Víkurfréttir - 11.05.2006, Side 6
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ:
Q
Kynntu framtíðarsýn
D-lista til ársins 2010
„Tími til að lifa og njóta“, er yfirskrift stefnu-
skrár sem D-listinn í Reykjanesbæ var að gefa
út í veglegu kynningarriti og kynnt var á þriðju-
daginn af þeim frambjóðendum sem skipa
efstu sæti listans. í ritinu er að finna það sem
D-listinn kallar framtíðarsýn til árins 2010 og
er víða drepið niður fæti hvað málefni varðar.
Árni Sigfússon, sem leiðir D-listann, fylgdi
stefnuskránni úr hlaði þar sem hann kom inn á
helstu áherslumál listans og hvaða málum hefði
verið framfylgt á kjörtímabilinu. Má þar nefna
hóflegt gjald fyrir máltíðir í grunnskólum, frí-
stundaskóla að loknum skóladegi, gjaldfríar stræt-
isvagnaferðir, styrki til íþróttafélaga og frítt í
sund. Árni gat þess að engir biðlistar væru eftir
ieikskólaplássi í Reykjanesbæ og að áfram yrði
miðað við að öllum 2ja ára börnum byðist heils-
dagsvistun á leikskóla, auk þess sem gjald fyrir
leikskóla lækkar.
„Áfram verður unnið eftir þeirri stefnu að fjölga
styrkum stoðum í atvinnumálum. Alþjóðaflug-
völlur, iðnaðarsvæði í Helguvík, orkuvinnsla,
ferðaþjónusta og íþrótta- og heilsutengd þjón-
usta, auk menningarverkefna, s.s. tónlistar, verða
undirstöður í atvinnuþróun svæðisins", segir í
kynningarritinu.
Það gefur auga leið að þörfin fyrir margvíslega þjónustu við VL hverfur við brottför þess. Þessi herramaður
mun t.d. þiggja klippingu annarsstaðar í framtiðinni. VF-mynd: elg
Starfsmenn Varnarliðsins:
Áhyggjur vegna nei-
kvæðra margfeldisáhrifa
Vel mátti greina áhyggju-
tón meðal starfsfólks
VL, á stöðufundi sem
Árni Sigfússon og Geir H.
Haarde héldu í salarkynnum
FS á mánudaginn. Fundar-
menn höfðu m.a. áhyggjur af
starfslokasamningum og nei-
kvæðum margfeldisáhrifum
vegna brotthvarfs VL en fjöl-
mörg fyrirtæki bæði innan og
utan vallar byggja afkomu sína
á þjónustu við Varnarliðið.
Fram kom í máli fundarmanna
að samdráttur hjá þessum fyr-
irtækjum væri óumflýjanlegur,
sem hlyti óhjákvæmilega að
hafa í för með sér minni þörf
fyrir mannafla, þannig að ekki
væri eingöngu verið að tala um
uppsagnir 600 starfsmanna VL í
þessu samhengi.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaðið hefur aflað nrunu
327 manns starfa innan vallar
hjá fyrirtækjum sem byggja
starfsemi sína eingöngu á þjón-
ustu við VL. Þessir starfsmenn
teljast ekki með þeim 600 starfs-
mönnum VL sem sagt hefur
verið upp störfum. Þá á einnig
eftir að taka með í reikninginn
starfsmenn þeirra fyrirtækja
sem starfa utan vallar og byggja
að talsverðu eða einhverju leiti á
þjónustu við Varnarliðið.
Ef notaður er sami stuðull og
stuðst er við þegar reiknuð
eru margfeldisáhrif af álveri á
Reyðarfirði, má reikna með að
brotthvarf VL hafi áhrif á störf
1500 manna. Kristján Gunnars-
son, formaður VFSK segist hins
vegar ekki vilja taka svo djúpt
í árinni.
„Við sögðum í upphafi að við
gætum verið að tala um 1000
manns í þessu samhengi. Það
var dregið í efa en þegar þessar
tölur hafa verið dregnar saman
sjáum við að þetta er ekki óvar-
leg ályktun. Þá á eftir að taka
inn í þetta þau áhrif sem brott-
hvarf VL hefur á aðra starfsemi
utan vallar", sagði Kristján í sam-
tali við VF.
„Þegar þessi neikvæðu margfeld-
isáhrif verða bláköld staðreynd,
má segja að þau verði timþur-
mennirnir af þessu bjarsýnis-
fyllerí sem á vissan hátt virðist
vera í gangi. Við höfum bent á
þetta og fengið skömm í hattinn
fyrir að vera að mála skrattann
á vegginn. Ég segi hins vegar að
það er eitt að vera svartsýnn og
annað að vera raunsær", sagði
Kristján.
