Víkurfréttir - 11.05.2006, Síða 20
Valgerður Björk Pálsdóttir
FS-INGUR I/IKUNNAR
Áhugi ungsfólks á pólitíkfer sífellt vaxandi og í Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru nemendur farnir að spá í
hvað þau viljafyrir bcejarfélagið sitt. Við tókum tali þrjá nemendur sem eru áframboðslista hjáflokkunum
sem höfðuðu mest til þeirra, þegar kom að því að gera upp hugsinnfyrir nœstu bœjarstjórnarkosningar.
FS-INGARIFRAMBOÐI
Nafn: Arnar Magnússon
Aldur:20 ára
St«ð»r:Reykjanesbær
Flokkur ogstaða innanflokks-
ins: Ég er í varastjórn ungra
Framsóknarmanna og er í
15. sæti í sameiginlegu fram-
boði Framsóknarflokksins og
Samfylkingarinnar ásamt full-
trúum óflokksbundinna.
Að hvaða leyti höfðarflokkur-
inn og stefnur hans til þín ?
A-listinn höfðar til mín vegna
þess hversu mikla vinnu flokk-
urinn er tilbúinn að leggja í í þágu allra bæjarbúa og
þá sérstaklega í menntamálum. Gaman er að minnast
á það að Kjartan Már Kjartansson sem nú situr í bæj-
arstjórn fyrir hönd Framsóknarflokksins sá til þess að
settur var upp ákveðinn ferðasjóður fyrir nemendur
sem stunda háskólanám á höfuðborgarsvæðinu, en
þessi styrkur var því miður felldur niður þegar íhaldið
náði meirihluta þannig að ég vil sjá breytingu í þeim
málum.
Hvað hefurflokkurinn í boðifyrir ungtfólk íþínu bœj-
arfélagi, s.s. menntaskóla- og háskólanema ?
A-listinn ætlar að beita sér fyrir auknu framboði á ýrnis
konar menntun í Reykjanesbæ. Þar má helst nefna
verk- og tækninám, frumgreinadeild og meira úrval af
starfstengdu nárni. A-listinn vill einnig athuga hvort
hægt sé að koma á fót lánshæfri Frumgreinadeild við
FS en það er tveggja ára nám sem gerir fólki kleift að
mennta sig svo á háskólastigi. Einnig ætlar A-listinn að
byggja nýjan og fullkominn tónlistarskóla.
Hvaða málefni á stefnuskrá flokksins finnst þér mikil-
vœgust?
Persónulega finnst mér menntamálin öll langmikil-
vægust því menntun skiptir náttúrulega öllu fyrir fram-
tíðina. Ahugasamir geta kynnt sér stefnur A-listans í
menntamálum á xa.is.
Hvað er á döftnnifyrir ungtfólk á vegum flokksins?
Við höfum nú verið með allt í gangi síðan í fyrra en það
er yfirleitt eitthvað að gerast allan ársins hring. Á döf-
inni eru spilakvöld á föstudögum í húsi A-listans ásamt
ýmsu öðru sem verður auglýst síðar meir eins og kaffi-
húsakvöld, tónleikar og margt annað.
Hvernig leggjast komandi kosningar íþig ?
Kosningarnar leggjast mjög vel í mig vegna þess að ég
er bjartsýnn á það að fráfarandi meirihluti verði sigr-
aður 27. maí. Annars er þetta allt saman mjög skemmti-
legt þannig að ég hvet alla eindregið til þess að taka
þátt. Það eru náttúrulega allir velkomnir í hús A-listans
sem er staðsett þar sem Glóðin var á Hafnargötunni.
En þess má geta að við höfum verið með opið málefna-
starf þar sem öllum íbúum Reykjanesbæjar hefur verið
boðin þátttaka, sem skilur okkur verulega frá íhaldinu,
en þar heyrði ég að einhverjir 10 einstaklingar hafi hist
heima hjá bæjarstjóranum og ákveðið stefnu íhaldsins
til næstu fjögura ára á lokuðum fundi. Auk þess er
athyglisvert og rétt að benda á það að kosningabarátta
íhaldsins virðist vera rekin á kostnað allra bæjarbúa en
komandi íbúafundir bæjarstjórans eru ekkert annað
en kosningafundir íhaldsins og kostnaður við þá er
greiddur af bæjarsjóði.
Nafn: Katrín Pétursdóttir
Aldur: 19 ára
Staður: Sandgerði
Flokkur og staða innan flokks-
ins: S-listinn, listi Samfylking-
arinnar og óháðra. Ég er þar
í 8. sæti.
Að hvaða leyti höfðarflokkur-
inn ogstefnur hans tilþín?
Ég er mjög hrifin af jafnaðar-
stefnunni og þeirri hugmynd
að koma á jöfnuði með lýðræð-
islegum hætti. Þetta er fallegur
boðskapur og mér finnst þetta
vera rétta leiðin til að stjórna samfélaginu. Frelsi, jafn-
rétti og bræðralag!
Hvað hefur flokkurinn í boðifyrir ungtfólkíþínu bœj-
atfélagi, s.s. menntaskóla- ogháskólanema?
Fyrst og fremst þá stuðlar flokkurinn að lýðræði og
því að bæjarbúar hafi eitthvað að segja þegar kemur að
málum er varðar Sandgerði. Þá er ekki spurt um aldur.
