Fréttablaðið - 25.09.2017, Side 8

Fréttablaðið - 25.09.2017, Side 8
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is High Tech rafgeymar. Er jeppinn tilbúinn í ferðalagið? 95 Ah, 800 Amper. Endurhlaðast allt að 50% hraðar (Carbon boost). Nýjar blýgrindur (3DX) = lengri ending. Alveg lokaðir og viðhaldsfríir. Mikið kaldræsiþol, örugg ræsing í miklum kulda. Góðir fyrir jeppa með miklum aukarafbúnaði. Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta. Í ljósi þess hversu útbreidd netnotkun er á Íslandi og hversu fljótir Íslendingar eru að tileinka sér tækninýjungar er með nokkrum ólíkindum að hugbúnaðarfyrirtæki eins og Uber og Lyft sem gera fólki kleift að ná sér í leigubíl á einfaldan hátt gegnum snjallsímann hafi ekki hafið starf- semi hér á landi. Reykjavík er eina höfuðborgin á Norðurlöndunum þar sem Uber er ekki starfandi. Á Íslandi fá þeir einir leyfi til leigubílaaksturs sem uppfylla skilyrði laga um leigubifreiðar og reglugerðar um sama efni þar sem meðal annars er kveðið á um hámarksfjölda leigubíla í stærstu sveitarfélögunum. Leigubílum á Íslandi hefur fjölgað á hraða snigilsins og fjölgunin hefur ekki verið í takti við þarfir sam- félagsins. Á sama tíma og ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fjölgaði úr rúmlega 470 þúsund árið 2008 í rúmlega 1,2 milljónir árið 2015 fjölgaði virkum leigubílaleyfum úr 537 í 547. Á meðan fjöldi ferðamanna næstum þrefaldaðist fjölgaði leigubílum um tíu. Á álagstímum kemur bersýnilega í ljós hversu mikill skortur er á leigubílum en á samfélagsmiðlum hafa birst myndir af löngum biðröðum fólks sem bíður eftir leigubíl í miðbæ Reykjavíkur. Á sama tíma og leigubílum fjölgar ekkert blómstrar svört atvinnustarfsemi á internetinu þar sem fólk bæði óskar eftir bílum og býður þjónustu gegn greiðslu. Í grúppunni Skutlarar á Facebook eru núna rúmlega 37 þúsund manns. Ekkert eftirlit er með þessari starfsemi, engir skattar eru greiddir af keyptri þjónustu og ekkert gagnsæi. Eina eðlilega skrefið til að koma þessari starf- semi upp á yfirborðið, tryggja gagnsæi og öryggi þeirra sem nýta sér skutlið er að opna á þjónustu Uber og Lyft hér á landi. Með Uber og Lyft nálgast notandinn þjónustuna í gegnum sérstakt app í símanum.og getur valið hvort hann deilir bíl með öðrum og greiðir lægra verð eða ferðast einn. Greitt er fyrir þjónustuna gegnum appið sjálft og í lok ferðar fær notandinn tölvupóst með þeirri leið sem ekin var á korti ásamt upplýsingum um greiðsluna. Gagnsæið er fullkomið og greiddir eru skattar og gjöld af keyptri þjónustu. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur þegar gert athuga- semdir við norska löggjöf um leigubíla sem er keimlík íslensku lögunum. Norðmenn hafa fjöldatakmark- anir á útgefnum leyfum til leigubílaaksturs rétt eins og Íslendingar. ESA hefur skorað á norsk stjórnvöld að breyta löggjöfinni ella verði höfðað mál á hendur norska ríkinu fyrir EFTA-dómstólnum. Það er væntan- lega bara tímaspursmál hvenær ESA gerir athuga- semdir við íslensku löggjöfina ef það hefur ekki þegar gerst. Fyrir stjórnarslit ákvað Jón Gunnarsson samgöngu- ráðherra að fela starfshóp að skoða fjölgun leyfa til leigubílaaksturs og möguleika þess að opna á starfsemi fyrirtækja eins og Uber og Lyft. Gott væri ef starfs- hópurinn lyki sinni vinnu sem fyrst og ráðherrann eða eftirmaður hans tæki af skarið og tryggði Íslendingum sömu lífsgæði og þægindi og þeir búa við í útlöndum. Löglegt skutl Á sama tíma og leigubílum fjölgar ekkert blómstrar svört atvinnu- starfsemi á internetinu þar sem fólk bæði óskar eftir bílum og býður þjón- ustu gegn greiðslu. Það slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi og það eru kosningar fram undan. Mörg góð mál eru