbjört segist þegar hafa lokið
við að skrifa heilar fimm bækur um
þá félaga Gumma og Rebba sem
Dvergurinn úrilli, Bráðlátur
koma munu út jafnt og þétt næstu
árin. Þá á hún einnig efni í fleiri
sögur.
Yrðlingurinn Rebbi sem er
hinn ferfætti förunautur Gumma
í gegn um bækumar á sér lifandi
fyrirmyndir. Afi Dagbjartar var
grenjaskytta og Dagbjört segist
ásamt frændsystkinum sínum hafa
alist upp við það að yrðlingar vom
hafðir í fóstri á bænum. Þannig
var því einnig háttað þegar móðir
hennar ólst upp og sömu sögu er
að segja um ömmu hennar. Allar
vom þær tengdar lágfótu traustum
böndum og því er eðlilegt að
söguhetja hennar eigi sér rebba að
vin.