Fréttablaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 18
Elskuleg frænka okkar,
Guðný Gísladóttir
frá Vesturkoti,
Hvaleyri við Hafnarfjörð,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann
12. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 25. september kl. 13.
Bræðrabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, systur, ömmu
og langömmu,
Helgu Sigfúsdóttur
Furulundi 31, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri og Heimahlynningar á Akureyri.
Rúnar Heiðar Sigmundsson
Gunnar Örn Rúnarsson Bryndís Valgarðsdóttir
Sigrún Rúnarsdóttir Magnús Magnússon
Sigmundur Ernir Rúnarsson Elín Sveinsdóttir
Guðrún Sigfríð Rúnarsdóttir Sigfús Karlsson
Jón Gísli Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvar Hallgrímsson
fiskifræðingur,
er látinn.
Helga Guðmundsdóttir
Brynhildur Ingvarsdóttir
Ósk Ingvarsdóttir
Elísabet V. Ingvarsdóttir
tengdasynir, barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
Jón Lárus Hjartarson
til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Mörk, Suðurlandsbraut 66,
áður Ásvallagötu 57,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
þriðjudaginn 12. ágúst. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á hjúkrunarheimilið Mörk, Suðurlandsbraut 66. Sérstakar
þakkir fyrir alúðlega umönnun til starfsfólks á fjórðu hæð
á hjúkrunarheimilinu Mörk.
Hjörtur Leonard Jónsson Sunna Sveins
Sveinn Lárus Hjartarson
Ólafur Arnar Hjartarson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur vináttu og hlýju við andlát
og útför
Högna Skaftasonar
skipstjóra,
Hlíðargötu 18, Fáskrúðsfirði.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingeborg Eide Hansdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Þórs Jónssonar
Háaleitisbraut 34.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir umönnun og kærleika.
Guð veri með ykkur öllum.
Helga Karólína Magnúsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Björn K. Magnússon
Berglind Jónsdóttir Kristinn Guðnason
Þórey Jónsdóttir Ásgeir Ragnarsson
Jón Þór Jónsson Hanne Signe Skoge
afa- og langafabörn.
Merkisatburðir
1206 Guðmundur Arason biskup bannfærir Kolbein
Tumason.
1565 Magnús Jónsson prúði gengur að eiga Ragnheiði
Eggertsdóttur og flytur að Ögri við Ísafjarðardjúp.
1609 Allir kristnir Márar eru reknir frá Spáni til Marokkó.
Allt að þriðjungur íbúa suðurhéraða Spánar hvarf á brott.
1704 Sæmundur Þórarinsson, bóndi í Árbæ, finnst myrtur
í Elliðaám. Eiginkona hans og mótbýlismaður þeirra voru
dæmd til lífláts fyrir morðið.
1930 Ferðafélag Íslands tekur fyrsta sæluhús sitt í notkun.
Húsið er í Hvítárnesi upp undir Langjökli.
1957 Árbæjar-
safn er opin-
berlega opnað
almenningi með
viðhöfn.
1973 Mennta-
skólinn í Kópa-
vogi er settur í
fyrsta skipti.
1975 Sara Jane
Moore reynir að
myrða Gerald
Ford Bandaríkja-
forseta í San
Francisco.
1980 Írak ræðst á
Íran og byrjar þar
með átta ára stríð.
1985 Plaza-samningurinn um lækkun Bandaríkjadals er
undirritaður af fulltrúum fimm ríkja.
1992 Fyrstu Ólympíuleikum andlega fatlaðra lýkur í
Madrid. Íslendingar voru sigursælir í sundi og fékk íslenskt
sundfólk alls 21 verðlaun á leikunum, þar af 10 gull. Sigrún
Huld Hrafnsdóttir fékk fleiri verðlaun á leikunum en nokkur
annar keppandi.
