Fréttablaðið - 25.09.2017, Page 30
Kominn úr frystikistunni
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton unnu afar kærkominn sigur á Bournemouth um helgina. Hetja
Everton var senegalski framherjinn Oumar Niasse sem virtist ekki eiga sér neina framtíð hjá félaginu.
fótbolti Eftir fjóra deildarleiki án
sigurs og þrjá deildarleiki án marks
án marks náði Everton í þrjú gríðar-
lega mikilvæg stig gegn Bournemo-
uth á Goodison Park á laugardag.
Hetja Everton kom úr óvæntri
átt, í raun úr frystikistunni. Oumar
Niasse kom inn á sem varamaður
fyrir Wayne Rooney í upphafi
seinni hálfleiks og á 77. mínútu
jafnaði hann metin í 1-1 eftir
sendingu frá öðrum varamanni,
Tom Davies. Fimm mínútum síðar
skoraði Niasse sigurmark Everton
með skalla af stuttu færi. Ótrúleg
innkoma hjá Senegalanum og þrátt
fyrir að hafa aðeins spilað tvo leiki
er hann annar af tveimur marka-
hæstu leikmönnum Everton á tíma-
bilinu.
Það er kaldhæðni örlaganna að
Niasse sé að bjarga andliti Ronalds
Koeman sem vildi fyrir ekki svo
löngu ekkert með hann hafa.
„Staðan er allt önnur eftir sigur-
inn. Það eru lykilaugnablik á tíma-
bili og þetta er stór sigur sem gefur
öllum byr undir báða vængi. Ég
vil hrósa leikmönnunum, Niasse
og Davies. Þeir gerðu vel eftir erf-
iðan tíma,“ sagði Koeman eftir
leikinn. Hollendingurinn virkaði
hálf skömmustulegur í viðtölum
eftir leikinn og var ekki tilbúinn að
kvitta undir að Niasse væri kominn
til að vera í leikmannahópi Everton.
Bítlaborgarliðið keypti Niasse frá
Lokomotiv Moskvu á 13,5 milljónir
punda í byrjun síðasta árs. Senegal-
inn spilaði aðeins fimm leiki á fyrsta
tímabilinu og staða hans þrengdist
enn frekar þegar Koeman tók við.
Leikmaður helgarinnar
Álvaro Morata skoraði þrennu þeg-
ar Chelsea vann öruggan 0-4 úti-
sigur á Stoke City á laugardaginn.
Það var spænsk stemmning á
bet365 vellinum því landarnir
Morata og Pedro skoruðu öll
fjögur mörk Chelsea sem
er í 3. sæti ensku úrvals-
deildarinnar.
Morata hefur ekki þurft
neinn aðlögunartíma
á Englandi. Í sex deildar-
leikjum með Chelsea hefur spænski
landsliðsframherjinn skorað sex mörk
og gefið tvær stoðsendingar.
Morata var keyptur frá Real Madrid
til að fylla skarð Diegos Costa sem er
farinn aftur til Atlético Madrid. Þeir eru
gjörólíkir leikmenn en Morata hefur
sýnt að hann er enginn eftirbátur hins
geðstirða Costa. - iþs
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Everton vann afar
kærkominn og
mikilvægan sigur
á Bournemouth á
Goodison Park. Everton
var komið í öngstræti og staða
Ronalds Koeman orðin ótrygg.
Senegalski framherjinn Oumar
Niasse skoraði bæði mörkin og
kom Everton til bjargar.
Hvað kom á óvart?
Í fyrstu tveimur
heimaleikjum sínum
á tímabilinu vann
Stoke Arsenal og gerði
jafntefli við Manchester United.
Strákarnir hans Marks Hughes
fengu hins vegar á baukinn gegn
Englandsmeisturum Chelsea á
laugardaginn. Stoke er aðeins
með fimm stig eftir fyrstu sex
umferðirnar.
Mestu vonbrigðin
Það var kannski ekki
líklegt að Crystal
Palace fengi mikið
út úr leiknum gegn
Manchester City en
5-0 tap var samt áfall. Palace er í
skelfilegri stöðu; án stiga og ekki
enn búið að skora mark. Palace er
eina liðið í bestu fimm deildum
Evrópu sem á enn eftir að skora á
tímabilinu.
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 6. umferðar 2017-18
West Ham - Tottenham 2-3
0-1 Harry Kane (34.), 0-2 Kane (38.), 0-3
Christian Eriksen (60.), 1-3 Chicharito (65.),
2-3 Cheikhou Kouyaté (87.).
Rautt spjald: Serge Aurier, Tottenham (70.).
S’ton - Man. Utd. 0-1
0-1 Romelu Lukaku (20.).
