Fréttablaðið - 09.09.2017, Blaðsíða 30
Sjálfboðaliðar á öllum
aldri óskast
Viltu koma í hóp skemmtilegra sjálfboðaliða hjá
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjavík og gefa af þér
nokkra tíma í viku?
Endilega gefðu þig fram á staðnum
eða í síma 892-9603.
Iðufelli 14, Reykjavík
Rauður frá toppi til táar. (Max Mara). Mittisbelti og kvenlegar línur. (Louis Vuitton). Köflótt dragt. (Stella McCartney)
Viljum það besta strax
Daníel Freyr Atlason hjá Döðlum
Samfélagið hefur breyst mjög mikið á síðasta áratug vegna tækni-
framfara. Við eltum
tæknina og breytingar
á netnotkun og fleira
veldur því að við viljum
fá allt eins og skot. Við
viljum það besta, strax.
Samkeppnisumhverfi fyrir-
tækja hefur breyst. Fyrirtæki
keppa ekki í sömu grein. Coca-Cola
keppir ekki lengur bara við Pepsi,
heldur ótal aðra hluti sem hafa á
sér skemmtilega ímynd. Ímynd og
hugmyndir skipta miklu meira máli
en áður. Til þess að keppa við önnur
fyrirtæki þarf hugmyndavinnan að
vera góð því neytandinn er orðinn
afar fær í að leita uppi það sem hann
vill. Kröfurnar hafa aukist mjög
mikið en á sama tíma er auðveldara
að koma sér á framfæri ef þú býrð
yfir hugmyndaauðgi. Þú getur verið
viss um að fólk finni þig ef þú ert að
gera skemmtilega hluti.“
Daníel segir að á meðan tæknin
rjúki áfram hafi fólk vissa þörf fyrir
jafnvægi. „Allt er leyfilegt í dag.
Það er í okkar eðli að við þurfum
ákveðið jafnvægi. Þegar tæknin
rýkur fram þá bökkum við með
annað, eins og til dæmis tísku. Þegar
allir eru komnir með allt sem þarf
í símann sinn þá fær fólk kannski
þörf fyrir nostalgíu með aðra hluti.
Mér finnst lítið nýtt í gangi, við
erum að endurvinna hlutina. En
frumleikinn er í endurvinnslu hug-
mynda. Fólk spyr mig oft af hverju
ég klæði mig eins og ég sé tvítugur.
Ég segist vera búinn að vera svona
klæddur í 20 ár og sé enga ástæðu
til að breyta því þó að ungt fólk
klæði sig svipað í dag,“ segir hann
og brosir út í annað. „Streetwear í
dag er bara útvíkkuð pæling frá síð-
ustu aldamótum. Fólk er í jogging-
buxum með Gucci-belti, þó að það
sé teygja í buxunum! En ég gæti mín
nú samt á því að dæma ekki. Það
getur verið svo mikil hugmynda-
auðgi í því hvernig við endurnýtum
og vinsum úr eldri hug-
myndum. Fólk á bara
að hafa hlutina eins
og það nákvæmlega
vill,“segir Daníel.
Hann segist hafa
þörf fyrir að skrúfa
fyrir samfélagsmiðla
og fréttaveitur. „Ég fer
lítið á Vísi og mbl.is og
alls ekki inn á Facebook.
Ég er kominn með nóg af því að
hlusta á skoðanir fólks. Ég fer mest á
Instagram og ég vil stýra því svolítið
hvað ég sé og hef í kringum mig. Ég
held að sífellt fleiri finni þessa þörf
hjá sér. Að skrúfa niður í hávað-
anum ef svo mætti taka til orða,“
segir Daníel og segir kröfu fólks um
gæði og innihald í auknum mæli
að færast á samfélagsmiðla og fjöl-
miðla eins og annað.
Frjálslegur andi sjöunda áratugar. Hér sitja fyrir þau Keith Richards og Anita Pallenberg. noRdiCPHotoS/Getty
Hönnuðir í nostalgíu
Edda Gunnlaugsdóttir, aðstoðarritstjóri Glamour
Edda segir eins og Daníel að í dag sé allt leyfilegt. Það sé
vel greinanlegt í haust-
tískunni í ár. „Sá stíll
sem mér finnst hvað
mest áberandi er sá
persónulegi, og þú átt
eiginlega að gera haust-
tískuna að þinni. Það eru
engar reglur lengur, tískan er
til að hafa gaman af. Blandaðu öllu
saman ef þú vilt,“ segir Edda.
Og afturhvarfið og nostalgían er
áberandi. „Það er mikil nostalgía í
tískuheiminum um þessar mundir
og eru hönnuðir mikið að fara til
baka. Marc Jacobs sótti innblástur
í hip-hop senu tíunda áratugarins
en Alessandro Michele hjá Gucci
fór aðeins lengra aftur í tímann.
Sjöundi áratugurinn kom fram í
mörgum myndum fyrir veturinn,
þar sem hönnuðir sóttu innblástur
bæði í tískufyrirmyndir og tónlistar-
senu þess tíma, eins og Keith Rich-
ards, Jane Birkin og Twiggy. Þessi
vísun kom sterkt fram hjá Aless-
andro Michele hjá Gucci, Prada og
Chloé. Stuttir kjólar, útvíðar buxur
og frjálslegt yfirbragð,“ segir Edda
sem segir að þó að allt sé leyfilegt
séu vissir straumar sterk-
ari í litum, efni og áferð.
„Köflótt er mjög áber-
andi í vetur, sem mér
finnst mjög skemmti-
legt. Dragtin kemur
líka mjög sterk inn,
og myndi ég fá mér
þannig í gráum eða
jafnvel vínrauðum
lit. Leðrið er svo oft
áberandi á haustin og það
verður engin undantekning á
því núna.
Rauður er aðalliturinn um
þessar mundir, algjörlega
frá toppi til táar. Vínrauður,
skærrauður og jafnvel út í
bleikt, og flott að blanda því
öllu saman. Þótt haustið sé
komið þá eiga þessir litir vel
við, og gott er að hvíla svarta
litinn aðeins.
Ég myndi segja að
formið væri bæði kvenlegt
og frjálslegt. Mittisbelti,
bæði yfir kápur og á víðum
buxum sem ýtir undir
kvenlegar línur, hins vegar
eru jakkar og kápur höfð í
yfirstærð, þannig að það er
gott jafnvægi þar á milli.“
djörf samsetning úr haust- og vetrar-
línu Gucci. noRdiCPHotoS/Getty
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Guðný Hrönn
Antonsdóttir
gudnyhronn@365.is
Nostalgían
og tæknin
Eftir því sem tækninni
fleygir hraðar fram virðist
fólk hafa aukna þörf fyrir að
dvelja í fortíðinni. Nostalgía
er áberandi nú um mundir
í straumum og stefnum í
tísku, hönnun og listum.
9 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
2
-9
0
5
8
1
D
B
2
-8
F
1
C
1
D
B
2
-8
D
E
0
1
D
B
2
-8
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K