Fréttablaðið - 26.10.2017, Qupperneq 17
Félagsvísindi tíðkuðust ekki að neinu ráði í Sovétríkj-unum 1917-1991, þekktust
varla. Rússar áttu einn þekktan
félagsfræðing, Yuri Levada. Fáar
skoðanakannanir voru gerðar
meðal almennings. Um sumt var
ekki óhætt að spyrja svo enginn
vissi hvað Rússum og öðrum
Sovétum fannst t.d. um yfirvöldin.
Í þeim fátæklegu könnunum sem
gerðar voru 1980-1990 birtist hinn
dæmigerði Sovéti eins og lífvana
leirmynd mótuð í Kreml – hnípinn
og einangraður með ríka þörf fyrir
sterkan foringja.
Óttasleginn hugarheimur
Eftir hrun kommúnismans 1991
var fyrsta frjálsa skoðanakönnunin
gerð. Hún skerpti myndina af ótta-
slegnum hugarheimi hins dæmi-
gerða Sovéta. Árin næst á eftir
virtist óttinn dvína, t.d. fækkaði
þeim Rússum sem fannst rétt að
ýta samkynhneigðu fólki til hliðar.
Og þá sló aftur í bakseglin. Eftir að
Pútín forseti komst til valda sneri
gamli Rússinn aftur. Áhugi hans á
lýðræði, mannréttindum og sam-
vinnu við Vesturlönd minnkaði.
Pútín skellir skuldinni á Nató sem
tók við nýjum aðildarlöndum, m.a.
Eystrasaltslöndunum og Póllandi
sem liggja að Rússlandi. Nató-
löndin verjast ásökunum Pútíns
með þeim rökum að þeim hafi
ekki verið stætt á að neita þessum
löndum um aðild eftir allan þann
yfirgang sem þau höfðu mátt þola
af hálfu Rússa. Í fyrra ákvað dóms-
málaráðuneytið í Moskvu að fella
félagsvísindastofnunina sem er
kennd við Yuri Levada undir lög
um erlenda útsendara.
Frá aldamótum hefur stuðn-
ingur Rússa við Pútín aldrei farið
niður fyrir 60% og mældist nýlega
um 80%. Rússland varð samt ekki
að því lýðræðisríki sem margir
Rússar og aðrir vonuðust til að sjá
þegar Sovétríkin féllu. Mikið fylgi
Pútíns dugir ekki til að flokka Rúss-
land með lýðræðisríkjum. Meira
þarf til. Kosninga úrslit í Rúss-
landi eru fölsuð eins og að drekka
vatn: Til eru myndir af embættis-
mönnum að troða atkvæðaseðla-
búntum í kjörkassa. Stjórnarand-
stæðingar sæta sumir ofsóknum,
þeir eru jafnvel myrtir og einnig
blaðamenn.
Mannréttindi og frelsi fjölmiðla
eru borin fyrir borð. Dómskerfið
og Dúman (þingið) í Moskvu eru
strengjabrúður í höndum Kreml-
verja. Þetta kallast skríðandi
fasismi. Nágrönnum Rússa er ekki
skemmt. Fyrr á þessu ári töldu
Svíar nauðsynlegt að endurinn-
leiða herskyldu sem hafði verið
afnumin 2010.
Pútín forseti, launþegi, er sagður
vera einn ríkasti maður heims,
ríkari en Bill Gates. Medvedev for-
sætisráðherra hefur einnig auðgazt
ótæpilega. Slíkir valdsmenn reyna
að tryggja að andstæðingar þeirra
komist ekki til valda og grípa
til æ grófari meðala til að halda
völdunum hjá sér og sínum. Það
eykur vanda Rússa að olíuverð
hefur lækkað um helming frá 2014
og mun trúlega haldast lágt áfram.
Efnahagur Rússlands er háður
olíuverði þar eð Rússar hafa ekki
haft lag á að renna fjölbreyttum
stoðum undir efnahagslíf sitt. Þeir
framleiða fyrir utan olíu og önnur
hráefni fátt sem aðrar þjóðir fýsir
að kaupa og eru nú minna en hálf-
drættingar á við Íslendinga mælt í
kaupmætti þjóðartekna á mann.
Einkamál Rússa? Nei!
Vandi Rússlands er ekki einkamál
Rússa heldur breiðist hann út.
Rússar hafa átt í ýmsum skærum
við granna sína, nú í Úkraínu.
Bandaríkjamenn eru margir
óánægðir með meint afskipti Rússa
af forsetakosningunum vestra í
fyrra, málið er í rannsókn. Trump
forseti mærir Pútín kollega sinn
í tíma og ótíma og ber jafnframt
blak af nýnasistum sem ganga
á lagið. Traust almennra flokks-
manna í Repúblikanaflokknum í
garð Pútíns hefur tekið stökk upp
á við, úr sjöttungi 2015 í þriðjung
nú. Til viðmiðunar segjast 13%
demókrata treysta Pútín. Banda-
ríkin gæla nú opinskátt við fasisma
í boði Rússa og repúblikana eins
og Timothy Snyder, prófessor í
Yale-háskóla, lýsir í nýrri bók sinni,
Um harðstjórn. Það bætir ekki úr
skák að tveir af þrem síðustu for-
setum Bandaríkjanna náðu kjöri
þótt andstæðingar þeirra hlytu
mun fleiri atkvæði á landsvísu.
Meinsemdin er galli á stjórnarskrá
Bandaríkjanna sem „sniðin var
upprunalega fyrir annað land, með
öðrum viðhorfum“ eins og Sveinn
Björnsson fyrsti forseti Íslands
sagði um stjórnarskrá Íslands.