Reykjanesbær:
Opinn dagur í söfnum
Laugardaginn 13. maí
frá kl. 14 til 17 geta bæj-
arbúar og gestir kynnt
sér nýtt húsnæði Byggðasafns
Reykjanesbæjar og Islendings
ehf, að Njarðarbraut 3 í Innri-
Njarðvik, Reykjanesbæ.
íslendingur ehf
hefur þar skrifstofu sína og
vinnuaðstöðu vegna undirbún-
ings að opnun húsnæðis Islend-
ings sem fyrirhuguð er árið
2007. Má þar m.a. sjá hluta af
sýningu frá Smithsonian safn-
inu. Gunnar Marel er í síma:
894 2874. Víkingaskipið íslend-
ingur er til sýnis við Stekkjarkot,
gamla þurrabúð sem jafnframt
er hægt að skoða og er aðeins
steinsnar frá Njarðarbraut. Þar
skammt frá má jafnframt sjá 7m
eftirgerð af Kaldárhöfðasverð-
inu sem nýlega var sett upp í
Reykjanesbæ í tengslum við Vík-
ingaheim.
Byggðasafn
Reykjanesbæjar
á Njarðarbrautinni eru aðal
munageymslur safnsins. I sumar
verða geymslurnar opnar með
reglubundum hætti og geta því
bæjarbúar og gestir kynnt sér
safnkostinn. Auk þess verður
stillt upp nokkrum völdum
þáttum úr safneigninni, við
byrjum á munum sem tengjast
ýmsum iðngreinum, í samræmi
við viljayfirlýsingu safnsins til
að sinna sérstaklega iðnsög-
unni.
Þessi opnun safngeymslna er
tilraunaverkefni til að víkka út
rekstur Byggðasafnsins í átt til
tómstunda almennings þannig
að safnið geti orðið uppspretta
hugmynda, fróðleiksbrunnur
og dægradvöl.
Byggðasafnið samanstendur
af þrem safnflokkum: munum
(um 8000 gripir), myndum
(um 400 þúsund myndir auk
hreyfimynda) og skjölum
(stærð hefur ekki verið metin),
auk þess eru í umsjón þess tvö
sérsöfn: Poppminjasafn íslands
og Iþróttaminjasafn Reykjanes-
bæjar.
Safnið var stofnað 1978 af bæj-
arstjórnum Njarðvíkur og Kefla-
víkur. Safnið hefur starfsemi í
þrem sýningahúsum: Duushús,
Stekkjarkot og Innri-Njarð-
víkkurhúsið, hefur geymslur
á fjórum stöðum, Vatnsnesi,
Kjarna, Steypunni og á Njarðar-
braut, aðal skrifstofur safnsins
eru að Vatnsnesi.
Forstöðumaður safnsins er:
Sigrún Ásta Jónsdóttir; 865
6160, netfang: sigrun.a.jonsdott-
ir@reykjanesbaer.is. Ennfremur
má benda á vefsvæði safnsins:
reykjanesbaer.is/byggdasafn
Önnur söfn:
Að auki má benda á eftirtalin
söfn sem hafa opnar sýningar á
laugardaginn:
ListasafnReykjanesbæjaríDuus-
húsum
I EYGSJÓN - SEX FÆREYSKIR
MÁLARAR
Um er að ræða rúmlega 20 verk
unnin með olíu á striga og er
myndefnið færeysk náttúra.
Þeir sem eiga verk á sýningunni
eru: Amariel Norðoy, Bárður
Jákupsson, Eyðun av Reyni,
Kári Svensson, Torbjörn Olsen
og Össur Mohr.
Gryfjan: sýning Poppminjasafns
Islands - Stuð og friður.
Sýningar í Duushúsum eru
opnar alla daga frá 13:00 til
17:30.
Sýningarrýmið Suðsuðvestur
Hafnargötu 22
HOLIR BOLIR - INDIANA
AUÐUNSDÓTTIR
Opnunartími: fimmtudaga og
föstudaga frá kl. 16. - 18. og
laugardaga og sunnudaga frá
kl.14.- 17. Annars er opið eftir
samkomulagi.
Umsjónarmenn suðsuðvestur:
Inga Þórey Jóhannsdóttir (662
8785) inga@sudsudvestur.is.
Thelma Björk Jóhannesdóttir
(861 5243) thelma@sudsu-
dvestur.is
VfKURFRÉTTIR Á NETINU •www.vf.is* LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!
6
VÍKURFRÉTTIR : 19. TÖLUBLAD i 27. ÁRGANGUR