Fréttablaðið - 09.09.2017, Side 6
Kosningabaráttan á fullu
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, heimsótti dýragarð í Wolgast í gær. Þingkosningar eru í landinu síðar í
mánuðinum en flokkur Merkel, Kristilegir demókratar, mælist með 38 prósenta fylgi samkvæmt meðaltali
skoðanakannana hjá Financial Times. Jafnaðarmenn mælast næststærstir með 23 prósent. Nordicphotos/AFp
langanesbyggð Sveitarfélagið
Langanesbyggð hefur ákveðið að
byggja nýjan leikskóla á Þórshöfn.
Samkvæmt ástandsskoðun verk-
fræðistofunnar Eflu er núverandi
húsakostur skólans í mjög lélegu
ástandi og mikið um myglu.
„Við lentum nú í því í fyrra að
þurfa að endurbyggja allan grunn-
skólann út af myglu og raka-
skemmdum,“ segir Elías Pétursson,
sveitarstjóri í Langanesbyggð, og
bætir við: „Svo erum við með ónýtt
íþróttahús sem kostar 100 milljónir
að laga.“ Verkefnið hefur ekki verið
kostnaðarmetið en Elías skýtur á að
kostnaður við nýbygginguna verði
að lágmarki 200 milljónir.
„Ég segi ekki að það sé auðvelt að fá
200 milljóna verkefni eftir þetta 160
milljóna króna vesen með grunn-
skólann en á sama tíma þá er þetta
nú ekki sérlega óvænt,“ segir Elías.
Aðspurður segir Elías sveitar-
félagið þó standa ágætlega, „en það
má ekki mikið klikka í 500 manna
sveitarfélagi ef við erum að tala um
framkvæmdir upp á 500 milljónir
á örfáum árum.“ Aðspurður segir
Elías fyrst og fremst lélegu viðhaldi
um að kenna.
Mörg hundruð milljóna
tjón vegna raka og myglu
Leikskólinn er undirlagður myglu og íþróttahúsið er ónýtt. Grunnskólinn var
endurbyggður í fyrra. Kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljóna. „Það má
ekki mikið klikka í 500 manna sveitarfélagi,“ segir sveitarstjóri í Langanesbyggð.
Kostnaður vegna myglu hleypur á hundruðum milljóna. FréttAblAðið/pjetur
Nokkur kergja virðist hlaupin í
myglumál sveitarfélagsins. Í bókun
sem minnihlutinn lagði fram á
fundi sveitarstjórnar 31. ágúst
segir meðal annars að hvorki leik-
skólastjórinn né minnihlutinn
hafi fengið niðurstöður ástands-
skoðana, þegar þær lágu fyrir í vor.
Börn hafi verið í húsinu allan júní-
mánuð. Eftir sumarfrí virðist mygl-
an hafa farið að spyrjast um bæinn
og foreldrar farnir að spyrja hvort
mygla væri í húsnæðinu. Starfs-
menn leikskólans byrjuðu einnig
að kvarta undan einkennum þegar
þeir sneru úr sumarfríi. Þá fyrst
fékk leikskólastjórinn niðurstöður
ástandsskoðana sem meirihlutinn
hafði haft undir höndum í tvo og
hálfan mánuð.
Á fyrrgreindum fundi var sam-
þykkt tillaga minnihlutans um
að „Sylgja, sérfræðingur í myglu,
verði fengin strax til að meta nánar
ástand húsnæðis leikskólans og
í framhaldinu verði farið í nauð-
synlegar úrbætur eða breytingar á
skólahaldi til þess að tryggja heilsu
og öryggi barna og starfsfólks.“
adalheidur@frettabladid.is
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
EN
N
EM
M
/
S
IA
•
N
M
83
07
9
Frá kr. 197.895 m/morgunmat & hálfu fæði skv. ferðalýsingu
Netverð á mann frá kr.197.895 m.v. 2 í herbergi.
Innifalið: Flug, skattar, gisting í 6 nætur á Hotel Paradis Plage Surf Yoga
& Spa Resort 4* m/hálfu fæði og 3 í nætur á Hótel Royal Atlas Agadir
4*+ m/morgunmat. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða.
Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Einstök 9 nátta ferð þar sem farþegum gefst kostur á að njóta lífsins á einstaklega fallegum hótelum sem
standa við strandlengju Marokkó. Á hótelunum er frábær
aðstaða til að næra sál og líkama í fullkominni slökun,
dekri og vellíðan - allt eftir því hvað hver og einn kýs.
Flogið er beint til Agadir í Marokkó og dvalið fyrstu 6
næturnar á Paradis Plage Surf Yoga & Spa Resort og
síðustu 3 næturnar á Hotel Royal Atlas Agadir. Á Paradise
Plage Surf Yoga & Spa 4* er kjörið að njóta lífsins og alls
hins besta sem hótelið hefur uppá að bjóða í mat, drykk
og afþreyingu.
Á Paradise Plage er boðið upp á jóga, nudd, tyrknesk böð
og ýmsar heilsu- og nuddmeðferðir. Fyrir þá sem vilja
sörfa en eru óvanir þá er hér í boði brimbrettakennsla.
Unnt er að bæta við bókun á ferðinni dásamlegum 5 daga
afþreyingarpökkum: Jóga með 5x90 mín. jógatímum.
Jóga & Dekur með 5x75 mín. jógatímum, 2 arabískum
böðum, 1 kornmaska og 2 slökunarnuddum 25/50 mín.
Brimbrettaskóli með 5x90 mín. brimbrettatímum.
Brimbretti & Jóga með 5x90 mín. brimbretta- og jógatímum.
Brimbretti, jóga og dekur með 5x90 mín. brimbretta- og
jógatímum ásamt 2 arabískum ilmolíuböðum, 2 arabískum
gufuböðum og 2x25 mín. nuddum.
Síðari hluta ferðarinnar er dvalið á Royal Atlas Agadir 4*+ í
Agadir, sem er stærsti sólstrandarstaður Marokkó. Í Agadir
er að finna gullna strandlengju eins langt og augað eygir en
á þessum fallega stað skín sólin um 300 daga á ári.
LÍKAMI & SÁL
Í MAROKKÓ
Jóga - Vellíðan - Sörf
6. nóvember í 9 nætur
Frá kr.
197.895
m/morgunmat &
hálfu fæði skv.
ferðalýsingu
– fáðu meira út úr fríinu
BRIMBRETTI & JÓGA 23.000/mann
JÓGA 12.500/mann
ALLUR PAKKINN 36.000/mann
JÓGA & DEKUR 23.000/mann
PARADIS PLAGE ROYAL ATLAS
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-9
F
2
8
1
D
B
2
-9
D
E
C
1
D
B
2
-9
C
B
0
1
D
B
2
-9
B
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K