Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 84
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lagið Ég vil það með Chase og Jóa Pé hefur verið gríðarlega vinsælt síðan það kom út fyrir tæpum þremur vikum og er á toppi Spotify vin-
sældarlistans auk þess sem áhorf á
myndbandið eru farin að nálgast
80 þúsund á ekki lengri tíma. Chase
Anthony er aðeins 18 ára og ekki
búinn að vera lengi að – hann gaf út
sitt fyrsta lag í október í fyrra.
„Við erum tveir sem byrjuðum
þetta saman – ég og Oddur Þórisson.
Við hittumst fyrst 24. október til að
gera tónlist, við höfðum verið í skóla
saman og þekktumst, og svo kom
fyrsta lagið þarna 28. október. Eftir
það vorum við að vinna saman með
skólanum, hægt og rólega. Við erum
búnir að gefa út þrjú lög á ensku en
núna í sumar prófuðum við að gefa
út lag á íslensku. Þá fengum við
Jóa með, við vorum búnir að vera
góðir kunningjar og gáfum út Ég vil
það,“ segir Chase en honum fannst
enskan ekki vera að virka neitt og
því var ákveðið að skipta yfir í okkar
ástkæra og ylhýra – og það virkaði
heldur betur vel fyrir þá.
Bjuggust þið við þessum viðtökum?
„Nei, eiginlega ekki, maður býst
alltaf við því besta auðvitað – en ég
var eiginlega bara „what, hvað er að
gerast?!“ Ég var í Bandaríkjunum
á meðan á þessu stóð og ég hugs-
aði með mér „af hverju er ég ekki á
Íslandi núna?““
Chase hefur nokkrum sinnum
spilað á tónleikum en málsháttur í
íslensku rappsenunni er svohljóð-
andi: „ef þú hefur ekki spilað á
Prikinu, hefur þú þá í raun og veru
spilað?“. Eða það gæti allt eins verið
svona málsháttur.“ Allavega verður
Chase með „showcase“ á Prikinu
í kvöld þar sem hann sýnir kröfu-
hörðum Prikurum hvers megn-
ugur hann er og verða þetta hans
fyrstu tónleikar í Mekka rappsins
á Íslandi – og alveg örugglega ekki
þeir síðustu.
Hvað muntu bjóða upp á á Prikinu
í kvöld? „Við erum að gera plötu á
Íslensku núna – hún ætti að vera
tilbúin í byrjun september. Við
ætlum líklega að sýna alveg tvö ný
lög á Prikinu á morgun. Jói P verður
þarna, ég held að Króli verði líka
og auðvitað Oddur. Síðan er mögu-
leiki á að það mæti leynigestur en
það kemur auðvitað í ljós á morgun
hver það er.“
Tónleikarnir hefjast á Prikinu
klukkan tíu en örugglega er gáfulegt
að mæta fyrr enda rúmar staðurinn
ekki endalausan fjölda.
stefanthor@frettabladid.is
Fyrsta lagið á íslensku
rauk á toppinn
Lagið Ég vil það með Chase og Jóa Pé rauk upp á topp á Spotify list-
anum en þetta var fyrsta lagið sem Chase gerði á íslensku. Chase
mun spila á Prikinu í kvöld þar sem hann ætlar m.a. að taka nýtt efni.
Chase og Oddur voru saman í skóla og ákvaðu að hittast og gera tónlist saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég var í BandaríkJ-
unum á meðan á
þessu stóð og Ég hugsaði
með mÉr „aF hverJu er Ég
ekki á íslandi núna?“
BARDAGI
ALDARINNAR
LAUGARDAGINN
26. ágúst
365.ISSÍMI 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
*miðað við 12 mánaða bindingu
Prikið er Mekka íslenskrar rapptónlistar.
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R64 l í F I ð ∙ F R É t t A B l A ð I ð
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-8
D
E
4
1
D
7
F
-8
C
A
8
1
D
7
F
-8
B
6
C
1
D
7
F
-8
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K