komin í bið vegna stöðunnar og þar er af ýmsu að taka. Ég gæti notað plássið í að kynna ýmis mikilvæg mál sem ég hafði persónulega á prjónunum eða flokkur- inn minn, Viðreisn. Mál á borð við skilgreiningu á nauðgun út frá samþykki, rannsókn á aðdraganda að útgáfu á starfsleyfi til kísilverksmiðju í Helguvík, þingsályktun um tryggingu gæða, hagkvæmni og skil- virkni meiriháttar opinberra fjárfestinga, umræðu um sjálfstæði fjölmiðla o.fl. En ég ætla að ræða um þverpólitísk mál sem snerta framtíð og velferð ákveðins hóps fólks. Fólks sem á annað og betra skilið af okkur stjórnmálamönnum en að verða einhver afgangsstærð í hita leiksins. Þar á ég í fyrsta lagi við mál sem varðar mikilvæga og margsam- þykkta þjónustubót fyrir fatlað fólk. Svokallaða not- endastýrða persónubundna aðstoð (NPA) sem skiptir sköpum fyrir það fólk sem nýtur slíkrar þjónustu. Annað mál varðar breytingar á útlendingalögum til að bæta stöðu flóttabarna á Íslandi. Undanfarið hafa þingmenn, þvert á flokka, lagt mikla vinnu í að koma þessum tveimur málum í höfn. En nú eru blikur á lofti. Síðustu daga hafa formenn allra flokka á þingi fundað nær daglega bak við luktar dyr til að freista þess að ná samkomulagi um tiltekin mál sem brýnt er að afgreiða fyrir kosningar. Þeirra á meðal eru breytingar á hegningarlögum hvað varðar margum- rædda uppreist æru. Þetta er eins og alþjóð veit löngu tímabært. Ég set hins vegar spurningamerki við að tíma formannanna sé best varið, dag eftir dag, í að ræða niðurstöðu þar sem er í takt við það sem allir flokkar vilja. Umræðan virðist hafa tekið full langan tíma á kostnað einstaklinga sem eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að nýtt þing verði kosið með úrlausn sinna mála. Og fyrir Mary og Haniye verður það einfaldlega of seint. Ef formenn flokkanna ná ekki að afgreiða þetta þá þarf að útskýra tæpitungulaust hvað veldur. Það þarf að opna bakherbergið og lofta út. Í lokuðu bakherbergi Hanna Katrín Friðriksson þingflokksfor- maður Viðreisnar Umræðan virðist hafa tekið full langan tíma á kostnað einstaklinga sem eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að nýtt þing verði kosið með úrlausn sinna mála. Áður en hani galar „Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér,“ stendur meðal annars í Markúsarguðspjalli. Beindi Kristur sjálfur þeim orðum til lærisveins síns, Péturs. Sá munur er á Pétri og Páli Magnússyni að sá fyrrnefndi fylgdi frelsaranum af fúsum og frjálsum vilja. Sá síðarnefndi virðist hafa fylgt ríkisstjórninni af skyldurækni. Frá því að ríkisstjórnin sprakk og þar til að Páll afneitaði fjár­ lagafrumvarpinu galaði haninn oftar en tvisvar. Þó vika sé langur tími í pólitík og strax teygjan­ legt hugtak þá verður þetta að teljast nokkuð skammur tími. Haldi hann áfram á þessari braut mun fréttahaukurinn fyrrverandi afneita ríkisstjórnarsamstarfinu áður en kosið verður. Bjargvætturinn Áhugamenn um áhugaverðar kosningar fögnuðu ákaft þegar þingmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kunngjörði þá ákvörðun sína að slíta sig frá Framsóknarflokknum. Þó þetta sé ekki í fyrsta skipti sem for­ sætis ráðherrann fyrrverandi gengur úr einhverju þá kom ákvörðunin á óvart sökum tíma­ setningarinnar. Ljóst má vera að tæpast er Sigmundur að gera að gamni sínu. Sennilega lúrir hann á hugmynd sem mun yfirtaka kosn­ ingabaráttuna og forðar þar með þjóðinni frá sömu kosningum og í fyrra. joli@365.is 2 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r8 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð SKOÐUN 2 5 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D 3 -7 0 5 0 1 D D 3 -6 F 1 4 1 D D 3 -6 D D 8 1 D D 3 -6 C 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.