Fréttablaðið - 26.10.2017, Blaðsíða 8
Alþingiskosningar 2017
l Björt framtíð xA
l Framsókn xB
l Viðreisn xC
l Sjálfstæðisflokkur xD
l Flokkur fólksins xF
l Miðflokkurinn xM
l Píratar xP
l Samfylkingin xS
l Vinstri græn xV
Skipting þingsæta
Könnun 23. og 24. október 2017
Kosningar 2016
xA xVxSxP xD xCxBxF
4
0 0 00
4
8 10
3
10
21
77 6
17
5
10
14
xM
Fylgi flokka
35
30
25
20
15
10
5
0
Kosningar í
september
2016
Könnun
21.3 2017
Könnun
18.9.2017
Könnun
3.10.2017
Könnun
10.10.2017
Könnun
16.10.2017
Könnun
23.-24.
10.2017
%
3,8%
2,7%
7%
14,3%
32,1%
3,1%
27,3%
7,1%
10,9%
10,4%
13,7%
5,1%
23,0%
5,2%
22,8%
2,6%
3,0%
5,8%
5,5%
8,9%
11,4%
10,5%
22,3%
28,6%
3,6%
7,1% 7,5%
9,2%
10,7%
10,0%
8,5%
8,3%
10,4%
22,2% 22,2%
5,0%
3,3%
29,9%
27,0%
1,9%
4,4%
6,2%
9,6%
9,4%
14,3%
24,1%
7,5%
19,2%
6,1%
3,7%
2,1%
8,8%
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
70
23
8
20–25%
afsláttur af öllum barnavörum
og barnavítamínum hjá
Lyfjum & heilsu til 7. nóvember.
Barnadagar
Stjórnmál Ómögulegt er að
mynda tveggja flokka ríkisstjórn
miðað við niðurstöður skoðana-
könnunar Fréttablaðsins, Stöðvar
2 og Vísis. Meirihlutastjórn þarf að
hafa 32 menn að baki sér en tveir
stærstu flokkarnir, Sjálfstæðis-
flokkurinn og VG, myndu einungis
hafa 31 fulltrúa á þingi.
Sterkasti þriggja flokka meiri-
hlutinn sem völ væri á yrði meiri-
hluti Sjálfstæðisflokksins, VG og
Samfylkingarinnar. Hann myndi
hafa 41 þingmann að baki sér.
Þriggja flokka ríkisstjórn krefst
aðildar Sjálfstæðisflokksins og ann-
aðhvort VG eða Samfylkingarinnar.
Hins vegar væri hægt að mynda
fjögurra flokka stjórn án aðildar
Sjálfstæðisflokksins.
Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísir
hafa gert fjórar mælingar á fylgi
flokka í október. Allar benda þær
til að Björt framtíð fái ekki kjörinn
fulltrúa á Alþingi. Á sama tíma er
Samfylkingin að sækja í sig veðrið.
Miðað við niðurstöður nýjustu
skoðanakönnunarinnar fengi
flokkurinn rúmlega 14 prósenta
fylgi, en fékk 5,7 prósent í kosning-
unum í október 2016. Þetta myndi
skila flokknum 10 þingmönnum en
flokkurinn er með þrjá kjörna þing-
menn á Alþingi í dag. Þingflokkur-
inn myndi því þrefaldast að stærð.
Einungis eitt dæmi er um það í
lýðveldissögunni að stjórnmála-
flokkur hafi átt aðild að ríkisstjórn
en síðan horfið af Alþingi í næstu
kosningum á eftir. Það er Borgara-
flokkurinn, sem Albert Guðmunds-
son stofnaði eftir að hann gekk úr
Sjálfstæðisflokknum. Borgara-
flokkurinn fékk sjö þingmenn
kjörna í þingkosningum árið 1987.
Eftir að Albert gerðist sendiherra
í París ákvað flokkurinn, undir
forystu Júlíusar Sólnes, að taka
þátt í ríkisstjórnarsamstarfi Fram-
sóknarflokksins, Alþýðuflokksins
og Alþýðubandalagsins og fengu
tveir fulltrúar flokksins ráðherra-
sæti. Flokkurinn bauð fram í þing-
kosningum árið 1991 en fékk ekki
kjörinn mann og var lagður niður
nokkrum árum seinna.
jonhakon@365.is
Þriggja flokka
stjórn án Sjálf-
stæðisflokks
ómöguleg
Sterkasta þriggja flokka stjórnin yrði stjórn Sjálf-
stæðisflokks, VG og Samfylkingarinnar. BF annar
flokkurinn sem dettur af þingi eftir stjórnarsamstarf.
Aðferðafræðin
Hringt var í 2.551 þar til náðist
í 1.602 manns samkvæmt
lagskiptu úrtaki dagana 23. og
24. október. Svarhlutfallið var
62,8 prósent. Þátttakendur
voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni, og hlutfallslega
eftir búsetu og aldri. Spurt var:
Hvaða lista myndir þú kjósa
ef gengið yrði til þingkosninga
í dag? Ef ekki fékkst svar var
spurt: Hvaða flokk er líklegast
að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var spurt Er líklegra
að þú myndir kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn, eða einhvern annan
flokk? Það er gert í samræmi við
aðferðafræði sem þróuð var á
Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands. Alls tóku 73,8 prósent
þeirra sem náðist í afstöðu til
spurningarinnar. Þá sögðust 5,4
prósent ekki ætla að kjósa eða
skila auðu, 6,5 prósent sögðust
óákveðin og 14,3 prósent
neituðu að svara spurningunni.
✿ VG miklu sterkari meðal kvenna
Þegar rýnt er í niðurstöður skoð-
anakönnunarinnar eftir kyni sést
að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur ívið
meiri stuðnings á meðal karla en
kvenna.
Rúm 26 prósent karla hyggjast
kjósa Sjálfstæðisflokkinn en
einungis rétt tæplega 22 prósent
kvenna.
Hins vegar njóta Vinstri græn
miklum mun meiri stuðnings
kvenna en karla, því rúm 25 prósent
kvenna segjast myndu kjósa VG en
einungis 14 prósent karla.
Könnun 23.-24. október
Konur
Björt
framtíð
1,7%
Björt
framtíð
2,1%
AðrirAðrir
3,
4%
5,
6%
6,
0%
6,
4%
11
,4%
7,4%
10,8%
7,7%
13,4%
15,3%
26
,4%
21
,6%
8,5%
6,2%
14% 25,3%
4,4%
2,4%
Karlar
24%
sögðust ætla að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í alþingis-
kosningum á laugardaginn.
2 6 . o K t ó b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t A b l A ð I ð
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
1
-1
3
5
4
1
E
1
1
-1
2
1
8
1
E
1
1
-1
0
D
C
1
E
1
1
-0
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K