Fréttablaðið - 26.10.2017, Síða 26
Úrsúla sagðist hafa verið svo heppin að fá að taka þátt í keppninni Ungfrú Ísland.
„Þetta var afskaplega gaman og
ég kynntist svo mörgu yndislegu
fólki. Ég eignaðist vinkonur og
ógleymanlega reynslu í kjölfarið,“
segir hún. Árið 2014 bar Úrsúla
sigur úr býtum í söngvakeppni
nemendafélags Menntaskóla
Borgarfjarðar þar sem hún söng
lagið Vor í Vaglaskógi ásamt
Val Vífilssyni. „Mér hefur alltaf
fundist gaman að syngja en ég hef
ekki verið að syngja neitt upp á
síðkastið nema í bílnum mínum.
Söngur er eitthvað sem ég hef
virkilega gaman af og væri til í að
gera meira af í framtíðinni,“ segir
hún. „Ég hlusta mikið á útvarpið
í bílnum mínum og er þá oftast
stillt á Áttuna FM. Ég elska að
hlusta á kántrítónlist þegar ég er
lengi á ferðinni, til dæmis þegar
ég er á leiðinni vestur í sveitina
heim.“
Þessa dagana fer mestur tími í
námið hjá Úrsúlu svo hún hefur
ekki haft mikinn tíma fyrir fyrir-
sætustörf. Hún vonast þó til að
starfa við módelstörf þegar hægist
um. Úrsúla segist ekki fylgjast
Syngjandi fyrirsæta
Úrsúla Hanna Karlsdóttir er alin upp á sveitabæ á Mýrunum. Hún stundar nám í líffræði við
Háskóla Íslands. Úrsúla var kosin Miss Top Model 2017 í Ungfrú Ísland keppninni í ágúst.
Úrsúla Hanna var kosin Miss Top Model 2017 í Ungfrú Ísland keppninni í sumar. MYND/EYÞÓR
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
neitt sérstaklega mikið með tísku
eða tískustraumum um þessar
mundir. „Ég er mjög mikið fyrir að
velja það sem mér líður þægilega í,
sama hvort það er í tísku eða ekki.
Síðan finnst mér gaman að skoða
það sem er nýtt á markaðnum.
Þegar kólnar í veðri finnst mér
ekkert þægilegra en að vera í
stórum, víðum og hlýjum peysum
sem hægt er að hjúfra sig í, helst
með góðum tebolla. Hátt hálsmál,
eins og rúllukragapeysur og bolir,
eru einnig alltaf í miklu uppá-
haldi, sama hvaða árstími er,“
segir Úrsúla en hún flakkar á milli
búða og velur sér flíkur frá mis-
munandi stöðum. „Þær verslanir
sem eru í sérstaklegu miklu uppá-
haldi hjá mér núna eru Vero Moda
og H&M. Þegar ég er í útlöndum
þá fer ég oftast í H&M og stundum
Zöru. Síðan er búðarölt alltaf vin-
sælt.“
Úrsúla segist ekki fara mikið á
djammið. „Ég myndi segja að ég
sé fremur heimakær en ég hef þó
afskaplega gaman að fara öðru
hverju niður í bæ. Ég er samt mjög
hrifin af þægilegum og rólegum
kvöldum heima með góða mynd
í sjónvarpinu,“ segir Úrsúla sem
kíkir líka inn á netið eins og aðrir.
„Á samfélagsmiðlum er ég mest
virk á Instagram og Facebook. En
síðan skoða ég oft fréttasíður inn
á milli. Síðan eru það mismun-
andi fatasíður sem maður kíkir
stundum á, eins og Asos, Boohoo
og svoleiðis. Ég fer líka í líkams-
rækt og lyfti lóðum og brenni. „Ég
hef áhuga á að fara í hina ýmsu
tíma sem boðið er upp á í World
Class. Hot Yoga er einn af þeim
tímum sem mér finnst rosalega
gaman að fara í, hef reyndar farið
allt of sjaldan undanfarið en þetta
er bara svo þægilegt og slakandi.“
Úrsúla er fylgjandi vegan mat-
aræði og reynir að borða hollan
og fjölbreyttan mat. „Ég neita
mér sjaldan um eitthvað en reyni
frekar að útbúa hollari útgáfur
af réttunum. Ég er mikill sælkeri
og elska hið ýmsa bakkelsi, enda
hef ég sjálf mjög gaman af því að
baka. En nei, ég get ekki sagt að ég
eigi mér uppáhaldsmat, það er svo
margt og mismunandi sem mér
finnst gott. Pasta getur þó ekki
klikkað. Ég fer sjaldan út að borða,
helst þegar fjölskylda mín kemur
í bæinn. Annars elda ég mikið
sjálf,“ segir hún.
Á döfinni hjá Úrsúlu er ferðalag
í byrjun nóvember. „Við fjöl-
skyldan erum að fara til Þýska-
lands að heimsækja ömmu mína
og afa, en þau búa í Suður-Þýska-
landi. Mamma mín er þýsk og því
reynum við að fara rúmlega einu
sinni á ári í heimsókn til fjölskyld-
unnar úti. Þar er annað heimili
manns, getur maður sagt,“ segir
Úrsúla Hanna.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Satínblússa á 9.900 kr.
3 litir: blátt, svart, vínrautt • Stærð 34 - 48
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
25% afsláttur
af öllum vörum frá
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
1
-0
4
8
4
1
E
1
1
-0
3
4
8
1
E
1
1
-0
2
0
C
1
E
1
1
-0
0
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K