Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 34

Fréttablaðið - 09.09.2017, Page 34
Hún hefur ekki notið sannmælis í sög­unni,“ segir Guðrún Sesselja Arnardóttir, h æ s t a r é t t a r l ö g ­maður og verjandi Agnesar Magnúsdóttur sem réttað verður yfir í gjörningi Lögfræðinga­ félags Íslands á Hvammstanga seinni­ partinn í dag. Agnes var ásamt Friðriki Sigurðs­ syni hálshöggvin við Þrístapa í Vatns­ dalshólum 12. janúar 1830, fyrir morð, brennu og þjófnað. Þetta voru síðustu aftökurnar á Íslandi. Fer ekki fram á sýknu „Ég fer ekki fram á sýknu,“ segir Guðrún Sesselja og vísar til þess að Agnes játaði brotin á sínum tíma. „Mín málsvörn mun byggjast á því að þær hafi sætt gríðarlegu heimilis­ ofbeldi og kynferðisofbeldi af hendi Natans,“ segir Guðrún og bætir við: „Ég vísa til dómafordæma um að það leiði til vægari refsingar þegar fólk hefur búið við langvarandi ofbeldi og nefni auðvitað líka þennan gríðar­ lega aðstöðumun sem þessar aumu vinnukonur, Agnes og Sigríður, búa við gagnvart þessu allt um lykjandi yfirvaldi.“ Þótt ljóst sé af gögnum málsins að heimilisaðstæður á Illugastöðum hafi verið vægast sagt ömurlegar, voru engin grið gefin við ákvörðun refsingar og gjörningnum í dag er ætlað að leiða í ljós hvernig höndum nútímalöggjöf og ­gildismat hefði farið um sakborningana. Væri grunaður kynferðis­ brotamaður Gestur Jónsson, hæstaréttarlög­ maður og verjandi Friðriks, segir að í dag yrði Natan talinn kyn­ ferðisbrotamaður. Velta má fyrir sér aðdraganda voðaverkanna á Illuga­ stöðum af lestri málsgagna og greina um atburðinn. „Friðrik minn var hálfgerður kjáni og Sigríður greyið ekki nema 16 ára þegar morðin eru framin. Hún er aðeins 14 ára þegar foreldrar hennar senda hana í sveit til Natans,“ segir Gestur. „Sigríður var látin sofa upp í hjá Natan þegar hann vildi. Í dag væri enginn vafi á því að Natan er kynferðisbrotamaður. Friðrik bað um hönd Sigríðar. Sig­ ríður lætur á sér skilja að hún sé til í það en Natan muni ekki láta hana lausa.“ Gestur telur mögulegt að Friðrik hafi litið á Natan sem ógn. Manninn sem heldur unnustu hans frá honum, neitar að láta hana lausa úr vistar­ bandi og misnotar hana. „Í dómskjölunum hins vegar er öll áhersla lögð á að þetta hafi verið auðgunarbrot. Þau hafi ætlað að stela frá Natan.“ Vonbrigði Agnesar Gestur hefur fleiri kenningar um aðdragandann að voðaverkunum á Illugastöðum. „Það er enginn vandi að sjá fyrir sér að Agnes hafi upplifað að hún gæti aldrei öðlast þá stöðu sem hún sóttist eftir á meðan Natan lifði. Hún gat ekki farið úr vistinni án þess að hann samþykkti það. Hún gerði sér kannski vonir um að eitt­ hvað yrði á milli þeirra þegar hún fór frá Geitaskarði. En hitti þar Sig­ ríði fyrir. Hún áttar sig á því að Natan er hvorki að fara að kvænast henni né Sigríði,“ segir Gestur og bætir við: „Þannig að hafi hún haft drauma um það að öðlast frelsi og sjálfstæði í gegnum dvölina á Illugastöðum þá verða það örugglega mikil vonbrigði fyrir hana.