Fréttablaðið - 09.09.2017, Qupperneq 12
HVER Á HRÓS
SKILIÐ?
Tilnefndu einstakling, fyrirtæki eða umfjöllun
sem skaraði fram úr síðasta árið og stuðlaði
öðrum fremur að því markmiði að skapa eitt
samfélag fyrir alla.
Nánar á www.obi.is
Skilafrestur 15. september
TILNEFNINGAR ÓSKAST TIL
HVATNINGARVERÐLAUNA ÖBÍ
Bandaríkin Hálfri milljón hefur
verið skipað að yfirgefa heimili sín í
Flórída vegna fellibylsins Irmu sem
spáð er að gangi á land í suðurhluta
ríkisins á morgun. Framkvæmda-
stjóri almannavarna Bandaríkjanna
varaði í gær við yfirvofandi gjör-
eyðileggingu.
Irma hefur undanfarna daga skil-
ið eftir sig sviðna jörð á eyjum Kar-
íbahafsins og hafa að minnsta kosti
tuttugu látið lífið í hamförunum en
alls er stormurinn sagður hafa haft
mikil áhrif á líf 1,2 milljóna manna.
Líklegt þykir að báðar tölur muni
hækka verulega.
Fellibylurinn var í gær lækkaður
úr fimmta stigi niður í það fjórða,
sem þó þýðir að stormurinn sé
afar hættulegur. Bandaríska veður-
stofan greindi frá því í gær að líklega
yrði meðalvindhraði Irmu um 74
metrar á sekúndu þegar stormurinn
skellur að öllum líkindum á Flórída.
Greindi veðurstofan frá því í gær að
vegna Irmu gæti suðurhluti Flórída
orðið óbyggilegur í vikur, jafnvel
mánuði.
„Fellibylurinn Irma heldur áfram
að vera alvarleg ógn og mun Irma
valda gjöreyðileggingu í Banda-
ríkjunum, annaðhvort í Flórída eða
í öðrum ríkjum á suðausturströnd
Bandaríkjanna,“ sagði Brock Long,
framkvæmdastjóri almannavarna
vestanhafs, í gær. Langlíklegast
þykir að Flórída verði fyrir barðinu
á storminum.
Rick Scott, ríkisstjóri Flórída, tók
undir með Long í gær og varaði við
fellibylnum. „Við höfum ekki miklu
lengri tíma. Ef þú ert á svæði þar
sem búið er að fyrirskipa rýmingu
þá þarftu að flýta þér og yfirgefa
svæðið samstundis,“ sagði Scott á
blaðamannafundi í gær og bætti
því við að hægt væri að endurreisa
heimili, hins vegar væri ekki hægt
að vekja fólk upp frá dauðum.
„Ef þú skoðar stærð stormsins
sérðu að hann er risavaxinn. Hann
er breiðari en Flórídaríki og er bæði
hættulegur fólki og innviðum,“
sagði Scott enn fremur.
Irma gekk yfir Turks og Kaíkos-
eyjar í gær sem og Hispanjólu og
olli þar nokkru tjóni, bæði vegna
mikilla vinda og rigningar. BBC
greindi frá því að á Turks og Kaíkos,
þar sem 35.000 manns búa, hefðu
eyjaskeggjar fundið allhressilega
fyrir því þegar loftþrýstingur tók
dýfu. Reif Irma þök af byggingum
höfuðborgarinnar, olli miklum flóð-
um, sleit háspennulínur og olli raf-
magnsleysi. Á Hispanjólu, þar sem
eru ríkin Haítí og Dóminíska lýð-
veldið, olli Irma sams konar tjóni,
þó einkum á norðurströndinni.
Í samtali við BBC sagði John
Freeman, ríkisstjóri Turks og Kaí-
kos, að vel hefði tekist til við rým-
ingu en því var beint til íbúa á lág-
lendi Turks og Kaíkos að koma sér
eins hátt upp og unnt var. Hæsti
punktur eyjanna er þó einungis
fimmtíu metra yfir sjávarmáli.
Í dag er svo búist við því að mesti
stormurinn gangi yfir austur- og
miðhluta Kúbu á meðan auga
stormsins á að ganga á milli norður-
strandar Kúbu og Bahamaeyja, að
því er kemur fram í spá Fellibylja-
stofnunar Bandaríkjanna (NHC).
Fréttavefur Reuters greindi frá því
í gær að um fimmtíu þúsund ferða-
menn hefðu flúið Kúbu til þess að
verða ekki fyrir barðinu á ofsaveðr-
inu. Voru vinsælir ferðamannastað-
ir og hótel á norðurströnd eyjunnar
til að mynda galtóm í gær.
thorgnyr@frettabladid.is
Vara við gjöreyðileggingu í Flórídaríki
Irma gekk yfir fleiri Karíbahafseyjar í gær. Bandaríkjamenn búa sig nú undir fellibylinn sem flokkast nú á fjórða stigi, ekki fimmta.
Ríkisstjóri Flórída segir afar mikilvægt að fólk yfirgefi svæði sem á að rýma. Ríkið gæti orðið óbyggilegt í marga mánuði eftir storminn.
Flóð hrjá íbúa norðurstrandar Haítí eftir að Irma gekk þar yfir. NordIcpHotos/AFp
Það er hægt að
endurbyggja heim-
ili, það er ekki hægt að vekja
fólk upp frá dauðum.
Rick Scott,
ríkisstjóri Flórída
9 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 L a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-9
A
3
8
1
D
B
2
-9
8
F
C
1
D
B
2
-9
7
C
0
1
D
B
2
-9
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K