Víkurfréttir - 21.10.2004, Blaðsíða 23
> Aðsend grein um flugstöðina og Reykjanes:
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Reykjanes
Eitt af þeim stóru verk-
efnum sem liggja iyrir
stjórnendum Reykja-
nesbæjar á næstu mánuðum er
skoðun á nánari samstarfi og
framtíðaruppbyggingu við
Keflavi'kurflugvöll og Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Þar eru mál
sem ræða verður að fullri al-
vöru, báðum aðilum til hags-
bóta.
Alls hefur farþegum um Kefla-
víkurflugvöll fjölgað um rúmiega
21% það sem af er árinu miðað
við sama tíma í fyrra og verða ef
fer sern horfir rúmlega 1600 þús-
und. í þessum mikla fjölda liggja
fjölmörg tækifæri sem heima-
menn eiga að nýta sér. I Flugstöð
Leifs Eiríkssonar starfa um 500
manns og i ljósi áætlana um tvö-
földun farþega um Keflavíkur-
flugvöll á næstu árum er einnig
eðlilegt að áætla sömu þróun á
starfsmannafjölda. Að auki hafa
stjómendur Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar uppi mikil áform um
stækkun og aukna verslun og
þjónustu og hafa þegar hafið
undirbúning að forvali áhuga-
samra aðila. Samgöngumiðstöð
við Reykjanesbraut, í landi
Reykjanesbæjar, hefiir verið
kynnt og upplýsingasvæði fyrir
ofan bæinn hefur þegar tekið á
sig heildannynd svo ekki sé
minnst á ffamtíðartækifæri með
innanfandsflugvöll á Keflavíkur-
flugvelli. Möguleikar svæðisins
eru þvi margþættir og liggja í
auknum atvinnutækifærum,
sóknartækifærum í verslun og
þjónustu i og við flugstöðina,
upplýsingamiðstöð, innanlands-
flugi og síðast en ekki síst með
bættu aðgengi að hundruðum
þúsunda innfendra og erlendra
flugfarþega. Framtíðartækifæri
sem önnur landsvæði geta aðeins
látið sig dreyma um en við verð-
um að vinna að.
Atvinnumöguleikar
Þegar herðir að í atvinnumálum
er mikilvægt að leita nýrra leiða
eins og bæjarstjóm Reykjanes-
bæjar hefur unnið ötullega að sbr.
iðngarðar í Helguvík, háskóla-
umræða o.s.frv. Styrking á því
sem nú er til staðar er ekki síður
vænlegt til árangurs. I þessu sam-
bandi má nefna atvinnutækifæri í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem
gætu aukist yfir 100 á hveiju ári
ef áætlanir um aukna ferðamertn
til landsins ná fram að ganga.
Tækifæri svæðins liggja einnig í
verslun og þjónustu í Flugstöð-
inni svo ekki sé minnst á eflingu
í ferðaþjónustu með virku sam-
starfi Reykjaness og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar. Atvinnutæki-
færi af ýmsum toga s.s. kvenna-
störf og hlutastörf svo eitthvað sé
nefht.
Verslun og þjónusta
Reyknesinga í Leifsstöð
í Flugstöð Leifs Eirikssonar ætti
að vera stórt og áberandi skilti
sem segir “Velkomin á Reykja-
nes.” Staðreynd sem þarf að gera
meðvirka í hugum fólks og hlúa
að. Þetta gætum við gert m.a.
með samvinnu verslunar- og
þjónustuaðila á svæðinu. I
tengslum við forval í verslun í
flugstöðinni hef ég rætt við
nokkra þeirra og kannað vilja til
að styrkja sína verslun með teng-
ingu og samstarfi í flugstöðinni.
Það er mín sýn að engin geti
sinnt þjónustu þar betur en við
Reyknesingar bæði vegna tengsla
og nálægðar. Með samstarfi á
þessu sviði getum við styrkt
verslun í heimabyggð þó svo að
verslunin sjálf eigi sér jafnvel
stað í flugstöðinni sjálfri. Hagur
flugstöðvarinnar er augljós enda
markmið stjómenda skýr þ.e. að
auka afþreyingu í stöðinni og fá
ferðamenn til að nýta þjónustu
hennar frekar og eyða meiri tíma
þar en áður. Þessum markmiðum
verður erfitt að ná nema með
nánu samstarfi við heimamenn.
Staldrið við Reykjanesbraut
Eins og vegfarendur um Reykja-
nesbraut hafa séð hefur verið
malbikað og hellulagt mikið plan
ofan Reykjanesbæjar. Þar mun
Vegagerð Ríkisins setja upp upp-
lýsinga- og þjónustuskilti fýrir
svæðið og landið í heild. Utsýni
yfir Reykjanesbæ, með fjalla-
hringinn í baksýn, er mjög gott
og mun án efa auka vitund ferða-
manna á svæðinu og auka mögu-
leika ferðaþjónustuaðila á að
kynna þjónustu sína.
Samgöngumiðstöð íslands í
landi Reykjanesbæjar.
