Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 22
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Hlaupist undan ábyrgð
Sú ákvörðun að fjarlægja málverk
af sjómanni á vegg Sjávarútvegs-
hússins hefur vakið hneykslan
og jafnvel reiði manna. Sam-
kvæmt tölvupóstsamskiptum
sem fréttastofa RÚV vísar til
hefur Hjörleifur Guttormsson,
fyrrverandi ráðherra og íbúi
við Vatnsstíg, sótt það fast við
borgaryfirvöld að verkið yrði
fjarlægt. Hjörleifur sagði við Vísi
í gær að hann væri enginn aðili
máls. Hann sagði þó að skipu-
lagslög hefðu verið brotin og
gerði að öðru leyti lítið úr málinu.
Þegar ummæli Hjörleifs eru sett í
samhengi við þá tölvupósta sem
RÚV fjallaði um er ekki annað að
sjá en að ráðherrann fyrrverandi
sé að hlaupast undan ábyrgð
sinni á málinu. Og vonandi hefur
hann ekki hlaupist eins auðveld-
lega undan ábyrgð sinni þegar
hann gegndi trúnaðarstörfum
fyrir land og þjóð.
Fokið í flest skjól
Eins og lesa má í frétt Frétta-
blaðsins í dag hefur Ferðaþjón-
usta bænda nú skipt um nafn og
heitir nú Hey Iceland. Það er rétt
að óska markaðsmönnum sem
stóðu að nafnbreytingunni inni-
lega til hamingju enda er nafnið
skemmtilega tvírætt. Unnendur
íslensks máls mega hins vegar
aldeilis heyja harðari baráttu
enda er fokið í flest skjól þegar
bændur virðast vera farnir að
gefast upp á íslenskunni.
jonhakon@frettabladid.is
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Kr. 1.449.000,-
Z9oo
Ef Bretar, með
sínar ríflega
60 milljónir,
geta komið
upp þeim
búnaði og
innviðum
sem þarf á
rúmum
tuttugu árum,
þá hljótum
við hérna í
fámenninu að
geta það á
talsvert
skemmri
tíma.
Varla flókið
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra hefur gefið út þá stefnu stjórnvalda að Ísland skuli að fullu rafbílavætt árið 2030. Bensín- og dísilbílar skuli vera með öllu horfnir af götunum fyrir þann tíma.Nauðsyn krefur að þessar tegundir bíla
verði teknar úr umferð fyrr en seinna. Þeir menga og
skemma umhverfið og í staðinn eru komnir raun-
hæfir kostir sem fólk virðist kunna að meta. Rafbílar
verða sífellt fullkomnari og algengari sjón á götunum.
Einhverja hefur rekið í rogastans við þessar yfir-
lýsingar umhverfisráðherrans. Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
benti á að hún marki með orðum sínum stefnu sem
gangi lengra en nágrannaþjóðir okkar hafa gert. Það
er rétt. Benda má á að Bretar hafa lýst því yfir að þeir
hyggist banna dísil- og bensínbíla fyrir árið 2040.
Björt vill að við Íslendingar verðum áratug á undan
grönnum okkar á Bretlandseyjum í þessum efnum.
Framkvæmdastjóri FÍB gagnrýnir Björtu sömu-
leiðis og bendir á að það sé hlutverk stjórnvalda að
marka stefnu og útfæra rafbílavæðinguna. Ekki dugi
að slá um sig með digurbarkalegum yfirlýsingum.
Rétt er hjá framkvæmdastjóranum að hugmynd-
irnar eru ekki fullmótaðar og til að þær geti orðið að
veruleika þarf að láta hendur standa fram úr ermum.
Í viðtali við forstjóra Bílaleigu Akureyrar í Fréttablað-
inu í gær kom fram að einungis um 20 bílar í tæplega
5 þúsund bíla flota væru rafbílar. Ástæðan væri sú að
rafbílar drægju enn sem komið er einungis milli 200
til 300 kílómetra í einu, sem ekki dygði við núverandi
aðstæður. Talsvert vantaði á að hleðslustöðvar væru
aðgengilegar eins og þörf krefur, ekki einu sinni við
sjálfan hringveginn. Því væri ljóst að bæta þyrfti inn-
viðina talsvert ef rafbílar ættu að ryðja sér til rúms
fyrir alvöru, og verða raunhæfur kostur fyrir okkur
sjálf og ferðamenn sem hingað rata.
En hvers vegna eiga Íslendingar ekki að setja sér
háleit markmið í þessum efnum?
