Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 2

Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 2
2. SÍÐA Hvergi sleppur maöur viö uppvaskiö Sögulegur aðdragandi kvennaframboðs i Reykjavíkl982 Það var eitt fagurt vorkvöld fyrir tæpu ári sem ákveöið var aðkanna hvort áhugi væri á þvl að bjóða fram sérstakan kvennalista i' borgarstjórnar- kosningunum vorið 1982. 1 hiísi einu nálægt miðborginni settust þrjár konur niður og skráðu á blað nöfn nokkurra þeirra kvenna semhugsanlega væru til 1 að ræöa málið. Siðan var boðáö til fundar, sem leiddi i ljös mik- inn áhuga á kvennaframboði og vilja til að fara nýjar leiðir í kvenfr elsisba rá ttun ni. FYrr um veturinn hafði hug- myndin kviknaö I hópi kvenna sem m.a. ræddu um aðstöðu skólabarna, en af fram- kvæmdum varö ekki fyrr en sumargekk Igarð. Þetta gerðist um likt leyti og það fregnaðist að konur á Akureyri væru i svipuðum hugleiðingum. Sjálf hugmyndin um kvenna- lista er ekki ný af nálinni svo sem kunnugt er. A fyrstu ára- tugum aldarinnar beittu kven- réttindakonur kvennalistum til að „koma konum aö”, en eftir því sem stéttastjórnmálin þróuöust og þó einkum eftir að IngibjörgH. Bjamason gekk til liðs við Ihaldsflokkinn á alþingi, var grundvellinum kippt undan sérstökum kvennaframboöum. En hvers vegna aö fara I félagsins, þar sem hún ætti að njóta sín. Við vitum ósköp vel að allir stjórnmálaflokkarnir eru mótaöir og þeim stjórnað af körlum og að þau málefni sem gætu bætt hag kvenna, lenda jafnan neðst á lista. Þvi varð það niðurstaða þeirra kvenna sem ræddu kvennaframboö að stjórnmálaflokkarnir væru ekki sá vettvangur sem viö vildum vinna á, áður en svo yrði þyrfti margt að breytast, bæði stefnur ogstarfshættir. Við vildum fara okkarleiö á okkar forsendum. En aftur til sögunnar. Fram- eftir öllu sumri og fram 'a haust var fundaö og fundað, viku eftir viku. Það var rætt um kvenna- baráttu, kvennamenningu, borgarmál og baráttuleiöir. Skoðanir voru nokkuð skiptar á þvi hvernig framboðið ætti að verða, hvaöa mál ætti að setja á oddinn og hvernig, en smám saman skýrðust linur, þær hug- myndir sem fram koma i hug- myndafræðigrundvelli kvenna- framboðsins urðu ofan á. Loks kom þar að haldinn var opinn fundur að Hótel Borg 14. nóv. þarsem samþykktvar aðstefna aö kvennaframboði. Ég held að óhætt sé að segja að i hugum flestra þeirra sem starfað hafa aö kvennafram- Hugmyndin kviknar MARS 1982 Starf og meira starf kvennaframboð á þvi herrans ári 1982? Hvaða aðstæður valda þvi að konurvelja núað fara þá leið? Jú, svariö er einfaldlega: mikil óánægja. Við erum orðnar langþreyttar á þeim aðstæöum sem konur búa við I þjóðfélag- inu (tvöfóldu vinnuálagi, skorti !á dagheimiluni, húsnæðisá- þjáninni ofl.). Við erum hund- leiðar á þvl aðveraeillflegalágt launaðar og lltilsmetinn vinnu- kraftur, dauöþreyttar á eilífum hlaupum milli vinnustaðar, dagheimila (dagmamma), verslana og heimila. Við erum reiðar yfir valda- og áhrifaleysi kvenna I samfélaginu, þvi þær eru svo sannarlega ekki þar sem ákvaröanir eru teknar. Loks erum viö vonsviknar yfir þvi hve hægt gengur að bæta stöðu kvenna þrátt fyrir stöð- ugar umræður I meira en ára- tug, það varð að gripa til kvennaráða. Konur eru nú samt bæði hressar, kátar og baráttu- glaðar, þrátt fyrir allt, þvf við vitum að við höfum margt já- kvætt fram að færa. Við vitum vel að ólaunuð störf kvenna haldaþjóðfélaginu gangandi frá degi til dags, að konur eru I nánum tengslum við daglegt lff og þarfir jafnt á vinnumarkaði san á heimilum, en sú mikla reynsla sem konur búa yfir nýtist eldci við mótun sam- boðinu sé hér um pólitlska aðgerð aö ræða, pólitisk mót- mæli gegn rikjandi ástandi. Við ætluðum okkur (og ætlum) að hafa áhrif og virkja konur til dáöa, reyna að ýta við flokkun- um og fá þá til að bæta hlut kvenna innan s inna vébanda, en þó einkum ogsér I lagi aö vekja upp umræður. Já, umræður og meiri umræður. Ekki aðeins um þau málefni sem brenna á konum, heldur lfka grund- vallarspurningar sem snerta mannlifið i Reykjavlk: hvert erum við að stefna? Hvaða hagsmunir ráða? Fyrir hverner borgin skipulögö? Hvernig er hægt að breyta og bæta ibúunum í hag? Hvernig getum við sjálf haft áhrif á það sem gerist I borgarlifinu? Kvenna- framboðið snýst nefnilega um málefni og stefnur, ekki um menn. Það er ekki nóg aö kjósa konur bara vegna þess að þær eru konur, þær verða að vinna öðrum konum til hagsbóta. Kvennaframboðinu hefur tekist að ýta rækilega við fólki, ekki sistkonum innan flokkanna og er það vel, en nú er siðasti hlutinn eftir, sjálf umræðan. Hvað gerist eftir kosningar skal ósagt látið. Þegar þar að kemur munum við vega og meta árangurinn og taka ákvörðun um framhaldið. Kristín Ástgeirsdóttir. ■ Greinarhöfundur hugleiðir næstu málsgrein

x

Kvennaframboðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennaframboðið
https://timarit.is/publication/1266

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.