Fréttablaðið - 09.09.2017, Side 28
titruðu af stolti. Ég á gott bakland
og veit hvað þetta skiptir miklu
máli. Ég held að hlutirnir fari síður
úr skorðum ef það er traust í fjöl-
skyldunni. Það er fólk í kringum mig
sem hefur staðið í erfiðum forræðis-
deilum. Vinir mínir og gott fólk sem
missir tökin. Það slettist eitthvað
upp á og svo missir fólk tökin með
glötuðum afleiðingum. Svo réttist
þetta af á endanum. Þetta er algengt.
Og deilur af alls kyns tagi, þar sem
fólk nær hreinlega ekki almennilega
tengslum. Það er haldið einhverjum
doða og vanlíðan, veit ekki almenni-
lega hvernig það á að ræða hlutina,
sækir sér ef til vill ekki hjálp og svo
fer bara allt í bull.“
Með hetjunum sínum
Það má segja að leikarar myndar-
innar séu góður hluti landsliðsins í
gríni. Steindi lærði mikið í ferlinu.
„Þetta eru hetjurnar mínar og mér
fannst ég vera með landsliðinu. Ég
leit oft í kringum mig á setti og varð
bara agalega stoltur en líka setti ég
pressu á mig og hugsaði: Vá, það er
bara núna eða ekki með mig. Þau búa
yfir mikilli reynslu og það sem ég tek
með mér í næsta verkefni er að skilja
tilfinningarnar eftir á setti. Þau ráða
svo vel við ferlið. Ég lærði að grufla í
hlutum, opna gömul sár til að opna
á tilfinningar. En ég tók það stundum
með mér heim,“ segir hann.
„Ég kýs að kalla Eddu queen of
grín og ég dáðist að Sigga í ferlinu,
hann er svo agaður. Þetta er tækni
og skilningur, flæði sem mér fannst
ómetanlegt að komast í tæri við.
Ég hef verið upptekinn af þessum
hetjum mínum frá því ég var barn.
Frá því ég var átta ára gamall voru
tvær myndir oftast í tækinu, Stella
í orlofi sem þau leika bæði í, Siggi
og Edda, og Beetlejuice. Ég kann
Stellu í orlofi nánast utan að. Ég er
alinn upp við þeirra gamanleik en
ég hef auðvitað ætlað mér að starfa
við þetta frá því ég var barn,“ segir
Steindi en eins og margir þekkja
varð hann fyrst þekktur ungur af
YouTube myndböndum sem rifu í
hláturtaugarnar.
Íbúfenkúrinn!
Undirbúningur fyrir kynlífssenu
í myndinni var ekki áreynslulaus.
Steindi þurfti að létta sig töluvert
fyrir gerð myndbandsins og notaði
heldur óhefðbundna aðferð sem
hann mælir ekki með. Fyrir nokk-
urn mann!
„Sú sena á að gerast nokkrum
árum áður. Ég fékk mánuð til þess
að taka upp þau skot. Ég reyndi
að missa eins mikið og ég gat á
skömmum tíma. Ég var of upptek-
inn til að fara í ræktina þannig að
ég át bara hádegismat og svo tók ég
bara verkjalyf þegar ég var svangur.
Þetta er hrikalega óhollt og ég mæli
ekki með þessu. Við kölluðum þetta
íbúfenkúrinn. Þetta er fjörutíu
sekúndna sena og ég rétt svo sést í
speglaskoti. Ég grínaðist í Hadda
vegna þess, hvort það mætti ekki
sjást aðeins meira í mig eftir alla
þessa fyrirhöfn. En glöggir áhorf-
endur munu sjá muninn.“
Steindi á það greinilega til að
leggja svona hart að sér. Í sumar
hljóp hann hálfmaraþon án þess
að hafa reimað á sig hlaupaskóna
að ráði.
Ævistarfið
Steindi tók einnig að sér aukahlut-
verk í heimildarmyndinni Out of
Thin Air á síðasta ári, sem fjallar
um Guðmundar- og Geirfinnsmál-
in. Myndin fór í sýningar á Netflix
í sumar.
Gamni og gríni getur hann ekki
hugsað sér að sleppa. Þar liggur
rauði þráðurinn. En hann getur
hugsað sér að taka að sér fleiri hlut-
verk utan gamanleiksins og segist
vera kominn með sjálfstraust til að
hlýða meira á eigin rödd. Hann er
hættur að láta aðra segja sér hvað
hann er.
„Það hefur verið erfitt fyrir mig að
fá viðurkenningu á því hreinlega að
ég sé listamaður. Leikari. Þrátt fyrir
að það sé ævistarfið. Þetta starf valdi
mig, allt sem ég geri frá því ég er lít-
ill drengur snýst um þessa ástríðu,
að leika, skrifa, framleiða. En þrátt
fyrir það þá hafa aðrir stundum
viljað segja mér að þetta sé ég ekki.
Af því að ég er ólærður. Eitt sinn fór
ég í blaðaviðtal og blaðamaðurinn
neitaði að titla mig leikara af því
að ég er ekki lærður. Hann stakk
upp á orðinu skemmtikraftur. Ég
vil vera tekinn alvarlega. Ég man
að Jón Gnarr talaði um svipaða
baráttu fyrir viðurkenningu. Mér
fannst gott að vita af hans baráttu.
En sjálfstraustið er komið núna. Ég
læt engan segja mér hvað ég er. Ég
fór erfiðari leiðina. En ég fór hana,“
segir hann.
„En ég er samt auðmjúkur. Ég
hugsa vel um það sem ég er að
gera. Ég hlusta á aðra og læri. En
sem betur fer þá er ég sterkari, ég
er hættur að leita eftir gagnrýni
og hlusta betur á mína eigin rödd.
Áður las ég öll komment, við You-
Tube myndbönd og hvað sem er. Ef
ég sá eitt neikvætt komment vildi
ég hitta þá manneskju og sann-
færa hana um mitt eigið ágæti. Ég
vildi hafa alla góða. Einhver tólf ára
strákur úti í bæ hélt mér í einhverri
angist, það er bara ógeðslega fyndið.
En kannski er ég ekki ekkert laus
við þetta. Kannski mun ég skoða
kommentin undir þessu viðtali og
engjast yfir þeim.“
Myndir af setti
Myndir/brynjar SnÆr
ég át bara hádegismat
og svo tók ég bara
verkjalyf þegar ég
var svangur. þetta er
hrikalega óhollt og
ég mæli ekki með þessu.
við kölluðum þetta
íbúfenkúrinn.
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-A
4
1
8
1
D
B
2
-A
2
D
C
1
D
B
2
-A
1
A
0
1
D
B
2
-A
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K