Fréttablaðið - 26.10.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 26.10.2017, Blaðsíða 17
Félagsvísindi tíðkuðust ekki að neinu ráði í Sovétríkj-unum 1917-1991, þekktust varla. Rússar áttu einn þekktan félagsfræðing, Yuri Levada. Fáar skoðanakannanir voru gerðar meðal almennings. Um sumt var ekki óhætt að spyrja svo enginn vissi hvað Rússum og öðrum Sovétum fannst t.d. um yfirvöldin. Í þeim fátæklegu könnunum sem gerðar voru 1980-1990 birtist hinn dæmigerði Sovéti eins og lífvana leirmynd mótuð í Kreml – hnípinn og einangraður með ríka þörf fyrir sterkan foringja. Óttasleginn hugarheimur Eftir hrun kommúnismans 1991 var fyrsta frjálsa skoðanakönnunin gerð. Hún skerpti myndina af ótta- slegnum hugarheimi hins dæmi- gerða Sovéta. Árin næst á eftir virtist óttinn dvína, t.d. fækkaði þeim Rússum sem fannst rétt að ýta samkynhneigðu fólki til hliðar. Og þá sló aftur í bakseglin. Eftir að Pútín forseti komst til valda sneri gamli Rússinn aftur. Áhugi hans á lýðræði, mannréttindum og sam- vinnu við Vesturlönd minnkaði. Pútín skellir skuldinni á Nató sem tók við nýjum aðildarlöndum, m.a. Eystrasaltslöndunum og Póllandi sem liggja að Rússlandi. Nató- löndin verjast ásökunum Pútíns með þeim rökum að þeim hafi ekki verið stætt á að neita þessum löndum um aðild eftir allan þann yfirgang sem þau höfðu mátt þola af hálfu Rússa. Í fyrra ákvað dóms- málaráðuneytið í Moskvu að fella félagsvísindastofnunina sem er kennd við Yuri Levada undir lög um erlenda útsendara. Frá aldamótum hefur stuðn- ingur Rússa við Pútín aldrei farið niður fyrir 60% og mældist nýlega um 80%. Rússland varð samt ekki að því lýðræðisríki sem margir Rússar og aðrir vonuðust til að sjá þegar Sovétríkin féllu. Mikið fylgi Pútíns dugir ekki til að flokka Rúss- land með lýðræðisríkjum. Meira þarf til. Kosninga úrslit í Rúss- landi eru fölsuð eins og að drekka vatn: Til eru myndir af embættis- mönnum að troða atkvæðaseðla- búntum í kjörkassa. Stjórnarand- stæðingar sæta sumir ofsóknum, þeir eru jafnvel myrtir og einnig blaðamenn. Mannréttindi og frelsi fjölmiðla eru borin fyrir borð. Dómskerfið og Dúman (þingið) í Moskvu eru strengjabrúður í höndum Kreml- verja. Þetta kallast skríðandi fasismi. Nágrönnum Rússa er ekki skemmt. Fyrr á þessu ári töldu Svíar nauðsynlegt að endurinn- leiða herskyldu sem hafði verið afnumin 2010. Pútín forseti, launþegi, er sagður vera einn ríkasti maður heims, ríkari en Bill Gates. Medvedev for- sætisráðherra hefur einnig auðgazt ótæpilega. Slíkir valdsmenn reyna að tryggja að andstæðingar þeirra komist ekki til valda og grípa til æ grófari meðala til að halda völdunum hjá sér og sínum. Það eykur vanda Rússa að olíuverð hefur lækkað um helming frá 2014 og mun trúlega haldast lágt áfram. Efnahagur Rússlands er háður olíuverði þar eð Rússar hafa ekki haft lag á að renna fjölbreyttum stoðum undir efnahagslíf sitt. Þeir framleiða fyrir utan olíu og önnur hráefni fátt sem aðrar þjóðir fýsir að kaupa og eru nú minna en hálf- drættingar á við Íslendinga mælt í kaupmætti þjóðartekna á mann. Einkamál Rússa? Nei! Vandi Rússlands er ekki einkamál Rússa heldur breiðist hann út. Rússar hafa átt í ýmsum skærum við granna sína, nú í Úkraínu. Bandaríkjamenn eru margir óánægðir með meint afskipti Rússa af forsetakosningunum vestra í fyrra, málið er í rannsókn. Trump forseti mærir Pútín kollega sinn í tíma og ótíma og ber jafnframt blak af nýnasistum sem ganga á lagið. Traust almennra flokks- manna í Repúblikanaflokknum í garð Pútíns hefur tekið stökk upp á við, úr sjöttungi 2015 í þriðjung nú. Til viðmiðunar segjast 13% demókrata treysta Pútín. Banda- ríkin gæla nú opinskátt við fasisma í boði Rússa og repúblikana eins og Timothy Snyder, prófessor í Yale-háskóla, lýsir í nýrri bók sinni, Um harðstjórn. Það bætir ekki úr skák að tveir af þrem síðustu for- setum Bandaríkjanna náðu kjöri þótt andstæðingar þeirra hlytu mun fleiri atkvæði á landsvísu. Meinsemdin er galli á stjórnarskrá Bandaríkjanna sem „sniðin var upprunalega fyrir annað land, með öðrum viðhorfum“ eins og Sveinn Björnsson fyrsti forseti Íslands sagði um stjórnarskrá Íslands. Að stela stjórnarskrá Þegar Bandaríkjamenn bregðast lýðræðinu eykst hættan á