Fréttablaðið - 09.09.2017, Blaðsíða 88
Lestrarhestur vikunnar
Bragi Bergþór Viðar Vésteinsson
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til
sumarlesturs á meðal barna.
Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar
til gerða miða og setja í pott sem dregið er úr vikulega. Lestrarhestur
vikunnar hlýtur bók að launum.
Því meira sem hann fær, þeim mun
gráðugri verður hann. Þegar hann
hefur hámað allt í sig, deyr hann.
Hver er það?
Hvernig getur vel skóaður maður
vaðið í hnédjúpu vatni án þess að
skórnir vökni?
Hvað stendur opið á næturnar og er
fullt af mannakjöti á daginn?
Hver er það sem sýnir á sér nýtt
andlit, en hefur þó ekkert andlit
sjálfur?
Höfuð mitt er í jörðinni, en blöðin
í loftinu.
Hvað er það sem hefur verið til allt
frá sköpun heimsins, en er þó ekki
nema en fjögurra vikna gamalt?
Gátur
Hann Bragi Bergþór Viðar er sjö
ára.
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Lönd.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Sögur úr norrænni
goðafræði.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Dönsk
risaeðlubók.
Hvers lags bækur þykir þér
skemmtilegastar? Um lönd.
Í hvaða skóla gengur þú? Ísaks-
skóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Ekki
mjög oft.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Dýr og lönd.
Vinkonurnar Sara Louzir og Lilja
Andradóttir eru á leiksvæði í hverf-
inu sínu að halda tónleika með
þykjustuhljóðfæri í höndunum.
Sara situr í rólunni en Lilja stendur
uppi á borði og saman syngja þær
með miklum tilþrifum NeiNei, sem
Áttan gerði vinsælt fyrr á þessu ári.
Falleg dúkka situr í kerru rétt hjá.
„Hún er að hlusta á okkur,“ segir
Lilja til skýringar þegar laginu lýkur.
Lilja er ljóshærð og bláeyg og Sara
svarthærð og brúneyg. Sara kveðst
hafa fæðst á Íslandi en mamma
hennar og pabbi séu frá Alsír. „Ég
hef aldrei átt heima í Alsír, bara á
Íslandi, en ég fer stundum til Alsír
og heimsæki ömmu mína,“ segir
hún.
„Það er langbest að vera á Íslandi.
Þar er aldrei stríð,“ segir Lilja sem
kveðst hafa fæðst í Frakklandi.
Þær eru báðar nýbyrjaðar í 2. bekk í
Dal skóla í Reykjavík. „Við Lilja erum
saman í bekk,“ segir Sara og bætir
við að þar séu tveir 2. bekkir. „Við
erum í 2. G af því kennarinn okkar
heitir Gyða.“
„Við löbbum í röð inn í stofuna.
Gyða er með bjöllu og þegar hún
hringir henni þá hætta allir að tala.
Við erum svo þæg,“ lýsir Lilja. Sara
segir Dal skóla vera góðan skóla „Þar
er aldrei neinn að stríða.“ Lilja tekur
undir það. „Allir eru góðir vinir,
alveg sama hvaða tungumál þeir
tala, einn strákur talar spænsku og
ein stelpa ensku.“
Best að tefja þær ekki lengur, eru
þær ekki að æfa fyrir alvörutón-
leika? Lilja hikar aðeins áður en hún
svarar: „Kannski þegar við erum
orðnar unglingar. Þá höldum við
tónleika saman.“
„Við erum ekki búnar að safna
okkur fyrir hljóðfærum,“ útskýrir
Sara. „Ég hugsa að við byrjum á að
verða söngkonur.“
Það er
langbest
að vera á Íslandi
Lilja og Sara ætla kannski að halda tónleika saman þegar þær eru orðnar
unglingar en fyrst ætla þær að safna sér fyrir hljóðfærum. FréttabLaðið/Ernir
Lausn á gátunni
Maríuerla?
„Jæja, Róbert,“ sag ð i
Kata pirruð. „Þú veist
náttúrulega allt um
þennan fugl er það ekki?
Hvað hann heitir, hefur
örugglega bæði ungað
honum út úr eggi, þekkir
ömmu hans og ef ég
þekki þig rétt líka étið
hann.“ Það sauð á Kötu.
„Svona, svona,“ sag ð i
Róbert óvenju auð-
mjúkur. „Ég veit lítið um
þennan fugl og ekki hvað
hann heitir.“ Svo bætti
hann við: „Nema að ég
hef séð hann og hann er
mjög kvikur, hleypur um
og dillar stélinu upp og
niður.“ Kata lét þetta svar
sér nægja og þagði þótt
pirruð væri.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
266
Veist þú
hvaða fugl
þetta er?
?
?
?
Svör: Eldurinn. Með því að halda á
skónum. Skórnir. Spegillinn. Kart-
aflan. tunglið
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
krakkar
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
2
-B
C
C
8
1
D
B
2
-B
B
8
C
1
D
B
2
-B
A
5
0
1
D
B
2
-B
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K