Víkurfréttir - 21.10.2004, Page 20
'i!4
VINTERSPeRT
DEILDIN
M.fl. Karla
Fimmtudaginn 21. október
Kl. 19.15
Keflavík - Haukar
LangbestéL
Afesprýði
(Jrslit vikunnar
1. deild kvenna
Njarðvík- Grindavík 41-44
Njarðvík: Ilclga Jónasdóttir
13/17, Jamie Woudstra
11/13.
Grindavík: Ólöf Pálsdóttir
I 1, Erla Þorsteinsdóttir 9,
Petrúnella Skúladóttir 9.
Kcllavík-Haukar 77-60
Kellavík: Bristol 23, Anna
María 16/11, Bryndís
Guðmundsdóttir 12/17,
Rannveig 12.
I laukar: Helena Sverrisdóttir
22/17
ÍS-Kcflavík 64-79
Keflavík: Anna María 30,
Bristol 18/9/8, María Ben
Erlingsdóttir 13.
IS: Signý Hermannsdóttir
14/11, Alda Leif Jónsdóttir
14.
Intersport-deildin
ÍR-Njarðvík 73-103
Njarðvík: Brenton 30, Páll
Kristinsson 20/10, Sayman
18, Friðrik Stefánsson 10/12.
ÍR: Grant Davis 19/10,
Fannur I lelgason 12
Snæfell-Kctlavík 87-82
Keflavík: Glover 24, Arnar
Freyr 12, Mathews 11.
Snæfell: Green 22, Sigurður
Þorvaldsson 20/10, Pálmi
Sigurgeirsson 19.
Grindavík-Hamar/Selfoss
134-1II
Grindavík: Lewis 46/12, Páll
Axel Vilbergsson 30/7/9,
Miller 21, Jóhann Ólafsson
12, Kristinn Friðriksson 12.
II amar/Sel foss: Woods
35/15, Marvin Valdimarsson
31, Damoit Bailey 26/12.
Sportmolar
Njarðvík mætir KR í kvöld
■ Næsta vika verður ansi
strembin fyrir Njarðvíkinga þar
sem þeir eiga fyrir höndum tvo
tvísýna leiki. I kvöld mæta þeir
KR í DHL-höllinni og verður þar
við rarnman reip að draga. Bæði
lið hafa unnið báða sína leiki og
verður ekkert gefið í baráttunni.
Einar Arni Jóhannsson, þjálfari
Njarðvikur, spáir hörkuleik eins
og alltaf þegar liðin mætast. „Það
hefúr gengið á ýmsu hjá þeirn í
vetur en þeir eru samt meðal
sterkustu liðanna í deildinni. Við
vorum að vísu að missa einn
leikmann, en ég vona að
strákarnir þjappi sér þeim betur
saman fyrir leikinn.”
Erfiðirleikirframundan
■ Njarðvik á framundan tvo
erfiða leiki i 1. deild kvenna. Á
laugardag mæta þær KR á útivel-
li, en þar ættu þær að geta komið
á óvart. KR er ekki nærri því
eins sterkt og í fyrra þar sem þær
hafa misst mikilvæga leikmenn
og gefst Njarðvíkingum færi á að
striða þeim örlítið.
Stigin verða mun torsóttari í
næsta leik þar á eftir þar sem
Stúdínur eru sóttar heim.
Grindvíkingar vilja hefna
ófaranna
■ Grindavíkurstúlkur.sækja
Hauka heim á Ásvelli í kvöld.
Fyrirffam eru Grindvíkingar álit-
nar með sterkara lið, en þó unnu
Haukar sigur í æfingaleik liðan-
na í haust. Örvar Kristjánsson,
þjálfara líst vel á leikinn og segir
sínar stúlkur eiga harma að
hefna. „Þær unnu okkur síðast,
en ég vona að stelpumar verði
tilbúnar í þennan leik.”
Jafnaði heimsmet í keilu
teinþór Geirdal Jóhannsson jafnaði heimsmetið í keilu
þcgar hann lék fullkominn leik, þ.e. 300 stig, á
Freyjumótinu sem lauk á
mánudaginn. Hann sló síöan
Islandsmetið í 4 leikjum er hann spi-
laði 1.033 sem er rúmlega 258 að
meðaltali í leik og jafnaði
Islandsmetið í 5 leikjum, 1.228 stig.
Þá sló hann Islandsmetiö í 6 leikjum
um eina 60 pinna, er hann spilaöi
1.484 sem er rúmlega 247 að meöal-
tali.
> MetsöluhöfunduríReykjanesbæ:
Birgitta Jónsdóttir
Klasen gaf á dögunt út
bókina Læknum með
höndunum: Nútíma þrýstimeð-
ferð. Bókin er sú fyrsta sem
Birgitta sendir frá sér en alls
ekki sú síðasta.
