Fréttablaðið - 22.09.2017, Blaðsíða 22
Það er eitthvað æðislegt við að þjóta áfram á racer. Ég hef lengi notað hjól til að fara á milli
staða frekar en bílinn en síðasta vor
fór ég að hjóla sem sport og skellti
mér á racer-hjól hjá Emil í Kríunni.
Nú á racerinn hug minn allan og ég
hef losað mig við gamla fjallahjólið.
Ég gæti vel hugsað mér að eiga fimm
hjól en nægjusemi er dyggð,“ segir
Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönn-
uður og jógakennari.
Milli þess sem hún geysist um
hjólastígana stundar hún hugleiðslu
og jóga. Hraðinn og útrásin sem
einkenna hjólreiðarnar fari merki-
lega vel með hugarrónni sem fylgi
jóganu.
„Jógað veitir styrk, lipurð, fókus
og hugarró og hjólið veitir úthald
og útrás – eiginleikar hvors fyrir sig
nýtast í hinu,“ segir Sóley.
„Það er langt síðan ég byrjaði að
stunda jóga af og til en ég féll virki-
lega fyrir því árið 2011 þegar ég fór
í Kundalini-jóga hjá Guðrúnu Dars-
han í Andartaki. Jóga þýðir „eining“
og snýst um að tengja huga, líkama
og sál og sú nálgun heillar mig og
nærir. Þetta er ekki bara líkamsrækt
heldur lífsrækt,“ segir hún og lýsir
morgunrútínunni á heimilinu.
„Ég vakna sirka korter fyrir sex,
geri jógateygjurútínu í rúminu áður
en ég fer fram úr, bursta og hreinsa
tunguna – drekk ½-1 lítra af volgu
vatni, hreinsa nefið með volgu vatni
og geri svo jóga til rúmlega hálf-
átta. Fer þá í kalda sturtu og svo í
morgunmat. Ég er svo heppin að
maðurinn minn er líka jógafrík svo
við gerum þetta saman og ýtum á
hvort annað. Við fórum til Ind-
lands í mars á dásamlegan stað þar
sem Ayurveda-meðferð og jóga er
stundað. Þar byrjaði morgunninn
kl. 5.30 með Pooja helgiathöfn og
svo jógatíma kl. 6. Þegar við komum
heim ákváðum við að halda þessari
rútínu og það hefur tekist nokkuð
vel hingað til. Stóra áskorunin er að
fara að sofa á kvöldin þar sem við
erum bæði B-týpur,“ segir Sóley.
„Ég kláraði kennaranámið hjá
Guðrúnu Darshan í Andartaki árið
2014 og hef kennt þar af og til. Í
vetur mun ég sjá um hádegistímana
á þriðjudögum og fimmtudögum í
Kramhúsinu, sem er einn af mínum
uppáhaldsstöðum. Þar er svo litríkt
og fallegt og mjög góður andi. Það er
kjörið að nota hádegið í endurnær-
ingu,“ segir Sóley. Sjálf sitji hún fyrir
framan tölvu stóran hluta dags og
finni stundum fyrir því.
„Leiðin til að halda bakverkjum
í skefjum og forminu góðu er
hreyfing. Það passar mér vel að
blanda saman hjólreiðum, sundi
og hlaupum og svo fer ég af og til í
fjallgöngur,“ segir hún. Þá passi hún
Stundar hugleiðslu og jóga
en fær útrás á racernum
Sóley Stefánsdóttir stundar jóga og hugleiðslu milli þess sem hún þeysist um á racer.
Hún segir hugarró jógafræðanna fara vel með útrásinni sem hún fær á hjólinu.
einnig vel upp á mataræðið og vandi
morgunmatinn sérstaklega.
„Ég er svo „heppin“ að að glíma
við alls konar óþolsviðbrögð svo það
er langt síðan ég þurfti að hreinsa
mataræðið og taka út sykur, ger,
hveiti og unnar matvörur að mestu.
Uppáhaldsgrauturinn minn núna
er soðinn úr jafnri blöndu af hirsi-,
kínóa-, bókhveiti- og haframjöli,
tveimur döðlum, smá bút af 100%
súkkulaði og smá Himal ajasalti. Oft
set ég eplabita út í líka. Best þegar til
er heimalöguð möndlumjólk út á. Ég
er upptekin af hollustu og geri mitt
besta til að borða gott fæði. Ég er líka
upptekin af því að matarframleiðsla
fari vel með jörðina,“ segir Sóley.
Freistingin? „Gott rauðvínsglas.“
Sóley Stefánsdóttir jógakennari fær útrás á racer-hjóli. mynd/Stefán
„Ég gæti vel hugsað mér að eiga fimm hjól en nægjusemi er dyggð.“
Jógað veitir styrk,
lipurð, fókus og
hugarró og hjólið veitir
úthald og útrás – eigin-
leikar hvors fyrir sig
nýtast í hinu.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
4 KynnInGARBLAÐ fÓLK 2 2 . S e p t e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
0
-4
A
4
4
1
D
D
0
-4
9
0
8
1
D
D
0
-4
7
C
C
1
D
D
0
-4
6
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K