Að stela stjórnarskrá
Þegar Bandaríkjamenn bregðast
lýðræðinu eykst hættan á að
öðrum finnist þeir geta leyft sér
svipað. Íslendingar geta samt ekki
kennt Kananum um eigin lýð-
ræðisbresti nema að litlu leyti.
Fyrirmyndin að misheppnaðri
tilraun ríkisstjórnar undir forustu
Sjálfstæðisflokksins til að loka Stöð
2 og Fréttablaðinu 2004 var sótt til
Rússlands, ekki Bandaríkjanna, en
um svipað leyti réðst Pútín forseti
gegn einkasjónvarpi í Rússlandi og
lagði nær allan sjónvarpsrekstur
undir ríkisvaldið. Lögbannið gegn
Stundinni fyrir nokkru myndi ekki
koma Rússum til að kippast við en
það myndi ekki standa stundinni
lengur í Bandaríkjunum. Enda fór
enginn fram á lögbann gegn frétta-
flutningi af leknum tölvupóstum
til og frá frambjóðanda demókrata
o.fl. fyrir forsetakjörið í fyrra. Eitt
enn: Seðlabanki Íslands reyndi að
komast hjá neyðaraðstoð frá AGS
og Norðurlöndum í hruninu 2008
með því að leita heldur á náðir
Rússa, en það tókst ekki sem betur
fer.
Enn einn angi vandans birtist
í forhertu virðingarleysi margra
þingmanna o.fl. gagnvart afgerandi
úrslitum þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar 2012 um nýja stjórnarskrá
sem er ætlað að hamla leynd og
spillingu og bæta þannig stjórn-
málamenninguna. Fasisminn
skríður æ fastar upp að hlið okkar,
aðallega samt úr einni átt. Förum
varlega.
Skríðandi fasismi
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Lögbannið gegn Stundinni
fyrir nokkru myndi ekki
koma Rússum til að kipp-
ast við en það myndi ekki
standa stundinni lengur í
Bandaríkjunum. Enda fór
enginn fram á lögbann gegn
fréttaflutningi af leknum
tölvupóstum til og frá fram-
bjóðanda demókrata o.fl.
fyrir forsetakjörið í fyrra.
Við Íslendingar erum rík af náttúruauðlindum. Þær höfum við nýtt til að búa
til eftirsóttar vörur og þjónustu
sem hefur staðist samkeppni á
erlendum mörkuðum. Þess vegna
höfum við efnast og lífskjör okkar
hafa stórbatnað á aðeins nokkrum
áratugum. Fyrir nokkru efldist
útflutningur okkar svo um munaði
þegar ferðaþjónustan bættist í hóp
öflugra útflutningsatvinnugreina
eins og sjávarútvegs og orkufreks
iðnaðar. Á besta tíma tók ferða-
þjónustunni að vaxa ásmegin og
efldist svo eftir var tekið.
Nú er svo komið að útflutnings-
tekjur okkar eru loksins orðnar
hlutfallslega miklar í alþjóðlegum
samanburði eða um 49% af lands-
framleiðslu. Enda eins gott, eyríki
eins og Ísland á mjög mikið undir
utanríkisviðskiptum. Gjaldeyris-
sköpun útflutningsatvinnugrein-
anna stendur nú undir innlendri
neyslu og gott betur en það. Því
hefur ekki verið þörf á erlendri
skuldasöfnun eins og því miður
við höfum þurft að reyna áður
með tilheyrandi viðskiptahalla og
skertum lífskjörum. Þessi þróun
hefur skilað sér til allra. Atvinnu-
leysi er nánast horfið og það sem
meira er, kaupmáttaraukningin
hefur orðið gríðarleg eða um 14
sinnum meiri en að meðaltali í
Evrópuríkjunum á síðasta ári.
Mikilvægi útflutningsgreina
fyrir þjóðarbúið er óumdeilt. Sem
dæmi má nefna að áætlað er að um
50% af hagvexti síðustu ára megi
rekja beint og óbeint til ferða-
þjónustunnar. Til að tryggja að
útflutningsgreinar vaxi og dafni er
lykilatriði að tryggja samkeppnis-
stöðu þeirra. Ferðaþjónustan er
sannarlega útflutningsatvinnu-
grein, salan fer fram erlendis, þar
sem hún er í samkeppni við aðra
áfangastaði, þó svo að afhending
þjónustunnar fari fram á Íslandi.
Nú eru blikur á lofti, samkeppnis-
hæfni fer versnandi og rekstrar-
skilyrði á Íslandi erfið og óljós.
Til þess að varðveita góða stöðu
þarf útflutningur okkar að aukast
til að byggja undir hagvöxt fram-
tíðarinnar. Tækifæri til vaxtar eru
svo sannarlega til staðar innan
ferðaþjónustunnar. En til að svo
geti orðið þarf að hlúa að greininni
af fullri alvöru. Það þarf að fjárfesta
í innviðum greinarinnar, tryggja
sjálfbærni, stöðugleika og sýn
til langrar framtíðar. Að tryggja
sterka stöðu útflutningsgreina
verður að vera í forgangi hjá nýrri
ríkisstjórn.
Öflugur útflutningur
skiptir okkur öll máli
Helga Árna-
dóttir
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónust-
unnar
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 2 6 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
0
-F
0
C
4
1
E
1
0
-E
F
8
8
1
E
1
0
-E
E
4
C
1
E
1
0
-E
D
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K