Fréttablaðið - 25.09.2017, Side 32
Merkisatburðir
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðný Sigurgísladóttir
lést 15. september sl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
27. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Sunnuhlíðarsamtökin.
Ástþór Gíslason Erla Gunnarsdóttir
Hrafnkell S. Gíslason Ragnheiður D. Gísladóttir
Hólmfríður Gísladóttir Kristín Erla Boland
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir og mágur,
Sigurgeir Óskar Owen
Haraldsson
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut laugardaginn 16. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 27. september klukkan 13.00.
Ína Owen Valsdóttir
Sigurbjörg H. Sigurgeirsdóttir
Áróra Rut Owen Guðmundur B. Sigurgeirsson
Haraldur Owen Þorbjörg Finnbogadóttir
Sigurbjörg F. Óskarsdóttir Brynjólfur Gestsson
systkini og fjölskyldur þeirra.
Hver er maðurinn?
Derek Mundell fæddist í Englandi 1951 og flutti til Íslands 1976. Hann starfaði við
vísindi, iðnað, vöruþróun og markaðsmál framan af. Fyrir 30 árum vaknaði ástríða
hans fyrir vatnslitamálun og hófst þá nýtt tímabil. Hann hefur bæði lært og kennt
vatnslitun síðan og árið 2011 lauk hann þriggja ára námi í listasögu við HÍ.
Gamburmosinn og margar fleiri tegundir mosa í íslenskri náttúru njóta sín í vatnslitaverkum sem Derek Karl Mundell sýnir um þessar mundir
í Gerðubergi í Breiðholti. „Ég vona að
með sýningunni geti ég varpað nýju ljósi
á mosann,“ segir listamaðurinn og held-
ur áfram: „Ég hef búið hér í fjörutíu ár en
lengst af vakti mosinn ekki athygli mína.
Það var ekki fyrr en ég opnaði útvarpið
í fyrra til að hlusta á Thor Vilhjálmsson
lesa upp úr Grámosinn glóir. Hann las
ákveðinn kafla þar sem tveir menn með
fjóra hesta eru að ríða gegnum hraun og
hann lýsti umhverfinu mjög myndrænt.
Ég varð heillaður og ákvað að fara suður
á Reykjanes, í hraun sem heitir Illa-
hraun, nærri Bláa lóninu, og er alveg
að hverfa undir grágræna mosann sem
Thor lýsir svo fallega, það er gambur-
mosi. Þarna tók ég myndir og skissaði
heilan dag, fór svo aftur daginn eftir og
drakk þetta umhverfi í mig.“
Derek kveðst hafa málað fáeinar
myndir í fyrra en flestar þó í sumar.
Meðal annars hafi hann sótt mynd-
efnið í Svínahraun, í grennd við Litlu
kaffistofuna, og líka í Berserkjahraun
við Stykkishólm. „Sýningin er byggð
upp á myndum sem ég tók í alla vega
veðri: stundum var sólskin, stundum
skýjað, stundum nýbúið að rigna og
þá breytir mosinn um lit. Ég reyni að
ná þessum blæbrigðum á pappír með
vatnslitunum.
Mosamyndirnar eru margar hverjar
stórar, eða allt upp í 1,40 á breidd. „Það
hafa margir málað mosa með olíu-
litum,“ segir Derek. „En ég veit ekki
um marga sem hafa beitt vatnslitum á
hann.“
gun@frettabladi.is
Thor Vilhjálmsson kenndi
mér að meta mosann
Gróður elds og ísa nefnist myndlistarsýning í Gerðubergi í Reykjavík. Þar getur að líta
vatnslitaverk eftir listamanninn Derek Karl Mundell. Þó hann hafi búið á Íslandi í fjöru-
tíu ár uppgötvaði hann þetta myndefni fyrst í fyrra og vill nú varpa nýju ljósi á mosann.
Mundell skissar hinar myndrænu hliðar mosa í hrauni.
Eldur geisar undir.
Grámosinn glóir.
1850 Fyrsta heildarlöggjöf um erfðir gengur í gildi á Íslandi
og samkvæmt henni skulu dætur njóta sama réttar til arfs
og synir.
1939 Bresk njósnaflugvél nauðlendir á Raufarhöfn.
1958 Fyrsti breski togarinn er tekinn við ólöglegar veiðar
innan hinnar nýju tólf mílna landhelgi Íslendinga. Það eru
varðskipin Óðinn og María Júlía sem hjálpast að við það.
Togarinn nefnist Paynter og honum er sleppt aftur að
skipun dómsmálaráðuneytisins.
1975 Lagarfossvirkjun er vígð og tvöfaldast raforkufram-
leiðsla í Austfirðingafjórðungi er hún tekur til starfa.
2003 Jarðskjálfti sem mælist átta stig á Richter ríður yfir
japönsku eyjuna Hokkaídó.
Eldur kom upp í Höfða þennan mánaðardag árið 2009.
Borgarstarfsmenn dreif að úr skrifstofum í Borgartúni og
lögreglumenn lögðu hönd á plóginn ásamt sendibílstjórum
við að bera verðmæti út. Á meðan sinnti slökkviliðið eldinum
sem komið hafði upp á háaloftinu og tókst að ráða niður-
lögum hans á um það bil klukkustund.
Talsverðar skemmdir urðu á ytra byrði hússins en öllu var
bjargað innan úr því, meðal annars gestabók frá leiðtoga-
fundi Reagans og Gorbatsjovs árið 1986 og málverkum eftir
þekktustu málara landsins.
Fyrr um daginn hafði verið opið hús í Höfða til að minnast
þess að hundrað ár voru liðin frá því fyrst var flutt inn í húsið.
Höfði var byggður á Félagstúni fyrir franska konsúlinn Jean-
Paul Brillouin. Einar Benediktsson bjó þar um tíma og Matthí-
as Einarsson læknir á öðru tímabili. En Höfði drabbaðist niður
og var bústaður útigangsmanna þegar Reykjavíkurborg gerði
hann að móttökuhúsi sínu.
Þ ETTa G E R ð I ST : 2 5 . S E p T E M B E R 2 0 0 9
Eldur kviknaði í
háalofti Höfða
Thor Vilhjálmsson.
Grámosinn glóir 1986
Tveir menn, fjórir hestar. Blásnir melar
með lyngþúfum og mosaþembum
ískotnum hreindýramosa, og hvítnar
af; hvítnandi rætur, naktar rætur ofan
á mold; grjót með skellum af skóf.
Og hreindýramosinn lýsir um-
hverfis hið næsta, ljósgráhvítur með
fjólubláfölum tilbrigðum.
Ofar kom í mýri með grashólmum.
Þar eru seytlur og dý með mosa, og
snarrót. Fífusund. Enn ofar lækur sem
rennur um móa, ofan við lynggróna
brekku. Lækurinn hverfur stundum,
og kemur svo frussandi út með lágu
murri og slitnu hjali. (…)
Dropar í dýjamosa titra, glitra eins-
og smágerð djásn.
2 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
3
-6
1
8
0
1
D
D
3
-6
0
4
4
1
D
D
3
-5
F
0
8
1
D
D
3
-5
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K