Fréttablaðið - 17.08.2017, Blaðsíða 12
Superb er stærri, rúmbetri og útbúinn þægindamöguleikum sem gera aksturinn draumi líkastan. ŠKODA Superb kemur með fimm
ára ábyrgð og er nú tilkomumeiri og hlaðinn meiri tilfinningu en nokkru sinni fyrr. Komdu í reynsluakstur og gefðu gleðinni lausan tauminn.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
TILFINNINGIN HEFUR
SJALDAN VERIÐ
TILKOMUMEIRI
ŠKODA SUPERB. STÆRRI, RÚMBETRI OG ÞÆGILEGRI.
Verð frá aðeins 4.440.000 kr.
Bandaríkin Háttsettir Repúblikanar
í Bandaríkjunum brugðust foxillir við
því í gær að Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, ítrekaði á þriðjudag
að jafnt öfgaþjóðernissinnar og þeir
sem mótmæltu þeim bæru ábyrgð á
ofbeldinu í Charlottesville í Virginíu í
lok síðustu viku. Sagði Paul Ryan, for-
seti fulltrúadeildarinnar, deginum
ljósara að öfgaþjóðernishyggja væri
siðferðislega röng og óboðleg.
„Herra forseti, þú getur ekki
leyft öfgaþjóðernissinnum að eiga
bara hluta af sökinni. Þeir styðja
hugmyndafræði sem hefur kostað
þjóðina og heiminn afar miklar
þjáningar,“ sagði Marco Rubio, öld-
ungadeildarþingmaður Repúblikana,
í gær.
John McCain öldungadeildarþing-
maður tók í sama streng. „Það er ekki
hægt að setja rasista og Bandaríkja-
menn sem standa gegn hatri á sama
stall,“ tísti McCain í gær.
Trump sagði á þriðjudaginn að
öfgamennirnir, oft kallaðir „alt-right“
eða hitt hægrið, bæru jafn mikla
ábyrgð og þeir sem Trump vildi kalla
hitt vinstrið. Á mánudag hafði Trump
hins vegar sagt með beinum hætti að
boðskapur hins hægrisins væri ekki
í takt við bandarísk gildi, kynþátta-
hatur væri af hinu illa.
Átökin brutust út eftir að hitt
hægrið ákvað að mótmæla því að
stytta af hershöfðingja Suðurríkjanna
frá því í þrælastríðinu, Robert E. Lee,
yrði tekin niður. Fjölmargir reiddust
mótmælendum hins hægrisins sem
gengu um götur Charlottesville og
heilsuðu margir hverjir að nasistasið.
Trump sagði hins vegar á þriðjudag
að það væri allt eins hægt að taka
niður styttur af forsetum á borð
við Thomas Jefferson, sem hefði átt
þræla.
Urðu ummæli forsetans ekki
til þess að brúa þá gjá sem hefur
myndast á milli forsetans og rótgró-
inna flokksmanna. Gjá sem tók að
myndast í raun um leið og Donald
Trump tilkynnti um forsetafram-
boð sitt í fyrra og sagði mexíkóska
ríkið senda nauðgara, morðingja og
aðra glæpamenn til Bandaríkjanna. Í
kjölfarið reiddust Repúblikanar mjög
þegar hann sagði að McCain, sem var
tekinn til fanga í Víetnamstríðinu,
væri engin stríðshetja. Sem og þegar
Trump hótaði því að tala illa um
eiginkonu mótframbjóðanda síns
og öldungadeildarþingmannsins
Teds Cruz, þegar upptöku af Trump
að tala um að grípa í klof kvenna var
lekið, þegar hann rak alríkislögreglu-
stjórann James Comey, þegar hann
tilkynnti fyrst um að banna skyldi
komu allra múslima til Bandaríkj-
anna. Þessi listi er þó ekki tæmandi.
En Repúblikanar hafa ekki bara
reiðst Trump, forsetinn hefur sjálfur
verið harðorður um báða þingflokka
Repúblikana. Hefur hann meðal
annars gagnrýnt þá harðlega fyrir
að samþykkja ekki ný sjúkratrygg-
ingalög.
Ósætti háttsettra Repúblikana og
forsetans er því ekki nýtt af nálinni
og virðist lítið hafa verið gert til að
græða sárin á samskiptum Trumps
og þingmanna.
thorgnyr@frettabladid.is
Lítið sem ekkert gert til að græða sárin
Gjáin á milli Bandaríkjaforseta og samflokksmanna hans heldur áfram að breikka. Repúblikanar reiðast forsetanum fyrir að segja að
öfgaþjóðernissinnar beri ekki fulla ábyrgð á óeirðunum í Charlottesville. Forsetinn og þingmenn hafa lengi eldað grátt silfur saman.
Donald Trump
og Paul Ryan eru
ekki alltaf sáttir
hvor við annan.
NoRDicPhoTos/
AFP
Herra forseti, þú
getur ekki leyft
öfgaþjóðernissinnum að eiga
bara hluta af sökinni. Þeir
styðja hugmyndafræði sem
hefur kostað þjóðina og
heiminn afar
miklar þján-
ingar.
Marco Rubio,
öldungadeildar-
þingmaður
1 7 . á g ú s t 2 0 1 7 F i M M t U d a g U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
7
F
-8
D
E
4
1
D
7
F
-8
C
A
8
1
D
7
F
-8
B
6
C
1
D
7
F
-8
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K