Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 14

Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 14
14. SÍÐA MARS 1982 Myndirnar hér á síðunni og i opnu tók Kristján Ingi Stefnuskrá Framhald af 13. si&u. [ þess kynning á þvi sem er á döfinni i Reykjavik á hverjum tima. Kvennaframboöiö vill aö Borgarbókasafniö I samráöi viö Kvennasögusafn íslands, leggi sérstaka áherslu á aö afla bóka eftir konur og um stööu kvenna, þannig aö þær veröi aögengilegar borgarbúum. Verja skal minna fé i stór iþróttamannvirki fyrir keppnis- Iþróttir en koma þess i staö upp aöstööu til Iþrótta og útiveru al- mennings I nágrenni heimila. Leita skal samstarfs viö Iþrótta- félögin um aukin afnot almenn- ings af þvi Iþróttahúsnæöi sem fyrir er. Skipulags- og húsnæðismál Kvennaframboöiö vill aö raun- veruleg áhrif ibúa borgarinnar á skipulag hennar komi i staö þess sýndarlýöræöis sem nú rikir. Haft skal samráö viö Ibúa um skipu- lagningu nýrra hverfa og endur- skipulagningu eldri hverfa. 1 öllu borgarskipulagi veröur aö taka miö af daglegum þörfum fólks, svo sem innkaupum, barnaheimilum, atvinnu, tóm- stundum og hvild. Hverfin eiga aö vera blönduö aö byggö og i hverju hverfi misstórar Ibúöir fyrir mis- munandi fjölskyldur og sambýlis- form. Skipting borgarinnar i Ibúöar- hverfi, atvinnu- verslunar- og þjónustuhverfi er óæskileg. 1 Ibúöahverfum eiga einnig aö vera atvinnufyrirtæki sem hafa ekki slæm áhrif á umhverfiö vegna mengunar eöa annarra óþæginda. Hverfin eiga aö vera skipulögö meö þarfir ólikra þjóöfélagshópa i huga. Leggja þarf rækt viö gömlu hverfin og fullnýta þá möguleika sem þau búa yfir. Viö endurnýjun þeirra ber aö taka tillit til byggö- ar, gróöurs, náttúru og menn- ingarverömæta. Lögö skal alúö viö aö búa til skjólgóö útivistar- svæöi og reynt veröi á allan hátt aö gera útiveru I hverfunum aölaöandi og örugga fyrir alla aldurshópa. Kvennaframboöiö styöur al- mennar hugmyndir I skipulags- gögnum borgarinnar um þéttingu og blöndun byggöar en leggur áherslu á aö þær veröi fram- kvæmdar i samræmi viö vilja Ibúa. Viö þéttingu byggöar I eldri hverfum eiga sambýlishús meö ibúöum og húsrými fyrir sam- eiginlega þjónustu aö ganga fyrir. Þar skal miöaö viö þarfir aldr- aöra, fatlaöra og ungra fjöl- skyldna. Kvennaframboöiö styöur til- lögur er komiö hafa fram um aö flytja flugvöllinn úr miöborg Reykjavikur. Viö bendum jafn- framt á, aö þetta mál er brýnt af öryggisástæöum. Viö flutning flugvallarins gefst kostur á úti- vistarsvæöum viö suöurströndina en noröurströndin hefur þegar veriö lögö undir iönaö og hafnar- mannvirki. Brýnt er aö leysa mengunarvandamál viö strendur borgarinnar og bæta þárf hvers kyns mengunarvarnir I borginni sjálfri. Sporna skal viö hvers kyns sóun á orku. Borginni ber i samvinnu viö rikiö aö hafa þar forgöngu meö upplýsingum og fræöslu. Samgöngur meö almennings- vögnum þarf aö bæta, þannig aö fljótlegt og einfalt veröi aö feröast bæöi innan hverfa og á milli borgarhluta. Þaö dregur úr umferö einkabila og skipulag um- feröarmála veröur markvissara. Þess skal gætt aö öryggi gang- andi og hjólandi fólks sitji I fyrir- rúmi. Fatlaöir veröa aö komast leiöar sinnar um borgina og eiga greiöan aögang aö stofnunum hennar. Auövelda skal almenningssam- göngur viö útivistarsvæöi I ná- grenni borgarinnar, svo sem Heiömörk og Viöey. öllum má ljóst vera aö hús- næöismál borgarbúa eru i öng- þveiti. Biölistar vegna leiguhús- næöis borgarinnar eru langir og 1200 fjölskyldur sækja um 270 Ibúöir I verkamannabústööum. Kvennaframboöiö telur þennan vanda ekki einkamál hvers og