Þrýstipunktameðferð, eins og sú
sem Birgitta fæst við, er fram-
kvæmd með fingrunum þar sem
þrýst er á vissa sársaukabletti í
líkamanum til að bæta og auka
orkuflæði. Skömmu eftir að bók
Birgittu kom út flaug hún upp
metsölulistann og var í 6. sæti í
flokki vinsælustu handbóka,
ffæðibóka og ævisagna á tímabil-
inu 6. október til 12. október í
öllum helstu bókabúðum lands-
ins.
Birgitta er upprunalega frá
Þýskalandi en hefur búið á Is-
landi í Ijögur ár.
„Eg er mjög stolt af bókinni
minni og fólk hefur verið að
hringja í mig til þess að þakka
mér fyrir bókina því hún hafi
hjálpað þeint mikið,” segir
Birgitta sem starfar á Flughótel-
inu í Reykjanesbæ. Bókin er
byggð á 30 ára reynslu Birgittu
við náttúriilækningar en hún var
aðeins 6 ára gömul þegar hún hóf
að íramkvæma svæðameðferðir
á fólki.
Þær þrýstipunktameðferðir sem
er að finna í bók Birgittu eru sér-
lega sniðnar að íslenskum veik-
indum eða öðrum kvillum er telj-
ast algengir hérlendis. T.d. er að
finna þrýstipunkta í bókinni sem
gott er að nudda gegn nefstíflum.
„Fólk á ekki að nota pillur við
minniháttar veikindum heldur að
finna náttúrulegar leiðir til þess
að lækna sig sjálft og þrýsti-
punktameðferð er árangursrík
leið til þess,” segir Birgitta sem
mælir með því að fólk gefi sér
tíma til þess að lesa bókina vel
og einbeita sér þegar það beitir
þrýstipunktameðferðinni, hvert
svæði líkamans sem unnið er á
þarf ekki nema 5-20 mínútur.
Nú á laugardag mun Birgitta
árita bók sína í Bókabúð Kefla-
víkur/Pennanum ntilli kl. 11 og
12. „Það er aldrei að vita nema
að ég eigi eftir að skrifa barna-
bók og síðan kannski bók fyrir
fullorðna, ég get hvorki sungið
né málað en ég get skrifað,” segir
Birgitta að lokum.
Erla Dögg setti
stúlknamet
WILEY
FARINN
HEIAA
Troy Wiley, bandaríski
leikmaöurinn í
röðum Njarðvíkinga,
er farinn til síns heima og
er leit liafln af eftirmanni
hans.
í Morgunblaðinu haft eftir
þjálfara Njarðvíkur, Einari
Árna Jóhannssyni, að Wiley
hafi haldið út til að vera við
hlið foður síns, sem lenti í
slysi. Hann hafi viljað koma
aftur til Njarðvíkur, en
aðstæður haft ekki leyft slikt.
Erla Dögg Haraldsdóttir,
sundkona úr ÍRB setti
íslandsmet í stúlk-
naflokki í 400m fjórsundi á
sundmóti Ægis um helgina.
Erla Dögg synti á tímanum
4,57,47 sem er frábær tínii og
bæting á gildandi íslandsmeti
Láru Hrundar Bjargardóttur
úr SH í stúlknallokki um rúm-
lega 3 sek. Gamla metið 5,00,66
var frá árinu 1998.
Erla Dögg hlaut VÍS-bikarinn að
launum fyrir afrek sín, en Jakob
Jóhann Sveinsson fékk bikarinn í
karlaflokki.
Árangur ÍRB á mótinu var
annars ágætur og lentu þau í öðru
sæti í stigakeppninni á eftir mót-
shöldurum Ægis. Þau unnu til 23
gullverðlauna, 19 silfúrverðlauna
og 19 bronsverðlauna.
Stefán og Guðný best í Keflavík
Stefán Gíslason var valinn
besti leikmaður
sumarsins í meis-
taraflokki karla á lokahófi
knattspyrnudeildar Keflavíkur
um síðustu helgi. Guðný
Þórðardóttir var valinn besti
Ieikmaður kvenna við sama
tækifæri.
Lokahófið fór fram á Ránni í
Reykjanesbæ og var þar saman
kominn fjöldi manns til þess að
gleðjast með sinu knattspyiriufól-
ki. Áð þessu sinni var það Isólfúr
Gísli Pálmason sem stjórnaði
veislunni og hinn síungi æringi
Laddi hélt upp fjörinu af sinni
alkunnu snilld.
Meistaraflokkur karla:
Besti félaginn, Magnús
Þorsteinsson
Efnilegasti leikmaðurinn, Ingvi
Rafn Guðmundsson
Besti leikmaður, Stefán Gíslason
Meistaraflokkur kvenna:
Besti félaginn, Björg Ásta
Þórðardóttir
Efnilegasti leikmaðurinn, Mist
Elíasdóttir
Besti leikmaður, Guðný
Þórðardóttir
20
ViKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!