Víkurfréttir - 11.05.2006, Side 4
á fulltrúum meirihlutans geti
ekki flokkast undir undantekn-
ingar. Segir einnfremur „að
hér sjáist í verki sú vanvirðing
sem núverandi meirihluti hafi
sýnt lýðræðislegum vinnu-
brögðum á kjörtímabilinu“.
Minnihlutinn gleymir því
að þetta sparar peninga fyrir
sveitarfélagið, það þarf jú varla
greiða mönnurn nefndarlaun ef
þeir rnæta ekki á fundi, er það?
Stóru orðin...
Meðan orrahríðin um nýjan
sóknarprest stóð sem hæst á
dögunum, var mörgum heitt
í hamsi í hita leiksins. Margir
höfðu á orði að þeir ætluðu ekki
að láta þennan gjörning yfir
sig ganga og segja sig frekar úr
þjóðkirkjunni. Við mótmælin
fyrir utan Keflvíkurkirkju við
upphaf prestastefnu fékk biskup
þau skilaboð frá viðstöddum
að fólk rnyndi ganga úr söfn-
L'Oréal kynning
og 20% afsláttur
af öllum L'Oréal vörum
í Lyf & heilsu Keflavík
föstudaginn 12. maí kl. 13-18
uðinum unnvörpum og án
fólksins væri kirkjan ekki neitt.
Eitthvað virðist fólk vera að
renna á rassinn með stóru
orðin, því samkvæmt eftir-
grennslan VF hjá Hagstofunni,
hefur aðeins einn í Keflavíkur-
sókn sagt sig úr Þjóðkirkjunni
allan síðasta mánuð. Það er
þá allavega einn sem stendur
við það sem hann segir...
Samsæri um
sýslumannsembætti?
Núna þegar sr. Skúli Sigurður
Ólafsson hefur verið vígður til
embættis sem sóknarprestur í
Keflvíkurprestakalli, er
eiginkona hans, sem gegnir
stöðu sýslumanns á Isafirði, að
leita fyrir sér eftir öðru starfi
hér fyrir sunnan, samkvæmt
því sem frarn kemur í viðtali
við sr. Skúla í Bæjarins Besta.
Skúli segir eiginkonuna verða
að finna sér „áhugavert starf“
áður en hún kernur suður.
Sem kunnugt er hefur sú
samsæriskenning verið á
lofti að eiginkonu sr. Skúla,
Sigríði Björg Guðjónsdóttur,
sé ætlað sýslumannsembættið
í Keflavík, sem losnar bráðum.
Sigríður hefur sjálf blásið á
slíkar samsæriskenningar og
segir ekkert plott í gangi. Þetta
gerir það að verkum að nú
bíða margir spenntir eftir því
að sjá hver hlýtur embættið
þegar þar að kemur...
Bankastræti?
Pósthússtræti er staðreynd
í Reykjanesbæ og þar hefur
þegar risið eitt háhýsi og annað
byggist hratt þessar vikurnar.
Ekki langt frá, við Hafnargötu
90, eru að hefjast framkvæmdir
við að breyta húsinu í glæsilegt
útibú KB banka á Suðurnesjum.
Á lóð gömlu Fiskiðjunnar á
síðan að fara að byggja stórt
og mikið hús fyrir Glitni,
eða gamla íslandsbanka. Nú
er spurning hvort hornið á
Hafnargötu og Flugvallarvegi
fái ekki nýtt nafn og verði
framvegis kallað Bankastræti...?
Rússi olli usla
Amerískum meðlimi í samn-
inganefnd Bandaríkjamanna í
viðræðum við Islendinga urn
framtíð varnarstöðvarinnar
var brugðið þegar honum var
á dögunum sýnd útprentun af
vef Víkurfrétta sem sýndi að
Igor Ivanov, framkvæmdastjóri
rússneska þjóðaröryggisráðsins
væri staddur í Keflavík. Hann
var fljótur að taka útprentunina
og sýna amerískum kollegum
sínum. Eitthvað virtist
Rússagrýlan hafa hreyft við
honum og tíðindi síðustu
daga um hugsanlegt „nýtt
kalt stríð“ Bandaríkjamanna
og Rússa kemur ekki á óvart.
