Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 5

Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 5
MARS 1982 /SIÐA^ Valddreifing breytingar á borgarinnar Eitt at baráttumálum Kvenna- framboðs er að breyta stjórnkerfi borgarinnar þannig að borgar- bUar hafi raunveruleg áhrif á ákvarðanir um málefni sin. Við teljum að slikar breytingar leiði til þess að borgarbúar verði virkari og ábyrgari við að móta nánasta umhverfi sitt og jafn- framt verði betur tryggt að þeir fjármunir sem borgin hefur til umráða nýtisttilað mæta þörfum borgarbúa. Reykjavíkurborg býr við staðnað og úrelt stjómunarform. Umfjöllun um rekstur og fram- kvæmdir borgarinnar er deilt niður á ráð og nefndir, dagvist- un, fræðslumál, iþróttamál, æskulýðsmál svo dæmiséu nefnd. Þessu fyrirkomulagi fylgja margir ókostir, sem bitna á okkur borgarbúum. Fyrst er til að nefna að ákvarðanir ogframkvæmdþeirra er að öllu leyti i höndum borgar- stjómar, nefnda og embættis- manna. Við borgarbúar, sem fjármögnum fyrirtækið með sköttum og gjöldum fáum engu um ráðið i hvað peningarnir eru notaðir. Annað atriði er að hver nefnd og stofnun sem henni fylgir vinn- ur einangrað án þess að vita hvað aðrar nefndir eru að gera. Borg- arst jórn og borgarráði er ætlað að hafa heildaryfirsýn yfir borgar- málefni, en eftir þvi sem borgar- kerfið þenst út veröur þetta æ erf- iðara og hinir kjörnu fulltrúar neyöast til að sérhæfa sig i ákveðnum málaflokkum. Þriðja atriðið sem ég vil nefna er að i slfku kerfi er mikil hætta á að ekki sé horft fram í timann og reynt að gera sér grein fyrir hverju þurfi að breyta. Kerfið verður sjálfvirkt. Það þjónar fyrst og fremst sjálfu sér, ekki ókkur borgarbúum. Loks er að geta þess að nýir málaflokkar eru látnir sitja á hakanum. Stofnanir borgarinnar ýta þeim frá sér sitt á hvað og enginn vill taka ábyrgð á þeim. Við svo búið má ekki lengur standa. Þjónusta borgarinnar verður fyrst og fremst að taka mið af þörfum okkar borgarbúa hverju sinni. Hver ætti að vera betur i' stakk búinn til þess að segja til um þar en við sjálf? En borgin er ekki öll eins. Hvert hverfi hefur sin sérkenni, félags- leg,efnahagsleg og menningarleg og það verður að taka tillit til þessa og miða aðgerðir við það. Einfaldasta og áhrifarikasta leiðin virðist mér vera að ibúar stofni hverfasamtök. En hverfa- samtök án valds missa marks. Fyrsta skrefið verður þvi að vera að tryggja þeim viðurkenningu sem undirstöðu stjórnkerfis borgarinnar, þ.e. að frumkvæði komi frá þeim um þjónustu fyrir hverfisbúa og að þau geti fylgt málum eftir i borgarstjóm. Dæmi um málaflokka sem eðli- legt er að hverfasamtök fjalli um eru: fræðslumál, útivera og iþróttir, æskulýðsmál, heil- brigðismál, dagvistarmál, gatna- gerð og félagsmál. Þessir mála- flokkar snerta beint hvern ein- °9 stióm asta ibúa hverfa einhvern timann á lifsleiðinni. Hverfi getur kosið sér fulltrúa i hverfaráð, sem kæmi i stað þeirra nefnda og ráöa, sem nú fjallaum þessi mál. Tvö eða fleiri hverfi gætu sameinast um eitt hverfaráð. Hverfaráð legöu rök- studdar tillögur sínar fyrir borgarstjórn, sem tæki endan- legar ákvarðanir um verkefni og forgangsröð þeirra i hverfum. Skipulagsbreyting sem þessi hefði í för með sér breytingar á starfi borgarstjórnar. Borgar- fulltrúar yrðu að setja sig betur inn í heildarstarfsemi borgar- innar, þeir yrðu einnig að standa