að öðrum finnist þeir geta leyft sér svipað. Íslendingar geta samt ekki kennt Kananum um eigin lýð- ræðisbresti nema að litlu leyti. Fyrirmyndin að misheppnaðri tilraun ríkisstjórnar undir forustu Sjálfstæðisflokksins til að loka Stöð 2 og Fréttablaðinu 2004 var sótt til Rússlands, ekki Bandaríkjanna, en um svipað leyti réðst Pútín forseti gegn einkasjónvarpi í Rússlandi og lagði nær allan sjónvarpsrekstur undir ríkisvaldið. Lögbannið gegn Stundinni fyrir nokkru myndi ekki koma Rússum til að kippast við en það myndi ekki standa stundinni lengur í Bandaríkjunum. Enda fór enginn fram á lögbann gegn frétta- flutningi af leknum tölvupóstum til og frá frambjóðanda demókrata o.fl. fyrir forsetakjörið í fyrra. Eitt enn: Seðlabanki Íslands reyndi að komast hjá neyðaraðstoð frá AGS og Norðurlöndum í hruninu 2008 með því að leita heldur á náðir Rússa, en það tókst ekki sem betur fer. Enn einn angi vandans birtist í forhertu virðingarleysi margra þingmanna o.fl. gagnvart afgerandi úrslitum þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar 2012 um nýja stjórnarskrá sem er ætlað að hamla leynd og spillingu og bæta þannig stjórn- málamenninguna. Fasisminn skríður æ fastar upp að hlið okkar, aðallega samt úr einni átt. Förum varlega. Skríðandi fasismi Þorvaldur Gylfason Í dag Lögbannið gegn Stundinni fyrir nokkru myndi ekki koma Rússum til að kipp- ast við en það myndi ekki standa stundinni lengur í Bandaríkjunum. Enda fór enginn fram á lögbann gegn fréttaflutningi af leknum tölvupóstum til og frá fram- bjóðanda demókrata o.fl. fyrir forsetakjörið í fyrra. Við Íslendingar erum rík af náttúruauðlindum. Þær höfum við nýtt til að búa til eftirsóttar vörur og þjónustu sem hefur staðist samkeppni á erlendum mörkuðum. Þess vegna höfum við efnast og lífskjör okkar hafa stórbatnað á aðeins nokkrum áratugum. Fyrir nokkru efldist útflutningur okkar svo um munaði þegar ferðaþjónustan bættist í hóp öflugra útflutningsatvinnugreina eins og sjávarútvegs og orkufreks iðnaðar. Á besta tíma tók ferða- þjónustunni að vaxa ásmegin og efldist svo eftir var tekið. Nú er svo komið að útflutnings- tekjur okkar eru loksins orðnar hlutfallslega miklar í alþjóðlegum samanburði eða um 49% af lands- framleiðslu. Enda eins gott, eyríki eins og Ísland á mjög mikið undir utanríkisviðskiptum. Gjaldeyris- sköpun útflutningsatvinnugrein- anna stendur nú undir innlendri neyslu og gott betur en það. Því hefur ekki verið þörf á erlendri skuldasöfnun eins og því miður við höfum þurft að reyna áður með tilheyrandi viðskiptahalla og skertum lífskjörum. Þessi þróun hefur skilað sér til allra. Atvinnu- leysi er nánast horfið og það sem meira er, kaupmáttaraukningin hefur orðið gríðarleg eða um 14 sinnum meiri en að meðaltali í Evrópuríkjunum á síðasta ári. Mikilvægi útflutningsgreina fyrir þjóðarbúið er óumdeilt. Sem dæmi má nefna að áætlað er að um 50% af hagvexti síðustu ára megi rekja beint og óbeint til ferða- þjónustunnar. Til að tryggja að útflutningsgreinar vaxi og dafni er lykilatriði að tryggja samkeppnis- stöðu þeirra. Ferðaþjónustan er sannarlega útflutningsatvinnu- grein, salan fer fram erlendis, þar sem hún er í samkeppni við aðra áfangastaði, þó svo að afhending þjónustunnar fari fram á Íslandi. Nú eru blikur á lofti, samkeppnis- hæfni fer versnandi og rekstrar- skilyrði á Íslandi erfið og óljós. Til þess að varðveita góða stöðu þarf útflutningur okkar að aukast til að byggja undir hagvöxt fram- tíðarinnar. Tækifæri til vaxtar eru svo sannarlega til staðar innan ferðaþjónustunnar. En til að svo geti orðið þarf að hlúa að greininni af fullri alvöru. Það þarf að fjárfesta í innviðum greinarinnar, tryggja sjálfbærni, stöðugleika og sýn til langrar framtíðar. Að tryggja sterka stöðu útflutningsgreina verður að vera í forgangi hjá nýrri ríkisstjórn. Öflugur útflutningur skiptir okkur öll máli Helga Árna- dóttir framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónust- unnar S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 2 6 . o k T ó B e R 2 0 1 7 2 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 0 -F 0 C 4 1 E 1 0 -E F 8 8 1 E 1 0 -E E 4 C 1 E 1 0 -E D 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.