Man. City - C. Palace 5-0
1-0 Leroy Sané (44.), 2-0 Raheem Sterling
(51.), 3-0 Sterling (59.), 4-0 Sergio Agüero
(79.), 5-0 Fabian Delph (89.).
Swansea - Watford 1-2
0-1 Andre Gray (13.), 1-1 Tammy Abraham
(56.), 1-2 Richarlison (90.).
Stoke - Chelsea 0-4
0-1 Álvaro Morata (2.), 0-2 Pedro (30.), 0-3
Morata (77.), 0-4 Morata (82.).
Everton - B’mouth 2-1
0-1 Joshua King (49.), 1-1 Oumar Niasse
(77.), 2-1 Niasse (82.).
Burnley - Huddersfield 0-0
Leicester - Liverpool 2-3
0-1 Mohamed Salah (15.), 0-2 Philippe
Coutinho (23.), 1-2 Shinji Okazaki (45+3.),
1-3 Jordan Henderson (68.), 2-3 Jamie Vardy
(69.).
Brighton - Newcastle 1-0
1-0 Tomer Hamed (51.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man. City 6 5 1 0 21-2 16
Man. Utd 6 5 1 0 17-2 16
Chelsea 6 4 1 1 12-5 13
Tottenham 6 3 2 1 10-5 11
Liverpool 6 3 2 1 12-11 11
Watford 6 3 2 1 9-10 11
Huddersf. 6 2 3 1 5-3 9
Burnley 6 2 3 1 6-5 9
Newcastle 6 3 0 3 6-5 9
West Brom 5 2 2 1 4-4 8
S’oton 6 2 2 2 4-5 8
Arsenal 5 2 1 2 7-8 7
Brighton 6 2 1 3 5-7 7
Everton 6 2 1 3 4-11 7
Swansea 6 1 2 3 3-7 5
Stoke 6 1 2 3 5-10 5
Leicester 6 1 1 4 9-12 4
West Ham 6 1 1 4 6-13 4
Bournem. 6 1 0 5 4-11 3
Cry. Palace 6 0 0 6 0-13 0
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn þegar
Everton vann langþráðan
sigur á Bournemouth. Þetta var í
fyrsta sinn sem Gylfi fagnar sigri í
búningi Everton.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Var á sínum stað í byrj-
unarliði Cardiff sem vann
1-2 útisigur á Sunderland. Cardiff er
í 3. sæti ensku B-deildarinnar með
20 stig, jafn mörg og liðin fyrir ofan.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Tryggði Reading stig gegn
Hull eftir að hafa komið
inn á sem varamaður. Jafnaði metin
þremur mínútum fyrir leikslok.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Sat allan tímann á vara-
mannabekk Aston Villa
sem bar sigurorð af Nottingham
Forest, 2-1, á Villa Park.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Kom ekkert við sögu
í markalausu jafntefli
Bristol City og Norwich.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Kom inn á sem varamaður
á 77. mínútu í markalausu
jafntefli við Huddersfield
á heimavelli.
Óvænta hetjan Oumar Niasse fagnar sigurmarki sínu gegn Bournemouth. Senegalinn skoraði bæði mörk Everton í leiknum. FRÉTTABLAðið/NORDiCHPOTOS/GETTy
Eftir að hafa spilað einn hálfleik
á undirbúningstímabilinu tjáði
Koeman Niasse að hann hefði ekki
not fyrir hann. Niasse fékk ekki
treyjunúmer, var skipað að æfa
með varaliðinu og var ekki einu
sinni aðgang að skáp í búningsklefa
þess. Niasse fór á láni til Hull City
um mitt síðasta tímabil og gerði
ágæta hluti.
Sem kunnugt er byrjaði Everton
þetta tímabil skelfilega og virtist fyr-
irmunað að skora. Koeman keypti
fullt af leikmönnum í sumar en fyllti
ekki skarðið sem Romelu Lukaku
skildi eftir sig.
Koeman var orðinn það örvænt-
ingarfullur að hann kyngdi stolt-
inu og hóaði í Niasse sem þakkaði
traustið með tveimur mörkum í 3-0
sigri á Sunderland í deildabikarnum
á miðvikudaginn.
Í stöðunni 0-1 í leiknum gegn
Bournemouth veðjaði Koeman
aftur á Niasse sem dró Everton-
liðið að landi. Það skyldi aldrei vera
að maðurinn sem var jaðarsettur og
niðurlægður af Koeman bjargi starfi
hans og keyri tímabilið hjá Everton
í gang. ingvithor@365.is
2 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r14 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
3
-5
2
B
0
1
D
D
3
-5
1
7
4
1
D
D
3
-5
0
3
8
1
D
D
3
-4
E
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K