Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 19
MARS 1982
SÍÐA 19
klofvega á tveimur hálum stein-
um. Þeir voru hættir viö aö leita,
hún gæti þessvegna drekkt sér I
einhverjum hylnum. Hún túk upp
um sig skokkinn og horföi á
magabeltiö, beru röndina á milli
þess og sokkana, og svo.á sokk-
ana. Hún smeygöi sér úr maga-
beltinu og sokkunum án þess aö
losa um þá. Hún hélt á magabelt-
inu og horföi á sokkana dingla i
þvi. Hún lét strauminn toga I
sokkana. Svo lét hún strauminn
taka þá og magabeltiö. Hana
langaöi úr öllum fötunum. Hana
langaöi til aö synda, breytast i sil-
ung, fljóta meö straumnum, sam-
einast vatninu, leysast upp, hætta
aö vera til. Hún hrökk upp úr
þessum hugsunum sinum viö þá
skelfilegu hugmynd aö strákarnir
stæöu kannski neöst viö ána, þar
sem hún rann út I fjöröinn og
veiddu hlébaröamagabeltiö og
sokkana. Hún lamaöist af skelf-
ingu og rann til á steinunum. í
einu ofboöi hljóp hún yfir ána og
upp á grasbalann hinum megin.
Núna varö hún aö ganga berfætt
heim aö bænum. .Strigaskórnir
voru hinum megin. Hún óö yfir
ána aftur. Fór i strigaskóna. Fæt-
urnir voru rauöir og bláir. Tárin
spruttu fram á vanga hennar eins
og heitur þrumuskúr og áöur en
hún vissi af grét hún hástöfum á
árbakkanum. Hún horföi á vatniö
sem haföi hægt á ser og stöövast i
pínulitlu lóni og hún lét tárin detta
á þaö eins og regndropa. Um leiö
speglaöist andlit hennar I vatninu
og franska munstriö á blússunni
hennar hreyföist og mjakaöist á
vatnsfletinum. Nafn hennar var
kallaö I fjarska. Þaö var Bergur.
Enginn mátti sjá aö hún var aö
grátav Hún faldi sig aftur á bak
viö stóran stein. Hann hætti aö
kalla á hana. Sólin var henni ekki
lengur hliöholl.
Hún gekk i humátt aö bænum,
köld og stirö og tóm. Þegar hún
kom i bæjardyrnar mætti henni
þetta dulúöarfulla bros og henni
var sagt aö fólkiö hennar væri
fariö. Enginn virtist taka eftir þvi
að hún var berfætt i skónum. Hún
náði i peysuna sina inn i stofu og
þakkaði fyrir sig. Skyldfólkið úr
næsta firði var lika á förum.
Henni var troðiö inn i jeppa. I
baksætið. Ofan á sjómanninn.
Sonurinn langi virtist gufaöur
upp. Húsmóöirin dulúðuga bauö
hana velkomna sem fyrst aftur og
lofaöi henni nýbökuöu uppáhalds-
brauöi. Jeppinn hristist af staö.
Hjónin rifust. Börnin grenjuöu .
Hún sat ofan á sjómanninum.
Hann hélt utan um magann á
henni meö vinstri handlegg. Hann
skoröaði hana svo hún ylti ekki út
á hliöarnar. Hún fann aö heit og
stór hönd hans snerti fótlegg
hennar, sem var kaldur. Hann
strauk henni rólega upp aö hné.
Hjónin tóku ekki eftir þvi. Börnin
voru of upptekin af sjálfum sér og
lömbunum sem hlupu með vissu
millibili yfir veginn. Þau voru aö-
eins tvö I þessum heimi. Hann fór
undir faldinn á bleika skokknum
hennar. Hann fikraöi sig ofar.
Hann spuröi hana hvislandi hvar
hlébaröamagabeltiö væri og hún
sá I bilstjóraspeglinum aö hann
glotti. Hún gat ekki sagt neitt.