Við erum að mörgu leyti í kjörstöðu. Nóg er af
rafmagninu og hér er einfalt vegakerfi sem nánast
einskorðast við hringveginn. Landið er strjálbýlt – í
raun að mestu óbyggt – og hefur getið sér orð fyrir að
vera hrein og tær náttúruparadís. Ef Bretar, með sínar
ríflega 60 milljónir, geta komið upp þeim búnaði
og innviðum sem þarf á rúmum tuttugu árum, þá
hljótum við hérna í fámenninu að geta það á talsvert
skemmri tíma.
Yfirlýsingar ráðherrans eiga að skoðast í því ljósi.
Þær bera vott um framtíðarsýn sem rímar við orð-
sporið sem af landinu fer og við viljum viðhalda.
Aðstæður hér á landi eru með þeim hætti að við
ættum að geta brugðist hraðar við en nágrannar
okkar.
Orð eru til alls fyrst. Björt sýnir pólitískt hugrekki
í málinu. Nú er það hennar að standa við stóru orðin,
afla hugmyndum sínum fylgis hjá þjóðinni, bretta
upp ermar og láta hjólin fara að snúast af alvöru. Það
er ekki eftir neinu að bíða.
Rafbílavætt Ísland árið 2030. Hví ekki?
Fréttir berast af því að vogunarsjóðirnir sem keyptu tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka í vor muni ekki nýta sér forkaupsrétt sinn og
eignast meirihluta í bankanum. Þetta eru stórtíðindi
ef rétt reynist og jákvæð þróun en áfram ríkir þó
óvissa um framhaldið. Fjármálaráðherra þjóðarinnar
fagnaði innkomu vogunarsjóðanna á sínum tíma en
ljóst er að það var enn eitt illa ígrundað frumhlaupið.
Aðstæður á Íslandi eru einstakar, þar sem eignarhald
Ríkissjóðs Íslands á fjármálafyrirtækjum er með því
umfangsmesta meðal ríkja í Evrópu og mikið eigið fé
er bundið í bönkunum eða um 500 milljarðar króna.
Tímann sem nú fer í hönd verður að nýta vel til að
móta framtíðarstefnu. Fjármálakerfi hverrar þjóðar
skiptir miklu máli, þar sem það miðlar fjármagni á
milli aðila og er mikið hreyfiafl vegna þessa. Fjármála-
kerfið þarf að vera hagkvæmt og þjóna landsmönnum
öllum. Eignarhald verður að vera gagnsætt til að það
skapist traust. Miklu máli skiptir að eigendur hafi
góða bankareynslu og séu traustir fjárhagslegir bak-
hjarlar.
Heildarstefnumótun verður að eiga sér stað og
þingið þarf að koma að þessari vinnu. Meta á hversu
stór eignarhlutur ríkissjóðs á að vera til skemmri og
lengri tíma litið. Skoða þarf gaumgæfilega hvaða form
eignarhalds hentar best hagsmunum hagkerfisins.
Einnig þarf að kanna fýsileika erlends eignarhalds og
líta sérstaklega til Norðurlandanna. Að auki verða
stjórnvöld að hafa það hugfast að miklar tækni-
breytingar eru að eiga sér stað í fjármálaþjónustu. Ef
stjórnvöld halda áfram að vera í fríi frá þessari vinnu,
þá getur slíkt kæruleysi rýrt verðgildi eignarhlutar
ríkisins. Staða ríkisstjórnarinnar er veik í dag, þar sem
engin heildarstefnumótun á sér stað. Alls staðar þar
sem stjórnleysi ríkir myndast tómarúm sem verður
á endanum fyllt og þá ekki endilega með hagsmuni
almennings að leiðarljósi. Ástæðan fyrir öllu þessu
stefnuleysi er einföld. Skortur á framtíðarsýn og kjarki
til að taka ákvarðanir. Þær fréttir að vogunarsjóðir
ætli ekki að nýta forkaupsréttinn ættu vonandi að
vekja ráðamenn þjóðarinnar af þyrnirósarsvefni.
Láta reka á reiðanum
Ástæðan fyrir
öllu þessu
stefnuleysi er
einföld.
Skortur á
framtíðarsýn
og kjarki til
að taka
ákvarðanir.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
alþingismaður
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R22 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð
SKOÐUN
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-9
C
B
4
1
D
7
F
-9
B
7
8
1
D
7
F
-9
A
3
C
1
D
7
F
-9
9
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K