Keflavíkurstöðin var jú
mikilvæg kananum þegar
„rússneski björninn" var að
sýna klærnar í norðurhöfum.
Fór vel á með Ivanov og
hótelstjóranum
Þeir Steinþór Jónsson,
hótelstjóri Hótels Keflavíkur og
Igor Ivanov, hægri hönd Pútíns
Rússlandsforseta, eru miklir
mátar eftir dvöl rússneska
bjarnarins á hóteli Steinþórs.
Heimildir S&S benda til þess
að Steinþór og Ivanov hafi rætt
varnarliðsmálin og að Igor hafi
ætlað að taka málið upp við
ráðamenn í Ameríku, þangað
sem Rússinn var að fara þegar
vélin hans bilaði í Keflavík.
4YOU
Rússneska birninum var
ekið urn götur Keflavíkur
á glæsilegum Lexus
Hildar Sigurðardóttur,
eiginkonu hótelstjórans
með einkanúmerinu
4YOU. Hildur fagnar 40
ára afmæli urn helgina...
Dæmigert er það ekki?
Kynjahlutfall þeirra starfsmanna
sem ráðnir verða vegna kom-
andi sveitarstjórnarkosninga,
olli vangaveltum bæjarfulltrúa
á síðasta bæjarstjórnarfundi í
Reykjanesbæ. Kjartan Már Kjart-
ansson vakti athygli á því að af
þeim 50 starfsmönnum sem
munu halda utan um kjördeild-
irnar, eru 42 konur en aðeins
8 karlar. Ekki höfðu viðstaddir
neinar skýringar á þessu,
nema helst Sveindís Valdimars-
dóttir, sem
fannst sennileg-
asta skýringin
vera sú að þessi
störf hlytu að
vera svona
illa launuð...
honum að setjast hjá þeim, því
hann vildi fá mynd afþeim
þremur saman. Eitthvað hik var
á Steina en Jói linnti ekld látum
fyrr en Steini settist hjá þeim
og ljósmyndarinn smellti af.
„Hva, af hverju vildurðu
fá mynd af okkur saman',
spurði Steini að lokinni
myndatökunni.
„Jú, við þrír verðurn nefnilega
ekki í næstu bæjarstjórn",
svaraði Jói um hæl...
Hrekkjóttur
Jóhann
Einhver púki
er hlaupinn í
Jóa Geirdal,
sem leggur sig
fram um að
hrekkja aðra
bæjarfulltrúa,
svona rétt áður
en hann hverfur
af vettvangi bæjarmálanna.
Þar sem þessi bæjarstjórn er
að renna sitt skeið á enda,
var fenginn ljósmyndari
til að mynda hana fyrir síð-
asta bæjarstjórnarfund.
Eftir myndatökuna var slegið
á létta strengi áður en fundur
hófst. Jóhann og Kjartan Már
sátu hlið við hlið, þegar Jói
kallaði á Steina Erlings og bauð
Er ekki stundurn betra að láta ÍSLENDINGA
framleiða fyrir sig vöruna?
Slakar mætingar
Minnihluti bæjarstjórnarinnr
í Sandgerði skammar meiri-
hlutann fyrir slakar mætingar
á fundi hjá fagráðum á vegum
bæjarins. I nýlegri bókun minni-
hlutans segir að fulltrúa meiri-
hlutans hafl vantað á 5 fundi
af 11 og ekki voru varamenn
heldur rnættir. Segir í bókun-
inni að síendurtekin vöntun
VÍKURFRÉTTIR I 19. TÖLUBIAÐ I 27.ÁRCANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!