“ Heimilisofbeldi undirrótin Guðrún Sesselja leggur meiri áherslu á að langvarandi ofbeldi gegn þeim Agnesi og Sigríði hafi verið undir­ rótin. Vísar Guðrún meðal annars til þeirra orða sem Agnes játaði að hafa haft yfir líki Natans. En í dómsskjölum segir um það: „Agnes viðkannast að þá Nathan hafi verið dauður hafi hún sagt, að nú væri hann ekki að laspúvera sig til eður neitt af kvenfólki.“ Agnes vísar til þess heimilis­ ofbeldis og skamma sem þær Sigríður máttu stöðugt þola af hendi Natans. Reiðin breyttist í hatur Agnes hefur lengi verið Maríu Ellingsen leik­ konu hugleikin. María lék titilhlut­ verk kvikmyndar­ innar Agnes árið 1995. „Hún stend­ ur uppi í hárinu á honum, reynir að flýja en þar sem vistarbönd eru í gildi á þessum tíma þá neyðist hún til að hunskast aftur heim. Hann niðurlægir hana enn frekar með því að láta hana sofa í útihúsunum. Þá er eins og henni hafi verið stillt upp við vegg. Hún hefur engan sér til varnar. Hvorki fjölskyldu né yfirvöld og tekur þá til sinna ráða. Reiðin breytist í hatur sem mallar lengi og endar með morði,“ segir María. Málsbætur að engu hafðar „Mér fannst ég vera að lesa sögu konu sem ætíð fannst hún vera úti í horni í öllum aðstæðum og aldrei njóta nauðsynlegrar og sjálfsagðrar viðurkenningar,“ segir Erla Bolla­ dóttir, sem drakk í sig allt sem hún komst yfir um Agnesi á meðan hún sat í gæsluvarðhaldi á áttunda ára­ tugnum vegna Guðmundar­ og Geir­ finnsmála. „Í heimildum um réttarhöldin var hvergi staf að finna sem skoð­ ast hefði mátt sem málsbætur. Til dæmis upplýsingar um aðdragand­ ann sem hefðu jafnvel orðið henni til náðunar. Yfirvöld og almenn­ ingur heimtuðu blóð hennar. Ekki lágu fyrir sannanir um morð að yfir­ lögðu ráði aðrar en játningar,“ segir Erla og bætir við: „Mér fannst við eiga það sameiginlegt að vera kúg­ aðar af hálfu þeirra sem að okkur stóðu. Natan birtist mér sem tákn um dómsmálayfirvöld. Hann hélt henni í óumflýjanlegri stöðu þar til morð var framið og hún tekin af lífi fyrir. Rannsakendur héldu mér í örvæntingarfullri og óumflýjanlegri stöðu þar til meinsæri var framið og ég tekin af lífi fyrir.“ Hver var Agnes? Í grein sinni „Dauði Natans“, sem gefin var út 100 árum eftir aftökurn­ ar, heldur Guðbrandur Jónsson pró­ fessor því fram að Agnes og Friðrik hafi verið „fáfróðir og illa upp aldir vesalingar, af þeim enda þjóðfélags­ ins, sem einskis á úrkostar“. Guð­ brandur rökstyður þessa einkunn ekki með öðru en þjóðfélagsstöðu þeirra Agnesar og Friðriks og fer með henni í rauninni gegn þeirri lýsingu á Agnesi sem gefin er í sjálfum máls­ gögnunum sem hann sjálfur lætur getið. Þar er haft eftir presti að hún sé „hafandi góðar gáfur velkunnandi og skiljandi sinn kristnidóm“. Í fanga­ skýrslu sýslumanns er hún kölluð „allvel uppalin“. „Vísurnar sem Agnes sendi Rósu eru einhverjar flottustu vísur sem ég hef séð,“ segir Gestur, aðspurður um persónu Agnesar og vísar til send­ inga milli Skáld­Rósu og Agnesar, sem hafa öðru fremur verið taldar vísbending um ást þeirra beggja til Natans og afbrýðisemi hvorrar í annarrar garð. „Þetta er náttúrulega örugglega mjög