Hún kleip hann af alefli I handar-
bakið og handlegginn, en þaö
dugöi ekki til. Hjónin i framsæt-
inu rifust enn meira. Bærinn ætl-
aöi bókstaflega aldrei aö nálgast.
Timinn stóö i stað. Jeppinn dratt-
aöist varla úr hjólförunum. Haus-
inn skall I þverspýtu i loftinu.
Börnin uröu bara hávaðasamari
og rollurnar fleiri og fleiri. Sjó-
maöurinn var aö káfa á henni eins
og ekkert væri. Hún sem var svo
litil. Skotin 1 Bergi. Hrifin af
langa syninum á Hömrum. í haldi
hjá sjómanni aö sunnar. Hlé-
baröamagabeltiö og sokkárnir
horfnir i Golfstrauminn eða ofan
á einhvern hval.
„Lára, ert þetta þú, Lára ert
þetta þú, Lára, ertu þarna inni,
viltu gjöra svo vel og opna dyrnar
og koma þér út barn. Hvaö ertu
eiginlega aö hangsa þarna inni.
Hvar I ósköpunum varstu? Viö
vorum oröin hrædd um þig? Hvaö
ertu búin aö vera lengi þarna
inni? Viltu skræla kartöflurnar.
Skiptu fyrst um föt vinan. Og
leggöu siöan á borö. Hvaö varstu
að gera svona lengi inni á kló-
settinu? Varstu bilveik, þú ert ná-
föl barn? Varstu ekki I neinum
sokkum i allan dag? Stúlka sem
er vönd aö virðingu sinni gengur
ekki um meö bera fótleggi.
Eftirtaldir aðilar
veittu
Kvermafi*amboði
stuðning við útgáfu
þessa blaðs:
Galleri Langbrók
Amtmannsstig 1
Bókhlaðan og markaðshúsið
Laugavegi39,
Bókhlaðan Glæsihæ
Bókaútgáfá menningarsjóðs
og þjóðvinafélagsins
Skálholtsstig
Sölutuminn Hagamel 67
Snyrtistofá Gróu
Vesturgötu 39 s. 16508
Kristján Siggeirsson
húsgagnaverslun,
Laugavegil3 s. 25870
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Lækjargötu 12 s. 20580
Galleri og Eva
Laugavegi 42 s. 20625
Hargreiðslustofán Lokkur
Strandgötu 1 s. 51388
Hargreiðslustofá
Jónu Jónsdóttur
Laugavegi 133 s. 24600
Sjáðu hvernig bakað er á 1 mínútu, matur hitaður á
örskammri stund, hvernig krakkarnir geta poppað án þess
að brenna sig eða eyðileggja pottana þína. Og sunnudags-
lærið stiknar á 20—30 mínútum.
TOSHIBA-örbylgjuofnarnir bjóða upp á stórkostlega mögu
leika fyrir fjölskyldur, sem borða á mismunandi tíma, borða
mismunandi fæði (megrun, magasjúklingar). Toshiba
ofnarnir eru svo einfaldir og öruggir í notkun, að börn geta
matreitt í þeim.
Toshiba örbylgjuofn er meira en bara venjulegur örbylgju-
ofn, þú getur matreitt og bakað í honum flestar uppskrift-
irnar þínar.
Og síðast en ekki síst, svo þú fáir fullkomið gagn af
Toshiba ofninum þínum, býður Dröfn þér á matreiðslu-
námskeið án endurgjalds.
Heimilisfang
Stærstir í gerð örbylgjuofna
Verð frá
kr. 4380,-
Vinsamlega póstsendið
frekari upplýsingar.
Til Drafnar H. Farestveit,
hússtjórnarkennara
Einar Farestveit & Co. hf.
Bergstaöastrxti 10A.
Komdu og
láttu Dröfn sýna þér
byltingu í
matreiðslu í
TOSHIBA
ÖRBYLGJUOFNUNUM
i verzlun okkar á Bergstaöastræti 10A laugardaginn 27. marz kl
10—12.