Fréttablaðið - 26.10.2017, Page 26

Fréttablaðið - 26.10.2017, Page 26
Úrsúla sagðist hafa verið svo heppin að fá að taka þátt í keppninni Ungfrú Ísland. „Þetta var afskaplega gaman og ég kynntist svo mörgu yndislegu fólki. Ég eignaðist vinkonur og ógleymanlega reynslu í kjölfarið,“ segir hún. Árið 2014 bar Úrsúla sigur úr býtum í söngvakeppni nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem hún söng lagið Vor í Vaglaskógi ásamt Val Vífilssyni. „Mér hefur alltaf fundist gaman að syngja en ég hef ekki verið að syngja neitt upp á síðkastið nema í bílnum mínum. Söngur er eitthvað sem ég hef virkilega gaman af og væri til í að gera meira af í framtíðinni,“ segir hún. „Ég hlusta mikið á útvarpið í bílnum mínum og er þá oftast stillt á Áttuna FM. Ég elska að hlusta á kántrítónlist þegar ég er lengi á ferðinni, til dæmis þegar ég er á leiðinni vestur í sveitina heim.“ Þessa dagana fer mestur tími í námið hjá Úrsúlu svo hún hefur ekki haft mikinn tíma fyrir fyrir- sætustörf. Hún vonast þó til að starfa við módelstörf þegar hægist um. Úrsúla segist ekki fylgjast Syngjandi fyrirsæta Úrsúla Hanna Karlsdóttir er alin upp á sveitabæ á Mýrunum. Hún stundar nám í líffræði við Háskóla Íslands. Úrsúla var kosin Miss Top Model 2017 í Ungfrú Ísland keppninni í ágúst. Úrsúla Hanna var kosin Miss Top Model 2017 í Ungfrú Ísland keppninni í sumar. MYND/EYÞÓR Elín Albertsdóttir elin@365.is neitt sérstaklega mikið með tísku eða tískustraumum um þessar mundir. „Ég er mjög mikið fyrir að velja það sem mér líður þægilega í, sama hvort það er í tísku eða ekki. Síðan finnst mér gaman að skoða það sem er nýtt á markaðnum. Þegar kólnar í veðri finnst mér ekkert þægilegra en að vera í stórum, víðum og hlýjum peysum sem hægt er að hjúfra sig í, helst með góðum tebolla. Hátt hálsmál, eins og rúllukragapeysur og bolir, eru einnig alltaf í miklu uppá- haldi, sama hvaða árstími er,“ segir Úrsúla en hún flakkar á milli búða og velur sér flíkur frá mis- munandi stöðum. „Þær verslanir sem eru í sérstaklegu miklu uppá- haldi hjá mér núna eru Vero Moda og H&M. Þegar ég er í útlöndum þá fer ég oftast í H&M og stundum Zöru. Síðan er búðarölt alltaf vin- sælt.“ Úrsúla segist ekki fara mikið á djammið. „Ég myndi segja að ég sé fremur heimakær en ég hef þó afskaplega gaman að fara öðru hverju niður í bæ. Ég er samt mjög hrifin af þægilegum og rólegum kvöldum heima með góða mynd í sjónvarpinu,“ segir Úrsúla sem kíkir líka inn á netið eins og aðrir. „Á samfélagsmiðlum er ég mest virk á Instagram og Facebook. En síðan skoða ég oft fréttasíður inn á milli. Síðan eru það mismun- andi fatasíður sem maður kíkir stundum á, eins og Asos, Boohoo og svoleiðis. Ég fer líka í líkams- rækt og lyfti lóðum og brenni. „Ég hef áhuga á að fara í hina ýmsu tíma sem boðið er upp á í World Class. Hot Yoga er einn af þeim tímum sem mér finnst rosalega gaman að fara í, hef reyndar farið allt of sjaldan undanfarið en þetta er bara svo þægilegt og slakandi.“ Úrsúla er fylgjandi vegan mat- aræði og reynir að borða hollan og fjölbreyttan mat. „Ég neita mér sjaldan um eitthvað en reyni frekar að útbúa hollari útgáfur af réttunum. Ég er mikill sælkeri og elska hið ýmsa bakkelsi, enda hef ég sjálf mjög gaman af því að baka. En nei, ég get ekki sagt að ég eigi mér uppáhaldsmat, það er svo margt og mismunandi sem mér finnst gott. Pasta getur þó ekki klikkað. Ég fer sjaldan út að borða, helst þegar fjölskylda mín kemur í bæinn. Annars elda ég mikið sjálf,“ segir hún. Á döfinni hjá Úrsúlu er ferðalag í byrjun nóvember. „Við fjöl- skyldan erum að fara til Þýska- lands að heimsækja ömmu mína og afa, en þau búa í Suður-Þýska- landi. Mamma mín er þýsk og því reynum við að fara rúmlega einu sinni á ári í heimsókn til fjölskyld- unnar úti. Þar er annað heimili manns, getur maður sagt,“ segir Úrsúla Hanna. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Satínblússa á 9.900 kr. 3 litir: blátt, svart, vínrautt • Stærð 34 - 48 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 25% afsláttur af öllum vörum frá 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 1 -0 4 8 4 1 E 1 1 -0 3 4 8 1 E 1 1 -0 2 0 C 1 E 1 1 -0 0 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.