sorglegt líf þar sem kona með svona mikla hæfileika og góða greind nær ekki að njóta þeirra í sínu lífi,“ segir Gestur og bendir á, eins og málsgögnin sýna, að hún var fluglæs, talin greind við fermingu og að auki þannig skrifandi að hún var að skrifa bréf fyrir aðra. „Það er eng­ inn vafi á að hún væri í A­bekknum, hefði hún verið sett í getuskiptan skóla, ekki spurning,“ segir Gestur. Baráttukonan Agnes „Þegar ég var að undirbúa mig fyrir þetta hlutverk fann ég að hún var með einhvern ógnarsterkan baráttuvilja og stolt og neitaði að láta þagga niður í sér,“ segir María Ellingsen og bætir við: „En merki­ legast þykir mér að Agnes gefur sig ekki heldur eftir að hún er dáin.“ María vísar til þess að Agnes hafi stöðugt minnt á sig að handan og haldið fólki að verki. „Það eru skrif­ aðar um hana greinar og bækur og gerð um hana kvikmynd. Ég hugs­ aði einmitt þegar við fórum með myndina á kvikmyndahátíð í Prag – nú er Agnes komin með söguna sína til Evrópu, nú hlýtur hún að vera ánægð,“ segir María og bætir við: „En það virðist ekki hafa verið nóg.“ María vísar til leikverks sem hún hefur verið með í þróun þar sem Agnes er ein af aðalpersónunum, bókar Hönnuh Kent, Náðarstund, sem áform hafa verið um að kvik­ mynda í Hollywood, verk fræði­ manna eins og Helgu Kress svo fátt eitt sé nefnt. „Og nú ætlar Lögfræð­ ingafélagið að taka málið upp um helgina. En það er kannski það sem Agnes er búin að vera að bíða eftir í öll þessi ár – réttlát málsmeðferð, við sjáum til hvort hún róast eftir helgi,“ segir María að lokum. Baráttukonan Agnes Hvað gerir manneskja sem getur ekki flúið kvalara sinn? Í réttarhöldum sem fara fram í dag á Hvammstanga verður réttað á ný í máli Agnesar Magnúsdóttur og Friðriks Sigurðssonar sem voru hálshöggvin árið 1830. Langvarandi ofbeldi var undirrótin, segir verjandi Agnesar. María Ellingsen vonar að eftir réttarhöldin fái Agnes frið. MYND/CHRISTOPHER LUND Af gögnum málsins mátti ráða að heimilisaðstæður á Illugastöðum væru vægast sagt ömurlegar og líklegt að þær væru á einhvern hátt tilefni voðaverkanna. Dómsorð í Héraði Því dæmist rétt vera. Fangarnir Friðrik Sigurðsson, Agnes Magnúsdóttir og Sig- ríður Guðmunds- dóttir skulu hafa fyrirgjört lífi sínu og hálshöggvast með öxi og þar eptir leggjast á steglur og hjól en höfuðin setjast á stjaka. (Staðfest í Hæstarétti 25. júní 1929) Æviferill Agnesar l Fædd 1795 l Einstæðingur frá unga aldri og vinnuhjú á bæjum alla tíð l Réðst sem ráðskona að Illuga- stöðum árið 1827 l 1828 Natan myrtur (13. mars) l 1828 Héraðsdómur fellur (21. júlí) l 1929 Dómur Hæstaréttar (25. júní) l 1830 Hálshöggvin/dáin (12. janúar) l Dysjuð hjá réttarstaðnum sama dag l 1834 Jörðuð í vígri mold að Tjörn í Vatnsnesi Enginn lái öðrum frekt, einn þótt nái að falla. Hver einn gái að sinni sekt, syndin þjáir alla. Agnes Magnúsdóttir Guðrún Sesselja, verjandi Agnesar. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 2 -C 6 A 8 1 D B 2 -C 5 6 C 1 D B 2 -C 4 3 0 1 D B 2 -C 2 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.