hverfasamtökum skil á ákvörðun- um sem þeir tækju og útskýra á hverju þær byggðust, vegna þess að frumkvæði mála kæmi frá okkur, borgarbúum sjálfum. Vilji okkar og þarfir ákvörðuðu þjón- ustuna en ekki öfugt eins og nú gerist. Viö létum ekki lengur segja okkur hvað okkur væri fyrir bestu, við færum aö eiga þátt i að ákveöa það sameiginlega. Samfara skipulagsbreytingum af þessu tagi verður að breyta fjármálastjórn borgarinnar. Nú fá málaflokkar ákveðnar fjár- hæðir úr borgarsjóði til fram- kvæmda og reksturs. Sáralitlar hlutfallslegar breytingar eru á fjármagni til málaflokka frá ári til árs. Það hefur i för með sér að ekki er hægt að mæta brýnni þörf á úrbótum. Nægir að nefna dag- vistarmál í þvi sambandi. Til þess að fá sveigjanleik i stjórnkerfið og möguleika til að mæta aðstéðjandivandaverður að hætta að binda fjármagn einstök- um málaflokkum. Þess i stað verður að leggja það i sameigin- legan sjóð. Þá er hægt að sinna Enginn spyr krakkana. Mynd: Kristján Ingi málum I forgangsröð og mæta nýjum áður óskilgreindum vanda. Þeim sem kynnu að þykja þess- ar hugmyndir óraunsæjar er rétt að benda á að í mörgum borgum er verið að þreifa sig áfram og leita stjórnunarforma, sem betur fallaað nútíma þjóöfélagi, en það kerfi sem við nú búum við. Það er hins vegar ljóst að breytingar sem þessar þarf að ræða vel og þá fyrst og fremst meöal okkar borgarbúa. Breyt- ingar, sem ekki fela í sér að við fáum möguleika i reynd til að hafa áhrif á og móta umhverfi okkar og daglegt lif, þjóna engum tilgangi. Guðrún Jónsdóttir. Hverjir eru kvensamir? Athugasemdir um hugmynda- fræði og tungumál Ekki alls fyrir löngu mátti heyra i útvarpinu frétt þess efnis, að um 600 skandinaviskir læknar hefðu komið siglandi hingaö á læknaþing ásamt konum sínum og bömum. Ég gerði mér litið fyrirog hringdiá fréttastofuna til að grennslast fyrir um, hvort það gæti virkilega verið, að allir þess- ir læknar væru af karlkyni, eins og af fréttinni mátti ráða. Litið varð um svör, og áhugi á málinu virtist takmarkaður. Ég hringdi þá á skrifstofu læknaþingsins og spurðistfyrirumþað samaog þar fékk ég þau svör, að þó nokkrir læknanna væru konur og væru eiginmenn sumra þeirra i fylgd með þeim, án þessað vera læknar sjálfir. Ég flýtti mér aö hringja aftur niður i útvarp til að koma þessum upplýsingum á framfæri og biðja um að fréttin yrði leið- rétt. Þetta var tekið til vinsam- legrar athugunar og ég beið við útvarpstækið þar til fréttatiman- um var lokið til að heyra ,,leið- réttingu á frétt”. En hún kom ekki. Ég fór að efast um mig. Hafði ég gengið of langt i frekju og af- skiptasemi? Af hverju var ekki tekið mark á mér? Skipti þetta kannski engu máli? Nei, það skiptir i rauninni litlu máli hvers kyns læknar á ein- hverju þingi kunni að vera. En það skiptirmáli, hvernig við — og að ekki sé nú talað um opinbera fjölmiðla — notum tungumálið. 