í maí s.l. birtist grein um hug-
leiðingar mínar varðandi hugsan-
legt þjónustusvæði fyrir bíla-
leigu- og langtímastæði ofan
byggðarinnar í Reykjanesbæ í
tengslum við Flugstöð Leifs Ei-
rikssonar. Gerir tillagan ráð fyrir
sameiginlegri afgreiðslu allra
helstu bílaleiga landsins við stórt
bílastæði sem rúmað getur þús-
undir bíla til framtíðar litið.
Styrkieiki svæðisins, sem er ofan
Iðavalla milli Aðalgötu og Flug-
vallavegar, er góð tenging við
Reykjanesbraut þegar ekið er til
eða ffá Leifsstöð. Þá er svæðið
hugsað sem vaktað bílastæði fyr-
ir fjölda flugfarþega, auk þess
sem þama muni bílaleigumar af-
greiða alla bíla til viðskiptavina
sinna. Frá svæðinu verða síðan
stöðugar ferðir til og ffá Leifs-
stöð en þessi leið hefur verið far-
in á mörgum stómm flugvöllum
erlendis til að bæta þjónustu við
viðskiptavini. Mikil áhersla er
lögð á að þjónustan verði bæði
hagkvæmari og skilvirkari fyrir
viðskiptavininn en nú er, en af-
greiðslupláss bilaleiga í Leifsstöð
er í dag rnjög takmarkað á álags-
tímurn. Lausn með bílastæðahúsi
yrði mjög kostnaðarsöm sérstak-
lega þegar horft er til þess að gott
landrými sem anna myndi þess-
ari þjónustu til ffamtíðar er til
staðar í hæfilegri fjarlægð. Þessi
lausn myndi auka möguleika á
að stærri bílaleigur myndu færa
hluta starfsemi sinnar til Kefla-
víkur. Að auki bætir svæðið að-
gengi ferðamanna að Reykjanes-
bæ um leið og að vera skilvirk
leið til að fá þá til að staldra við
og nýta ffekar þjónustu á svæð-
inu.
Innanlandsflugvöllur
í Keflavík.
Þegar ákvörðun er tekin um að
flytja innanlandsflugvöllinn úr
Vatnsmýrinni verðurn við að vera
tilbúin en kostir Keflavíkurflug-
vallar em margir og ótvíræðir.
Fjárhagslegur ávinningur að ná
betri nýtingu á besta flugvelli
landsins með þvi að tengja inn-
anlands- og utanlandsflugið á
einn stað. Sparast þar stórar fjár-
hæðir árlega á hinum ýmsum
þáttum enda er slík tenging mjög
algeng á helstu flugvöllum er-
lendis. Þá má nefha veðurfars-
lega þætti sem em Keflavíkur-
flugvelli mjög hægstæðir, nægt
landrými og ffábæra aðstöðu sem
auðveldlega má hugsa fyrir
sjúkra- og einkaflug. Hér er að-
eins stiklað á stóm enda fjölmörg
önnur atriði sem benda mætti á
enda tenging við höfuðborg og
landsbyggð tryggð með tvöfaldri
Reykjanesbraut og Suðurstrand-
arvegi.
Oft er sagt að þegar þjónustan er
of nálægt manni sjái maður hana
ekki. Ekki láta slikt sinnuleysi
henda okkur og tökum höndum
saman. Við höfum endalaus
tækifæri - nýtum þau i okkar
þágu.
Steinþór Jónsson bæjarfulltrúi
í Reykjanesbæ
og vínnusömu fðlki í hópinn.
20
TEGUNDIR AF HEITUM
LANGLOKUM, LITLUM OG STÓRUM
S: 421 4444
Mössum bíla og þeir
verða eins og
nýir fyrir gott verð
Tökum bíla í áskrift
sækjum og skilum
Þvottar - Bón -
Vélarþvottar - djúphreinsun
^421 3737
Brekkustígur 38 Reykjanesbær
s g c a r s ® sgcarrental.is
E: Kjúklingabringur, salsasósa, kál,
tómatar, sýrður rjómi, olsen sósa og bræddur ostur.
E: Pepperoni, beikon, svissaðir
sveppir og laukur, kál, ostur, pizzasósa og olsen sósa.
-j,____j__________: 4 stk. ostborgarar, r-—
stór franskar,2L. Kók,2 kokteilsósur á aðeins I. a'~
Ekta grillaðir hamborgarar, franskar,
krullur og sveitalilunkar
Pantíðísúna 4214457
Olsen 0l9§Hr
1AIUKÍ1IIII - tllUllI - SiUI 11 1 445 1
Samkaup urval i Njarovik oskar ettir að raða
starfsmann á besta aldri í framtíðarstarf.
Verksvið: Almenn verslunarstörf, en gert ráð fyrir ábyrgd á
ákveðnum verkþáttum að reynslutíma loknum.
Vinnutími: Fullt starf og vinnutími frá kl. 10:00-19:00.
Til greina kemur að skipta starfinu i 2 hlutastörf.
Við leitum að: Einstaklingi á besta aldri, með ríka þjónustulund
samstarfsfús og vanur ad vinna í liópi.
Vidkomandi þarf ad hafa reynslu af verslunarstörfum.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í sfma 421 5400
og á skrifstofu Samkaupa hf að Hafnargötu 62.
VÍKURFRÉTTIR I 43.TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 21. OKTÓBER 2004 I 23