2008 Al Thani-málið: Félag í eigu Mohammads Bin Khalifa
Al-Thani er sagt hafa keypt 5,01% hlut í Kaupþingi. Jólastress 2017 verður spreng-hlægileg blanda af jólatón-leikum og gamanmálum en þeir verða 9. desember. Tilurð þess-arar jólaskemmtunar er að ára-
tugur er síðan Daníel Geir Moritz
og Jólabandið unnu Jólalaga-
keppni með laginu Gjöfin mín ert þú.
Hópurinn lék það svo eftir tveimur
árum síðar með laginu Jólastress. Til að
gera kvöldið sem veglegast hefur Daníel
smalað saman góðum gestum og verða
flutt mörg af vinsælustu jólalögum
landans.
Daníel stendur á miklum tímamótum
en hann og unnusta hans, Sigurleif
Kristmannsdóttir, settu nýlega upp
hringana og eiga von á sínu fyrsta barni.
Hann er kennari og því er nafnið engin
tilviljun. Jólastressið 2017. „Hún á von á
sér 7. október, rétt handan við hornið.
Þetta verður ansi viðburðaríkt haust,
trúlega það viðburðaríkasta í lífi mínu
án vafa,“ segir Daníel.
Hann segir að þetta tónleikahald sé
gamall draumur sem nú sé að rætast.
„Hann er eiginlega tíu ára gamall. Mér
fannst það miður að við héldum ekki
tónleika á sínum tíma því þessi lög, sem
við sömdum, voru að fá ágæta spilun
og myndbönd í sýningu en það vantaði
alltaf að halda tónleika,“ segir hann.
Hann bendir á að þrátt fyrir
afslappað andrúmsloft þar sem
meira verður lagt upp úr hlátri og
gleði þá verði enginn afsláttur gefinn
af tónlistaratriðunum. „Þetta eru
metnaðarfullir tónleikar þó meira
sé lagt upp úr fjöri en hátíðleika.
Ég blanda saman alls konar pælingum,
jólagestum Björgvins, uppistandi og
vitleysu. Gestir koma líka í sófaspjall í
anda Hemma Gunn. Það snjóar ekki úr
loftinu og enginn krúttlegur barnakór
mætir en hláturtaugarnar verða kitl-
aðar.“
Þetta verður í fyrsta skipti í þrjú ár,
nánast upp á dag þar sem Daníel stend-
ur uppi á sviði og sprellar fyrir fólk en
eftir að hann einbeitti sér að kennslunni
fóru míkrófónninn og grínið upp í hillu.
Hann segist vera mikið jólabarn.
Svo mikið að hann hlusti á jólalög
jafnvel allt árið um kring. „Þegar
maður er ekki í hljómsveit þá þarf
maður að finna tilgang til að semja.
Ég samdi fyrir hátíðarnar Franska
daga og Neistaflug og það hentar
vel fyrir glamrara að semja jólalög.
Ég er mikið jólabarn og hef aldrei vaxið
upp úr því. Ég hlusta mikið á jólalög allt
árið. Þetta er einhver tónlist sem ég hef
og hef alltaf haft.“ benediktboas@365.is
Barn, trúlofun og tónleikar
Daníel Geir Mortiz lætur gamlan draum rætast og ætlar að halda jólatónleika í tilefni
þess að það eru tíu ár síðan hann vann jólalagakeppni. Hann verður nýorðinn faðir
þegar tónleikarnir fara fram og setti upp trúlofunarhring á afmælisdaginn.
Daníel Geir Moritz verður í Tjarnabíói ásamt góðum gestum eins og Hreimi, Einari Ágústi, Karitas Hörpu, Dóra Gylfa og mörgum
fleiri. Þetta verður í fyrsta sinn í þrjú ár sem hann stígur á svið. FréTTablaðið/anTon brinK
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-6
2
F
4
1
D
D
0
-6
1
B
8
1
D
D
0
-6
0
7
C
1
D
D
0
-5
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K