Víkurfréttir - 21.10.2004, Qupperneq 2
o
E
m
0
0
Stafræn
myndavél
hleðslutœki og taska fylgir fritt
með að verðmæti kr. 4.500
Upplausn: 3.2 MegaPixel
Aðdfóllur: 40-11 Immm, I5x
Hreyfimyndir: ótakmarkoð eftir
stærð minniskorts
Fókus: Normal AutoFocus
X.Xm ócndanlcgt, Macro
AuloFocus X. 14-X.Xm
Lokarahraði: 2 til 1/2000 sek. _ _ _ -
Skjór: 4.6cm lila LCD skjór VGTO ICf* 24 «900
Floss: Innbyggt
ISO hraði: 100, 200, 400,
Minnkar rauð ougu: Jó
Minnisraufar: 1ó mb innra mínni
Secure Digital (SD) eðo (MMC)
SAMHÆFNIi
iMiiiiiHimm
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
allt er framkvæmanlegt
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
Árni Magnússon,
áður til heimilis að Garðavegi 5, Keflavík
lést á Garðvangi Garði laugardaginn 16. október.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 22. okt. Kl. 14:00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Lára Þórðardóttir, Einar Sveinn Guðjónsson,
Tína Gná Róbertsdóttir, Gunnar Þór Sæþórsson.
>► Þrjú sveitarfélög slíta samstarfi við Reykjanesbæ:
Sandgerði, Vogar og Garður koma
á sameiginlegri barnaverndarnefnd
Sandgeröi,Vogar og Garð-
ur hafa slitið samstarfi
við Reykjanesbæ í mál-
efnum barnaverndarnefndar.
Sveitarfélögin þrjú hafa í fram-
haldinu ákveðið að koma sér
upp sameiginlegri barnavernd-
arnefnd sem skal taka til starfa
ekki síðar en þann 1. desember
nk. Samstarfið við Reykjanes-
bæ hafði staðið frá desember
2002.
Reynir Sveinsson, fonnaður bæj-
arráðs Sandgerðis, sagði í samtali
við Vikurfréttir að ástæðan fyrir
samstarfsslitunum séu breyttar
aðstæður. „Við töldum þetta ein-
faldlega vera hagkvæmari kost í
stöðunni,” sagði Reynir og bætti
því við að þeir hefðu engar
áhyggjur af framhaldinu þar sem
þeir hefðu á að skipa færu starfs-
liði.
Hjördís Arnadóttir, félagsmála-
fulltrúi Reykjanesbæjar sagði að
uppsögn samningsins hafi komið
sér nokkuð á óvart þar sem búið
var að leggja þó nokkra vinnu í
að fínpússa vinnureglur sameig-
inlegrar bamavemdamefhdar.
Samstarfið sagði hún hafa verið
með ágætum. „Við töldum til
hagsbóta að hafa samræmd
vinnubrögð hér á svæðinu. Þau
eiga eftir að standa sig vel því
þau hafa eflaust lært ýmislegt af
samstarfinu sem þau munu búa
að . Við hér í Reykjanesbæ emm
hins vegar keik og sjálfum okkur
næg.”
> Síðast haldin hópslysaæfing á Suðurnesjum 1988:
500 manna hópslysa-
æfíng á Keflavíkurflugvelli
Yfir 500 manns ntunu
taka þátt í hópslysaæf-
ingu sem haldin verður á
Keflavíkurllugvelli laugardag-
inn 6. nóvember. Þar verða við-
brögð vegna brotlendingar far-
þegaflugvélar við Keflavíkur-
flugvöll æfð. Síðast var haldin
flugslysaæfing á Keflavíkur-
flugvelli árið 1988. Fræðslu-
fundur fyrir viðbragðsaðila á
æfingunni var haldinn í Stap-
anum á föstudag þar sem um
150 manns mættu.
Að sögn Asgeirs Asgeirssonar
sérverkefhafulltrúa á Keflavíkur-
flugvelli hefur sl. fjögur ár verið
unnið að undirbúningi björgunar-
áætlunarinnar. „Þessi nýja áætlun
verður undir sameiginlegri stjóm
almannavamanefhda Keflavíkur
og Keflavíkurflugvallar. Æfingin
verður mjög umfangsmikil en
það eru Flugmálastjóm á Kefla-
víkurflugvelli og Sýslumanns-
embættin á Keflavíkurflugvelli
og t Keflavík sem sjá um skipu-
lagningu æfmgarinnar, en meðal
samstarfsaðila er Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli,” sagði As-
geir í samtali við Víkurfréttir.
> Kristján Gunnarsson nýrformaðurStarfsgreinasambandsins:
HLAUT TÆPLEGA
65% ATKVÆDA
Kristján Gunnarsson var
fyrir helgi kosinn for-
maður Starfsgreinasam-
bandsins. Kristján hlaut 489
atkvæði eða 64,5% atkvæða í
formannskjörinu á ársfundi
Starfsgreinasambandsins.
Signý Jóhannsdóttir hlaut 269 at-
kvæði eða 35,5% atkvæða. Krist-
ján er formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis og hann var varafor-
maður Starfsgreinasambandsins.
> Suðurnes: Flestirflytja frá Reykjanesbæ -flestirflytja í Garðinn
| ^ ækkað hefur um 26
H manns á Suðurnesjum á
-L tímabilinu júlí til sept-
ember á þessu ári. Á tímabilinu
fluttu 469 manns til
Suðurnesja en 495 fluttust frá
Suðurnesjum samkvæmt
tölum frá Hagstofu íslands.
Mesta fólksfjölgunin á þessu
tímabiii er í Garði en þar fjölgaði
um 20 manns, mesta fólks-
fækkunin er í Keflavík en þar
fluttu 42 í burtu. I Höfhum ákvað
einn að flytjast á braut en það
fjölgaði um þrjá í strjálbýli á
Suðumesjum. í Grindavík fjölg-
aði um 16 manns en 20 fluttu frá
Njarðvíkum. Sandgerðingum
fjölgaði um 11 manns og í
Vogum fækkaði um 13.
Brottfluttir 26 fleiri en aðfluttir
2
VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!