1 málnotkuninni speglast nefnilega oft viðteknar og oftast nær ómeð- vitaðar hugmyndir manna um hlutverk og stöðu kynjanna, hug- myndir sem eru orönar úreltar og reglu, stúdent og karlstúdent, skáta og karlskáta, verkamann og verkakarl, þar sem karlmað- urinn yrði gerður að sértæku fyr- irbrigöi, að undantekningunni. Skyldi ekki einhverjum bregöa? Llklegra er þó, aö við yröum tald- ar geggjaðar. Að konur eru hitt kyniö og i rauninni ekki taldar með, kom af- skaplega skemmtilega fram i einu dagblaðanna nú fyrir skömmu, þegar það einu sinni sem oftar var að stæra sig af jafn- réttishugsjón flokksins sins. Nú hafði flokkurinn unniö sér það til ágætis aö stilla upp konum á list- ann til borgarstjómarkosning- anna, og vegna þess hvað það er afbrigðilegt þurfti sérstaklega að benda á þaö. I þvi skyni bjó blaðið tilskritlu, þar sem brugöið er upp mynd af konu sem er að segja frá þvi að nú sé farið að tala um hvað flokksmenn þessa ákveöna flokks séu orönir kvensamir! Það fer vart fram hjá neinum hvers kyns flokksmenn eru taldir i flokknum þeim. Þrátt fyrir allt. Skritlur geta sem sagt oft verið nokkuð afhjúpandi úm hug- myndafræðileg viðhorf og komiö harkalega upp um þá sem þær segir. t dagblaöi um daginn var verið að afgreiöa einn stjóm- málaflokkinn með þvi að gera rokna grln að ákveönum hluta hans, sem ýmist var kallaður „stuttbuxnadeildin” eða „ihalds- drengirnir”. Sem sagt engar kon- ur þar. Entilþess að gera skömm þessara drengja sem mesta fylgdi skrifunum afskaplega hlægilegmynd, þar sem hausarn- ir á forkólfunum voru komnir á kvenmannskroppa klædda af- káralegum kvenmannsfötum. Þeir voru þá, þegar allt kom til alls, barakerlingar! Umheimsku þeirra þarf auðvitaö ekki frekar vitnanna viö, þeir eru búnir að vera. Konur eru nefnilega, eins og við öll vitum, svo afskaplega vitlaus- ar I stjórnmálum. He,ga Kress ið. Þessi hugmyndafræði kemur ákaflega skýrt fram i orðinu maður, sem i rauninni merkir bæði karl og kona, en fær i mál- notkuninni merkinguna karlmaö- ur. Maður og kona er nafn á skáldsögu, og „fram fram bæði menn og fljóð” segir i alkunnum söng. Einnig kemur þetta greini- lega fram í gerandnöfnum svo sem skáld — skáldkona, lögregla — kvenlögregla, stúdent — kven- stúdent, skáti — kvenskáti, verkamaður — verkakona, þar sem hið almenna orð merkir karl- manninn, hið sértæka konuna. Hvernig væri ef við snerum þessu við og færum að tala um skáld og karlskáld, lögreglu og karllög- Pool players 1974 Abigail Heyman ég held að flestir myndu, a.m.k. aðspurðir, vilja breyta. I þessu sambandi erm jög nauðsynlegt að gera greinarmun á málinu sjálfu og málnotkuninni. Það er allt I lagi með orðin sjálf, en það er samsetning þeirra og það sam- hengi sem þau koma fyrir i, sem við þurfúm að vera á verði gagn- vart. Frétt útvarpsins af læknun- um og konum þeirra er mjög gott dæmi um ógagnrýna og hugsun- arlausa málnotkun, málnotkun sem ekki einungis styöst við rikj- andi hugmyndafræði, heldur einnigstyður hana. Hjá þeim sem fréttina samdi hefur orðið læknir umsvifalaust kallað fram mynd af karlmanni. Konurnarsem voru með læknunum i för hljóta þvi" all- ar að vera eiginkonur þeirra, til- heyra fjölskyldunni eins og böm- in. Hvaða erindi annað skyldu þærhafa átt á læknaþing? I frétt- inni voru eiginmenn lækna gerðir að læknum og læknar að eigin- konum. Af hverju fæst svona ekki leiörétt? Af því að þessi málnotkun er al- gjörlega í samræmi við rikjandi hugmyndafræði, þar sem litiö er á karlmenn sem gerendur og á konur sem þolendur þeirra eöa áhangendur. Að vera karlmaður er reglan. Kcnan er hiö sértæka fyrirbrigði, undantekningin frá þvf aö vera karlmaður. Hún er „hitt kynið”fremur en mannkyn-

x

Kvennaframboðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennaframboðið
https://timarit.is/publication/1266

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.