Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2006, Page 9

Víkurfréttir - 11.05.2006, Page 9
Opnun laugardaginn 13. maí kl VÁ;f | Sunddagur í lauginni 13. maí með Rás 2 - frítt í sund - Nýja sundlaugin og Vatnaveröld verða opnaðar formlega með sérstakri athöfn á morgun, föstudaginn 12. maí, kl. 16:00. Á laugardaginn 13. maí, verða hin nýju íþróttamannvirki opnuð fyrir almenningi kl. 8:00. Þá er sérstakur sunddagur í Sund- miðstöðinni, frítt í sund fyrir alla, fjölbreytt skemmtidagskrá frá kl. 13:00 til 16:00 og Rás 2 verður með beina útsendingu frá staðnum. 50 metra innisundlaug Við óskum íbúum Reykjanesbæjar hjartanlega til hamingju með nýtt og glæsilegt íþróttamannvirki, 50 metra innisundlaug hjá Sundmiðstöðinni við Sunnubraut. Nýja innisundlaugin er önnurtveggja 50 metra innisundlauga á Islandi og löggilt keppnislaug fyrir alþjóðleg mót. Með sérstakri lyftubrú má skipta henni i tvær 25 m kennslulaugar og fá þannig aðstöðu til sundkennslu fyrir tvo grunnskóla. Vatnaveröld Hjá nýju innisundlauginni er Vatnaveröld, nýr og glæsilegir vatnagarður fyrir yngstu kynslóðina, einn hinn glæsilegasti á landinu og hinn eini sem er að öllu leyti innan- dyra. Hönnun, frágangur og aðbúnaður eru eins og best verður á kosið enda stefnt að því frá upphafi að hið nýja íþróttamannvirki verði íbúum Reykjanesbæjar til sóma á allan hátt. E F F Fasteien H F Uppbygging íþróttamannvirkja í Reykjanesbæ Nýja innisundlaugin og Vatnaveröldin eru hluti af uppbyggingu íþróttamannvirkja í tengslum m.a. við Íþróttaakademíuna i Reykjanesbæ og mikilvægur áfangi i átt að því takmarki að gera Reykjanesbæ að höfuðstað íþróttakennslu og iþrótta- þjálfunar á Islandi. A ATAFL vsr Vcrkfræðistofa Sigurðar Thoroddscn hf. TBKNISTOFAN ehf ARKITEKTAR VERKFRÆOISTOFA SUÐURNESJA

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.