eins, heldur er þetta vandamál sem krefst skjótra úrbóta og samfélaginu ber aö leysa. Allar aörar félagslegar umbætur missa marks ef frumþörfum fólks um öruggt húsnæöi er ekki sinnt. Ljóst er aö Reykjavikurborg ein og sér getur ekki leyst þennan vanda, en þá kröfu veröur aö gera til borgaryfirvalda aö byggingar- samvinnufélög sitji fyrir viö lóöa- úthlutun. Kvennaframboöiö leggur áherslu á mörkun fram- tiöarstefnu I húsnæöismálum þar sem aöaláhersla veröi lögö á félagslegar lausnir og framboö á fjölbreyttu húsnæöi. Almannavarnir Kvennaframboöiö telur brýnt aö efla almannavarnir ef til náttúruhamfara eöa styrjaldar kæmi og vegna hættu af hern- aöarumsvifum á friöartimum. Fræösla og leiöbeiningar um almannavarnir geta oröiö aö ómetanlegu gagni og þvi viljum viö stuöla aö umræöum um. þau mál. Þeirri umræöu er hvorki ætlaö aö vekja ótta né falska öryggiskennd, heldur aö vekja at- hygli á þeim ráöstöfunum sem brýnastar eru: — Mikilvægt er aö kynna öllum hvernig bregöast skal viö náttúruhamförum. — Nauösynlegt er aö Almanna- varnir rikisins láti aftur kanna hvaöa húsnæöi á höfuöborgar- svæöinu veitir fullnægjandi skjól fyrir geislun. Niöurstöður slikrar könnunar verði birtar almenningi og skýlin auðkennd. Heilbrigðismál Kvennaframboöiö leggur höfuðáherslu á heilsuvernd með fyrirbyggjandi heilsugæslu. Hraöa ber uppbyggingu heilsu- gæslustööva I hverfúm borg- arinnar og auðvelda fólki aö fá læknishjálp. Viö skipulag heilsugæslu verð- ur aö taka sérstakt tillit til þarfa gamals fólks og þaö verður aö eiga kost á reglubundinni skoðun á heilsugæslustöövum. Heimahjúkrun og heimilis- aðstoö styttir oft dvöl sjúklinga á sjúkrahúsum. Þaöhefur I för með sér betri nýtingu á sjúkrarými og aukinn sparnað, og er auk þess oft i meira samræmi viö þarfir og óskir sjúklinga en sjúkrahúsdvöl. Bæta veröur aðstööu aldraöra sem þurfa aö leggjast skyndilega á sjúkrahús. Eins og málum er nú háttaö reynist mjög erfitt aö koma veiku, gömlu fólki inn á sjúkrahúsin vegna ótta stjórn- enda þeirra viö aö þaö þurfi á langri sjúkrahúsdvöl aö halda. Nauösynlegt er aö opna eina deild i borginni fyrir bráöainnlagnir aldraöra, fjölga hjúkrunar- deildum og koma á fót hjúkrunar- heimilum fyrir langlegusjúk- linga. Meira fé á aö verja til kynlifs- fræðslu á vegum borgarinnar og kynfræðsludeildina á Heilsu- verndarstöð Reykjavikur þarf aö efla. Fræöa þarf konur um iikams- starfsemi sina og þær breytingar sem verða á henni á ólikum ævi- skeiðum. Þá telur Kvennaframboöiö aö meö auknu átaki megi: — draga úr hörmungum um- ferðarslysa meö þvi að skipu- leggja alla umferö með öryggissjónarmiö aö leiöar- ljósi. — fækka atvinnusjúkdómum og vinnuslysum meö þvi aö vekja umræöu um vinnuvernd. — gera baráttu gegn vimugjöfum virkari. — bæta mataræöi með fræöslu og áróöri. Neyðarathvarf fyrir konur A undanförnum árum hafa konur um allan heim reynt aö vekja athygli á þvi hve margar konur eru beittar ofbeldi. Nýleg könnun sýnir svo ekki veröur um villst að Islenskar konur eru einnig beittar ofbeldi. Þurfi þær að flýja aö heiman eiga þær oft ekki I neitt hús að venda. Kvennaframboöiö vill beita sér fyrir þvi aö borgin, nágranna- sveitarfélög og rlkið standi straum af kostnaöi viö stofnun neyðarathvarfs fyrir konur. Hlutverk neyöarathvarfs kvenna er: Aö veita þeim konum sem beittar hafa veriö ofbeldi eða er hætta búin, skyndihjálp, húsaskjól, ráðgjöf og annan stuöning.

x

Kvennaframboðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennaframboðið
https://timarit.is/publication/1266

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.