Þetta sést vel á því hversu fjölbreyttur hópur af fólki er
hjá okkur í framboði og það er öruggt að hlustað er á
þig. Þetta finnst mér mjög mikilvægt þar sem við unga
fólkið eigum að erfa landið og ættum því að hafa eitt-
hvað að segja um stjórnum þess.
Hvaða málefni á stefnuskrá flokksins finnst þér mikil-
vœgust?
Ég er sérstaklega heilluð af þeirri hugmynd okkar að
allt sem gert verður, verði gert vel, hvort sé um að
ræða umhverfismál bæjarins eða eitthvað annað. Mér
finnst mjög mikilvægt að stuðla að því að halda ungu
fólki í bænum eftir að það lýkur skyldunámi og þá er
mikilvægt að til sé húsnæði fyrir það, ekki of stórt og á
viðráðanlegu verði. Einnig að tómstunda- og menning-
arlíf bæjarins fái að blómstra því nóg er til af fólki með
frábærar hugmyndir í kollinum
Hvað er á döftnnifyrir ungtfólk á vegunt flokksins?
Við erum hópur innan S-listans sem kallar sig Ungt fólk
sem vill breytingar. Fyrir páska vorum við með páska-
bingó og það má til gamans geta að eftir það þá spruttu
upp fleiri svona ungliðahópar innan annarra lista, sem
hlýtur að þýða að við erum strax farin að hafa áhrif. En
meðal annars á dagskrá hjá okkur eru fyrirlestrar og
kynningar til að fræða unga kjósendur og að sjálfsögðu
verður það með skemmtilegu ívafi í okkar anda.
Hvernig leggjast komandi kosningar íþig?
Þær leggjast mjög vel í mig. Þetta verður spennandi
tími og mjög viðburðaríkur. Þessar kosningar eru líka
sérstakar í mínum huga þar sem þetta er í fyrsta skipti
sem ég fæ að kjósa til sveitarstjórnar og ég hvet líka alla
til að nýta sér rétt sinn og hafa áhrif. X - S!
Nafn: Árni Þór Ármannsson
Aldur: 20 ára
Staður: Reykjanesbær
Flokkur ogstaða innan flokks-
ins: Sjálfstæðisflokkurinn. Ég
skipa 16. sæti á framboðslista
flokksins. Er líka meðstjórn-
andi í stjórn Heimis, félags
ungra Sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ, formaður Mímis
sem er félag hægri sinnaðara í
F.S. og er einnig í formennsku
í skemmtinefnd Heimis.
Að hvaða leyti höfðarflokkur-
inn ogstefnur hans tilþín?
Ég hugsaði mig þó nokkuð um áður en ég ákvað að
gang til liðs við Sjálfstæðisflokkinn en hef fundið það
meir og meir að stefnumál flokksins höfða vel til mín,
sérstaklega hvað varðar bæjarmálin hér í Reykjanesbæ.
Síðustu ár hefur bærinn blómstrað undir stjórn flokks-
ins og vonandi heldur sá uppgangur áfram næsta kjör-
tímabil.
Hvað hefurflokkurinn í boðifyrir ungtfólk íþínu bcej-
atfélagi, s.s. menntaskóla- og háskólanema?
Flokkurinn vill náttúrlega alltaf búa vel að menntafólki
og með tilkomu Íþróttaakademíunnar kemur háskóla-
stigið nú sterkt inn í bæinn. Einnig hefur FS verið stækk-
aður og öll aðstaða bætt þar og er þetta gert til þess að
bæta aðstöðu og aðbúnað sem námsmenn þurfa til
þess að mennta sig og um leið að gera Reykjanesbæ sam-
keppnishæfan á þessu sviði við önnur bæjarfélög. Með
tilkomu þessara nýunga hefur svo verið reistur fyrsti
hluti af stúdentagarði og er hann sá fyrsti hér á svæðinu
og er fyrir bæði F.S og Íþróttaakademíuna.
Hvaða málefhi á stefnuskrá flokksins finnst þér mikil-
vægust?
Það eru að sjálfsögðu málefni unga fólksins í bænum
sem og íþróttamál, sem eru mér huglæg þar sem að
ég er íþróttamaður. Þó svo að þessi málefni séu í þokka-
legum farvegi þá er alltaf hægt að gera betur. Einnig
eru mörg málefni sem eru líka mjög mikilvæg eins og
atvinnumálin hérna á svæðinu.
Hvað er á döfinnifyrir ungtfólk á vegumflokksins?
Við erum með fullt af hlutum sem verða í gangi, það
verður alltaf eitthvað um að vera á föstudögum í kosn-
ingamiðstöðinni, trúbadorar, Dj-ar koma og uppistand-
arar koma og kíkja á okkur, svo erum við að plana
óvissuferð, útitónleika, Qölskyldudag og svo verður nátt-
úrulega stórdansleikur kvöldið fyrir kosningar í Stap-
anum. Þannig að það verður nóg að gera hjá okkur.
Hvernig leggjast komandi kosningar íþig?
Þær leggjast að sjálfsögðu vel í mig. Fyrsta skipti sem
maður er að taka þátt af alvöru þannig að þetta verður
vonandi skemmtileg reynsla og ánægjuleg niðurstaða.
20 IVÍKURFRÉTTIR 19. TÖLUBIAÐ 27. ÁRGAIMGUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!