Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2006, Síða 16

Víkurfréttir - 11.05.2006, Síða 16
Heldur Kaninn fjarskiptamiðstöðinni? Bandaríkjaher hefur lagt ofuráherslu á að halda fjarskiptamið- stöðinni í Grindavík þrátt fyrir að meginstarfsemi hers- ins flytjist úr landi og virðist sem eitthvað hafi þokast í þá átt. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er herinn að koma upp bættu eftirlitskerfi í kringum íjarskiptamiðstöð- ina og má því leiða líkum að því að þeir hafi fengið ein- hverskonar vilyrði fyrir að halda afnotum af stöðunni. Fjarskiptamiðstöðin í Grinda- vík er ein mikilvægasta aðstaða Bandaríkjamanna á íslandi og sendir út á mjög lágri tíðni, eða 25 riðum. Hún gegnir mik- ilvægu hlutverki í samskiptum kafbáta Bandaríkjahers frá Norður-Atlantshafi allt suður í Miðjarðarhaf. Kafbátarnir hafa allt að llkm langt „loftnet" sem þeir draga á eftir sér til að ná fjarskiptaséndingum. Hins vegar er þeirri spurn- ingu ósvarað hvað íslendingar munu fá í skiptum. Starfsmenn flugvallar halda vinnu samkvæmt nýjum lögum Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp störfum á Keflavíkurflugvelli og heyra undir nýstofnaða Flug- málastjórn, geta fengið vinnu hjá hinni nýju stofnun. Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, segir að í framtíðinni rnuni starfsemin á Keflavíkurflug- velli heyra undir samgöngu- ráðuneytið. Utanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpi um stofnun Flugmála- stjórnar á Keflavíkurflugvelli á Alþingi. Frumvarpið hefur verið samþykkt sem lög frá Al- þingi. Meðal þeirrar starfsemi sem heyra mun undir Flugmála- stjórn er slökkvilið og rekstur flugbrauta. í frumvarpinu er kveðið á um að allir þeir starfað hafa við rekstur flugvallarins hjá Varnarliðinu, verði endurráðnir og þessar stöður ekki auglýstar sérstaklega. Tónlgikar Starfslokasamningar ekki inni í viðræðrinum Starfslokasamningar til handa íslenskum starfs- mönnum Varnarliðsins eru ekki inni í þeim viðræðum sem farið hafa fram milli sendi- nefndar Bandaríkjamanna og fulltrúa Islendinga um framtíð- arvarnir Islands og brotthvarf Bandaríkjahers af Keflavíkur- flugvelli. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra, á sérstökum stöðufundi með starfsmönnum VL á mánudag- inn. Geir segir Varnariiðið vera ábyrgt sem vinnuveitandi gagn- vart sínum starfsmönnum og ef það gerði ekki starfslokasamn- inga við sína starfsmenn væri enginn annar sem gerði það. Fundarmenn inntu Geir einnig eftir því hvað yrði með fjar- skiptastöðina í Grindavík og sagði hann ekki botn vera kom- inn í það mál, en ljóst væri að stöðin væri Bandaríkjamönnum afar mikilvæg. Geir sagði að mörg mál ætti eftir að leiða til lykta í viðræðunum við Banda- ríkjamenn en þeim yrði fram haldið á næstu vikum. Framtíð ratsjárstöðvanna væri eitt þeirra rnála sem eftir væri að fá botn í. Hvað starfslokasamningana varðar virtust fundarmenn vonlitir um að fá því máli fram- gengt. Fram kom í máli Árna Sigfússonar, bæjarstjóra, að svo virtist sem minna færi fyrir slíkum samningum í öðrum her- stöðvum en þeim sem Banda- ríkjamenn reka í heimalandinu. íslenskir starfsmenn Varnarliðsins hafa ítrekað verið teknir í læknisskoðun: Óvíst hvað verður um heilsufarsupplýsingar Karlakór Keflavíkur heldur aukatónleika í Kirkjulundi Keflavík Þriðjudaginn 16. maí kl. 20:30 Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, segir að starfsmenn Varnarliðsins hafi áhyggjur af því hvað verði um heilsufarsupplýsingar, sem safnað hafi verið um þá. Árum saman hafi mikill meiri- hluti starfsmanna Varnarliðsins verið skyldaður til að mæta, einu sinni til tvisvar á ári, í rækilega læknisskoðun á herspít- alann á Vellinum. Hversu oft menn hafi verið skoðaðir hafi ráðist af störfum þeirra; þeir sem sinnt hafi öryggismálum voru oftar skoðaðir en aðrir starfsmenn. Kristján segir að félagið hafi gert athugasemdir við þessar læknis- skoðanir þar sem eðlilegast væri að heilsugæslan sinnti slíku eft- irliti. Þetta væri ekki einungis læknisskoðun, heldur væri safnað blóðsýnum og öðru, sem Söngstjóri: Guðlaugur Viktorsson Undirleikur: Sigurður Marteinsson á píanó, German Hlopin harmonika, Þórólfur Ingi Þórsson bassa. Einsöngur: Steinn Erlingsson bariton og Davíð Ólafsson bassi. enginn vissi nú hvað yrði um þegar herinn færi. Kristján segir að félagsmenn hafi áhyggjur af þessu nú en sjálfur hafi hann fyrir nokkrum árum sent form- legt erindi til Varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins og síðar hafl hann rætt málið við þingmenn, nú síðast á fundi með utanríkismálanefnd. VfKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 16 IVÍKURFRÉTTIR : 19. TÖLUBLAÐ . 27.ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.